Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 29

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 29
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál endurskoðunar og samræmingar þeirrar löggjafar þótt nefndin telji það ekki í sínum verkahring að annast víðtækari endurskoðun kirkjulöggjafarinnar en hér um ræðir. II. Um alllangan aldur hafa hér verið náin tengsl milli ríkis og kirkju. Voru þau m.a. staðfest á formlegan hátt í stjómarskránni ffá 1874 — þótt eldri væm í reynd — en styrktust síðar með ýmsum hætti, m.a. snemma á þessari öld þegar breyttri skipan var komið á vörslu “kirkjueigna”, svokallaðra, og ríkið tók í reynd að sér launagreiðslur til presta þjóðkirkjunnar þótt þær byggðust í fy'rstu á arði af eignastofni kirkna landsins. Fyrr á öldum var sjálfstæði íslensku kirkjunnar mikið. Var kirkjan lengi sér um fjármál og innri stjóm og á fyrstu öldum kristni í landinu kom hún fram sem sjálfstæður aðili gagnvart ríkisvaldinu (t.d. vom gerðir sáttmálar milli ríkisvalds og kirkjuvalds). Fyrrum hafði kirkjan sína eigin tekjustofna sem hún ráðstafaði til eigin þarfa — enda hlutverk hennar í “veraldlegum” efnum þá víðtækari en síðar varð — en á síðari öldum fór þó konungsvaldið að hlutast til um málefhi kirkjunnar, enda fylgdi það kenningu Lúthers að kristinn þjóðhöfðingi bæri sérstakar skyldur og ábyrgð gagnvart henni. Sé litið til grannþjóða okkar í austri og vestri, þar sem alls staðar ríkir trúffelsi, fer ekki á milli mála að skipan á kirkjumálum er þar með mjög misjöfnum hætti, allt eftir hefðum og ríkjandi skoðunum. Víða em starfandi þjóðkirkjur, svokallaðar, sem sumar em tengdar ríkisvaldinu, svo sem er á Norðurlöndum, en aðrar hafa fullt sjálfstæði í innri málum þótt ríkisvaldið veiti þeim stuðning, svo sem er í Þýskalandi. I Bandaríkjunum er hins vegar ekki um neina þjóðkirkju að ræða, svo sem kunnugt er. Ovíða munu tengsl ríkis og kirkju vera meiri en meðal Dana, en þar er vart um að ræða neina sjálfsstjóm þjóðkirkjunnar gagnvart almannavaldinu. Meðal grannþjóða okkar hafa orðið miklar breytingar á kirkjuskipan hin síðari ár og kynnti nefndin sér þær breytingar ásamt þeim umræðum sem orðið hafa í þeim löndum. Má um þetta efni m.a. vísa til áfangaskýrslu nefhdarinnar sem lögð var fýrir kirkjuþing haustið 1993. Engu að síður varð það niðurstaða nefndarinnar að byggja sem mest á ráðandi kirkjuhefð hér á landi að því marki sem hún verður talin samrýmast þörfum nútímans. Þrátt fýrir þau tengsl sem eru hér á landi milli ríkis og kirkju hefur íslenska þjóðkirkjan sjálfstæði í innri málum sínum, þ.e. hvað varðar guðþjónustuna, helgisiði, skím, fermingu og veitingu sakramentanna, sbr. 13. gr. laga nr. 48/1982. Ytri málum kirkjunnar, svo sem skipan prestakalla og prófastsdæma, veitingu prestakalla og biskupskosningu, er hins vegar ráðið með lögum frá Alþingi. Kirkjumálaráðherra hefur og í reynd mikil völd á þessu sviði þótt hefð sé fýrir því að hann beiti þeim af hófsemi. Lengi vel fékk þessi skipan mála að standa án umtalsverðra mótmæla kirkjunnar manna eða annarra, en á síðustu árum hafa hins vegar farið fram allnokkrar umræður um réttarstöðu íslensku þjóðkirkjunnar, einkum þó um afstöðu hennar til ríkisvaldsins (löggjafarvalds og framkvæmdarvalds). Er þar bæði átt við umræður á kirkjulegum vettvangi, einkum á kirkjuþingi, en aðrir aðilar hafa einnig látið til sín heyra þótt eigi fari sérlega hátt, m.a. í þá veru að slíta beri öll tengsl milli ríkis og kirkju. Eigi verður þó talið að nú um stundir eigi svo róttækar hugmyndir fýlgi að fagna meðal alls þorra Islendinga og miðast efni þessa frumvarps m.a. við þá ætlan nefhdarinnar. 23

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.