Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2008, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008
Sport DV
Megson segir Keegan eiga eftir
að lenda í vandræðum
Gary Megson, stjóri Bolton, var
háreistur eftir jafntefli sinna manna
gegn Newcastle.
Aðspurður hvort
Keegan myndi
breyta gengi
Newcastle sagði
Megson að það
myndi líklega
gerast en ekki
strax.„Keegan á
eftir að breyta
hlutunum hjá
Newcastle og koma með meira hungur í
liðið. Á endanum verður Newcastle aftur
eitt af stóru liðunum en breytingarnar
munu ekki sjást strax. Keegan þarf að
vinna með sömu leikmönnunum til að
byrja með og fyrst þarf hann að koma
þeim á sigurbraut," sagði Megson.
Hodgson sendir sínum mönnum
varnaðarorð
Fulham sem stefnir nú hraðbyri í 1.
deildina eftir 3-0 tap á fyrir Arsenal
hefur fengið varnaðarorð frá þjálfara
sínum. Roy
Hodgson sagði
sínum mönnum
að klukkan tifaði
nú hraðar og fall
gæti orðið
raunveruleikinn
færi liðið ekki að
hala inn stigum.
„Við þurfum að
fara að vinna
leiki, því lengur sem við bíðum því verri
verður okkar staða f deildinni. Það er
strax farið að tala um að við séum á
leiðinni niður en ég trúi því ekki að mínir
menn séu.búnir að missa trúna," segir
Hodgson.
Keegan mun stela Berbatov af
Manchester United
Hugsanleg félagaskipti Dimitars
Berbatov til Manchester United í sumar
gætu lent á hindrun í formi Newcastle.
Enska blaðið Sunday Mirror segir að
Berbatov sé mikill Newcastle-
stuðningsmaður og að félagið muni
blanda sér í baráttuna um framherjann
knáa. Keegan,
eins og frægt er
orðið, stal Alan
Shearerfyrir
framan nefið á
Manchester
United á sínum
tíma og svo er
talið að Keegan
geti notað sama
bragð á
Búlgarann og átt það í erminni að
Berbatov hefur haldið með Newcastle
síðan hann var krakki.
Wheater í samningaviðræðum
við Middlesbrough.
Gareth Southgate ætlar að verðlauna
hinn unga varnarmann Middlesbrough,
David Wheater, sem er upp alinn hjá
liðinu með nýjum samningi. I öllum
meiðslavandræðum Roberts Huth og
félaga í vörninni hefur Wheater stigið
upp og Southgate hefur ekki getað
leynt hrifningu sinni á stráknum.
„Samningaviðræður eru komnar langt
og málin ættu að fara að skýrast
fljótlega.
Wheater er
uppalinn hjá
okkurog
Middlesbrough
er félag sem
gefurungum
strákum
tækifæri.
Strákurinn hefur
átt frábært
tímabil hingað til og er að pakka saman
hinum og þessum landsliðsframherjum,"
segir Gareth Southgate.
Mwaruwarí38,42,55. 2:1 Nyatanga4.
P0RTSM0UTH
56% MEÐ BOLTANN 44%
21 SKOTAÐMARKI 9
5 SKOTÁMARK 6
2 RANGSTÖÐUR 5
6 HORNSPYRNUR 2
14 AUKASPYRNUR 12
1 GULSPJÖLD 2
0 RAUÐSPJÖLD 0
ÁHORFENDUR: 19,401
wmma
James, Johnson, Ramarot, Distin,
Hreidarsson, Lauren, Diarra
(Hughes 81), Pedro Mendes,
Kranjar, Mwaruwari (Mvuemba
89), Nugent
DERBY
Price, Mills (Lewis 32), Todd,
Moore, Nyatanga, Fagan (Teale
68), Savage, Ghaly, Robert
(Bames56),Villa,Miller.
Barátta við Tevez (var Ingimarsson átti góðan dag
(Reading-vörninni og verður ekki kennt um tapið.
Þaö tók Manchester
United 77 mínútur að
koma boltanum í netið
gegn Reading. Reading
fékk góð tækifæri í leikn-
^ um og var óheppið að
> komast ekki yfir. Gæði
Ronaldos og Rooneys
of mikil á endanum,
sagði Steve Coppell
stjóri Reading.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
bladamadur skrifar: tomasd»dv.is
EnglandsmeistararManchesterUnit-
ed lentu í kröppum dansi á Madj-
eski-leikvanginum rétt eins og í fyrra
þegar liðin mættust um helgina.
Þótt Reading hafi aldrei unnið Man.
United hefur það ávallt strítt liðinu
og þar varð engin breyting á. Það tók
Manchester United 77 mínútur að
brjóta ísinn en áður í leiknum fékk
Reading tvö dauðafæri. Ronaldo
sigldi sínu sjöunda marki í höfn
þegar hann tryggði 0-2 útisigur
meistaranna.
Reading vantaði í lið sitt tvo
sterka varnarmenn, þá Ibrahima
Sonko og Andre Bikey, sem báðir
eru að keppa á Afríkumótinu með
sínum landsliðum og þá var Brynjar
Björn Gunnarson frá vegna meiðsla.
Við hlið ívars Ingimarssonar í vörn-
inni stóð Frakkinn Kalifa Cisse sem
komst vel frá sínu í baráttunni við
Carlos Tevez. Sir Alex Ferguson
stillti upp því sterkasta sem hann
átti að því undanskildu að Ryan
Giggs fékk að hvíla sig á bekknum
fyrir Ji-Sung Park. Hann kom þó
strax inn á við upphaf seinni hálf-
leiks enda fann Park sig engan veg-
inn eftir meiðslin.
Þrjú færi Kitsons
Steve Coppel, stjóri Reading,
hefur í þessum fáu leikjum sem
Reading hefur att kappi við Man.
United prófað flestar aðferðir til ár-
angurs. Sumar þeirra tekist ágæt-
lega. Um helgina prófaði hann nýja
taktík. Sækja til sigurs. Meistararn-
ir byrjuðu betur og voru skeinu-
hættir upp við mark heimamanna
en fengu engin teljandi færi. Meira
og meira komst Reading inn í leik-
inn og fór að þjarma að öftustu línu
gestanna.
Dave Kitson fékk þrjú góð tæki-
færi til að skora, þar af tvö í fyrri
hálfleik. Fyrst þurfti Nemanja Vidic
að verja skot Kitsons sem stefndi í
tómt netið eftir að Van Der Sar hafði
misst stungusendingu Leroy Lita frá
sér. Kitson skaut svo að tómu marki
af löngu færi eftir lélega hreinsun
Van Der Sar en Rio Ferdninand var
kominn aftur til að bjarga. f seinni
hálfleik komst Kitson svo einn í gegn
eftir að tvívegis hafði verið brotið á
miðvörðum United en Van Der Sar
sá við vippu Kitsons og greip bolt-
ann laglega.
Stíflan brast
Ryan Giggs kom inn á í byrjun
seinni hálfleiks og þá gekk sóknar-
leikur United mun betur fyrir sig.
Það pressaði Reading stíft sem var þó
óragt við að sækja á móti en hraða-
upphlaup United, sem eru vöru-
merki liðsins, gengu iítið í leiknum.
Það var ekki fyrr en á 77. mínútu
að Wayne Rooney kom United loks
yfir þegar hann sneiddi sendingu
Carlosar Tevez á lofti í fjærhornið.
Cristiano Ronaldo þurfti svo auð-
vitað að komast á blað líka en hann
batt þá enda á einu vel heppnuðu
skyndisókn United með marki í
uppbótartíma. Tveggja marka sigur
United staðreynd en liðið þurfti að
hafa mikið fyrir sigrinum.
Gæði Rooneys og
Ronaldos of mikil
„Við lögðum líf okkar og limi
í leikinn og gáfum hvergi eftir. Á
endanum voru gæði Ronaldos og
Rooneys of mikil fyrir okkur," sagði
hinn auðmjúki Steve Coppel eftir
leik og bætti við. „Við reyndum okkar
Of mikil gæði Coppel sagði Rooney og
Ronaldo hafa verið of góða.
besta og þótt þetta virki eins og
venjulegur 2-0 sigur hjá United var
þetta svo sannarlega ekki þannig.
Okkur langaði ekki að verjast bara
í dag. Oft er sókn besta vörnin og í
dag munaði minnstu að það gengi,"
sagði Coppel að lokum.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, hrósaði
Reading fyrir baráttuna. „Við fengum
sæg af færum í dag en nýttum þau
ekki. Við vorum orðnir ansi hræddir
um að þetta yrði kannski ekki okk-
ar dagur. Ég verð að hrósa Reading
fyrir mikla baráttu, það gafst aldrei
upp. Leikurinn í sjálfu sér var mjög
opinn. Sóknarleikur okkar var ekki
upp á sitt besta og Reading átti sín
færi. Markið okkar kom á hárréttum
tíma og við náðum að halda þetta
út," sagði Skotinn að lokum.
Benjani skoraði þrennu á átján mínútna kafla:
Derby ekki viðbjargandi
Þótt Sunderland hafi lagt
Portsmouth um síðustu helgi þýddi
það ekki að Derby gæti leikið það eftir.
Derby komst yfir gegn Portsmouth og
virtist sem svo að Afríkumótið ætlaði
alveg að fara með Portsmouth-
menn en raunin varð önnur. Benjani
Mwaruwari skoraði þrennu á Derby
sem stefnir nú hraðar en aldrei fyrr á
1. deildina þótt liðið skarti kippu af
nýjum leikmönnum.
Nýjasti leikmaður Derby, Lewin
Nyatanga, kom Derby yfir á Fratton
Park eftir aðeins fjögurra mínútna
leik. Annar nýliði, Frakkinn Laurant
Robert, tók þá eina af sínum gífurlega
góðu aukaspymum inn á teiginn
sem Derby náði að skalla á markið.
David James varði skallann vel en þó
aðeins í slána og fyrir fætur Nyatanga
sem skoraði í sínum fyrsta leik fýrir
Derby. Skömmu síðar slapp skoski
framherjinn, Kenny Miller, í gegnum
Þrenna Benjani fann markaskóna aftur
og setti þrennu gegn Derby.
vörn Portsmouth og fékk upplagt
tækifæri til að koma Derby í 2-0 en
misnotaði það tækifæri.
Eftir þetta var komið að þætti
framherjans Benjanis Mwaruwari.
Benjani hefur ekki verið á
markskónum undanfarið en jafnaði
leikinn á 38. mínútu með glæsilegu
marki. Hann fékk þá boltann inni fyrir
miðjum teignum, sneri sér eins og
besti innanhússlyftari á punktinum,
og smellti knettinum í hornið fjær.
Benjani kom svo Portsmouth yfir
þremur mínútum fýrir hálfleik. Derby
tókst þá ekki að hreinsa hornspyrnu
Portsmouth lengra en í fætur
Hermanns Hreiðarssonar sem átti
glæsilega fyrirgjöf á Benjani sem stóð
einn og óvaldaður og skallaði boltann
í netið.
Eftir aðeins tíu mínútna leik í
seinni hálfleik var Benjani búinn
að klára leikinn fyrir Portsmouth.
Hann og Pedro Mendes óðu þá að
marki Derby tveir á móti einum
varnarmanni. Mendes renndi
boltanum á Benjani sem lagði
boltann í hornið fjær. Þriðja mark
hans og þriðja mark Portsmouth en
niðurstaðan í leiknum varð 3-1 sigur
heimamanna.
„Við byrjuðum rosalega vel og
hefðum getað komist í tvö núll. Vömin
okkar var samt úti á þekju og þar
töpuðum við leiknum. Eg er búinn að
segja það aftur og aftur við strákana að
þeir verði að einbeita sér í vörninni.
Það þarf engan eldflaugasérfræðing
til að sjá af hverju við erum í þeirri
stöðu sem við erum í," sagði ósáttur
stjóri Derby, Paul Jewell, eftir leikinn.
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth,
var eðlilega sáttari aðilinn. „Þetta
var mjög góður sigur hjá okkur.
Derby komst yfir en við pössuðum
okkur á að láta það ekki á okkur fá.
Stuðningsmennimir hjálpuðu okkur
að koma til baka í þessum leik þannig
að ég er mjög ánægður maður í dag,"
sagði Redknapp.
tomas@dx.Js
MAÐUR LEIKSINS