Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 23

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 23
1997 AUKA-KIRK JUÞIN G 1. mál 48. gr. Kirkjusókn er félag þess fólks innan þjóðkirkjunnar sem býr innan sóknarmarka. Kirkjusókn er sjálfstæð fjárhagsleg og félagsleg eining en tengist öðrum sóknum innan sama prestakalls. ef um það er að ræða. með samstarfi sbr. 57. gr. eða á annan hátt sem héraðsfundur kann að mæla fyrir um eða einstakar sóknamefndir stofna til. Þá tengjast kirkjusóknir öðrum sóknum innan prófastsdæmis með sameiginlegum héraðsfundi. Sóknarmenn eru allir þeir sem lögheimili eiga í sókn, miðað við 1. desember næstliðinn, hafa hlotið skím og em skráðir í þjóðkirkjuna. Um skráningu óskírðra í þjóðkirkjunni fer að öðm leyti eftir ákvörðun laga um trúfélög nr. 18/1975. Sóknarmenn eiga rétt á kirkjulegri þjónustu í sókn sinni og bera sameiginlega skyldur eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum eða með lögmæltum ákvörðunum. Skipan sókna, prestakalla og prófastsdœma. 49. gr. Kirkjuþing setur starfsreglur skv. 60. gr. um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma. í umræddum starfsreglum skulu m.a. vera reglur varðandi skiptingu kirkjusóknar, sameiningu sókna og um sóknarmörk, svo og um niðurlagningu kirkju eða tilfærslu. 50. gr. Þingvallaprestakalli gegni prestur er ráðherra skipar til fimm ára í senn að fengnum tillögum biskups og Þingvallanefhdar. Safnaðarfundir. 51. gr. Aðalsafnaðarfund skal halda ár hvert. Þar skulu rædd málefni sóknarinnar, þar á meðal þau mál, sem lögmælt er að undir fundinn séu borin, svo og þau mál sem héraðsfundur, sóknarprestur, prófastur, biskup íslands eða kirkjumálaráðhera skýtur þangað. Aðalsafnaðarfundur er vettvangur starfsskila og reikningsskila af hendi sóknamefndar og einstakra nefnda innan sóknarinnar. Aðalsafnaðarfundur fer með ákvörðunarvald innan sóknarinnar í málum þeim sem undir fundinn heyra samkvæmt lögum eða lögmæltum ákvörðunum. Aðra safnaðarfundi skal halda ef meiri hluti sóknamefndar óskar þess eða einn fjórði hluti sóknarmanna sem atkvæðisrétt eiga á safnaðarfundum. Sóknarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum þegar þeir em fullra sextán ára. Skipun, störf og starfshættir sóknarnefnda. Almennt. 52. gr. I hverri kirkjusókn er sóknamefhd sem annast rekstur og framkvæmdir á vegum sóknarinnar og styður kirkjulegt starf í sókninni ásamt sóknarpresti og starfsmönnum sóknarinnar. Sóknamefhd skal kosin til fjögurra ára í senn. Sóknamefhdarmenn em þrír í sóknum þar sem sóknarmenn em færri en 300, en ella fimm, þó svo að þegar sóknarmenn em 1.000 hið fæsta mega 17

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.