Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 34
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
sín verði aukið mjög frá því sem nú er. Er lagt til að kirkjumálaráðuneytið hafi, enn
sem fyrr, með höndum nauðsynleg tengsl við þjóðkirkjuna að því er varðar
fjárlagagerð af hálfu stjómarráðsins. Jafnframt virðist rétt og sjálfsagt að sama
ráðuneyti hafi yfirumsjón með því að ríkisvaldið veiti þjóðkirkjunni lögmæltan og
stjómarskrárvarinn stuðning, en því hlýtur einnig að fylgja umsjón með því að
þjóðkirkjan og stofnanir hennar fari að lögum.
Um III. kafla.
í III. kafla, sem er meginkafli frumvarps þessa, er fjallað í allítarlegu máli um
stjóm og starfsskipan íslensku þjóðkirkjunnar. Tekur það bæði til embættismanna
hennar, stjómarstofnana og starfseininga.
Haft skal í huga að til þess er ætlast að kirkjuþing samþykki sérstakar
starfsreglur (sjá einkum 60. gr.) sem verði til fyllingar og viðbótar mörgu því sem
kveðið er á um í kafla þessum.
Rétt er að geta þess að mörg ákvæði þessa kafla frumvarpsins em tekin að
meginstofni úr gildandi lögum og þá með þeim brethingum einum sem leiðir beinlínis
af þeirri skipan, sem frumvarpið byggist á, að stjómunarvald verði fært frá ráðherra til
kirkjulegra stjómvalda. Þykir að jafnaði óþarfi að geta þessa atriðis sérstaklega um
hverja grein fyrir sig sem þetta á við um.
Um 5. gr.
í ákvæði þessu, sem ætlað er að hafa almennt gildi um starfsvettvang íslensku
þjóðkirkjunnar, er áréttuð sú meginstefna höfunda frumvarpsins, sem þegar birtist
með öðm orðalagi í 1. mgr. 2. gr., að þjóðkirkjan ráði sjálf starfi sínu og starfsháttum
innan þess ramma sem löggjafmn hefur markað.
Um 6. gr.
Greinin er efnislega samhljóða 35. gr. laga nr. 62/1990.
Um 7. gr.
Greinin er efnislega samhljóða 1. gr. laga nr. 96/1980.
Um 8. gr.
Hér er lagt til að kirkjuþing setji reglur um kosningu biskups íslands og þar
með séu lög um biskupskosningu, nr. 96/1980, felld úr gildi, sbr. 65. gr. ffumvarpsins.
Um 9. gr.
I greininni er gert ráð fyrir óbreyttri skipan frá því sem nú er.
Um 10. gr.
Greinin er að mestu leyti efnislega samhljóða 1. og 2. mgr. 36. gr. laga nr.
62/1990.
Um 11. gr.
Akvæði þetta er nýmæli. Mikilvægt er að í lögum sé m.a. kveðið á um hvemig
skuli fjallað um meint aga- og siðferðisbrot innan íslensku þjóðkirkjunnar, svo og um
lausn ágreiningsmála, en um þetta gilda nú eigi skýrar reglur. Lagt er til að sett verði á
28