Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2008, Síða 20
‘20 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008
Sport DV
Xtlir «S stlnga upp (Houlllar
Nicolas Anelka hefurekki enn
fyrirgefið Gerard Houllier að hafa
geymt hann löngum stundum á
varamannabekk Liverpool. Hann sér
eftir að hafa yfirgefið Arsenal á sínum
t(ma. Þetta er
meðal þess sem
fram kemur (
viðtali við
Anelka í breska
blaðinuThe
Independent.
„Ég var undrandi
á að Houllier
vildi ekki halda
mér. Hann lofaði ™
mérfyrst að hann myndi kaupa mig en
skipti svo um skoðun. Mér fannst ég
hafa staðið mig nógu vel til að vera
áfram hjá liðinu. Mig langaði til að vera
áfram hjá Liverpool en ég hef aldrei
skilið af hverju ég skrifaði ekki undir
hjá þeim."
Frá Arsenal fór hann að áeggjan
bræðra sinna eftir að hafa orðið
tvöfaldur meistari með liðinu árið
1998. Anelka fór á 22,3 milljónir punda
til Real Madrid og Arsenal byggði sér í
staðinn nýtt æfingasvæði og keypti
Thierry Henry. Anelka átti erfitt
uppdráttar þar og fór að lokum (
verkfall.„Ég vildi tala við ákveðna aðila
hjá félaginu sem ekki vildu tala við mig
svo ég hætti að æfa. En það voru
mistök. Ef ég vildi fá einhverju breytt
átti ég að æfa fyrst og tala svo." Og
Anelka hefur heillaráð til Didiers
Drogba, sem vill fara frá Chelsea.
„Grasið er grænna annars staðar en á
Englandi.Trúðu mér. Ég hef kannað
það."
Bowywr vlll upproisn mru
Lee Bowyer, leikmaður West Ham,
gerir sér grein fyrir að hann er ekki (
miklum metum meðal almennings.„Af
einhverjum völdum virðast menn
halda aðég sé
skepna," segir
hann í viðtali við
breska blaðið
The Observer.
Sjálfur segir
hann að honum
hafi aldrei liðið
betur.„Bæði
innan vallarsem
utan. Ég er
kominn heim ífaðmfjölskyldunnar."
Bowyer hefur lent í ýmsu á sínum ferli.
Hjá Charlton, (upphafi ferilsins, var
honum refsað fyrir kannabisneyslu. Hjá
Leeds var hann ákærðurfyrir árás á
asískan námsmann ásamt Jonathan
Woodgate. Dómari sýknaði Bowyer
eftirtveggja ára réttarhöld.„Þessir
hlutir sem fólk nefnir gegn mér eru 8,
* 11 eða 13 ára. Ég vil að fólk líti á hvar
ég er í dag. Ég hef gert mistök en
aldrei falið þau. Ég get ekki tekið til
baka það sem gerst hefur en ég hef
þurft að læra af mistökunum." Hann
segir að lætin hafi hamlað tækifærum
hans með enska landsliðinu.„Ég var
dæmdur fyrir nokkuð sem ég tók
engan þátt (." Honum finnst sárt að
þegar hyllir undir lok ferilsins sé hann
verðlaunalaus.„Mérfinnst það
óviðunandi. Leeds-liðið var nógu gott,
spilaði skemmtilegan bolta og við
hefðum átt að vinna ti I verðlauna."
Ramoc vill TUgo
Spænskir fjölmiðlar segja Tottenham
vilja kaupaTiago frá Juventus.
Portúgalinn hefur áður spilað í ensku
úrvalsdeildinni, með Chelsea, en eflt
’ sjálfstraust sitt á (talíu eftir mislukkað-
an feril með Lyon (Frakklandi. Juande
Ramos staðfestir að hann leiti að
öflugum miðjumanni, helst einhverj-
um (ætt við Roy Keane. „Leikmenn
eins og Roy Keane eru ómissandi. Mér
fannst hann
stórkostlegur
leikmaður. Hann
hafði einstakan
persónuleika og
orku og dreif
þannig aðra leik-
menn með sér.
Þvl miður hverfa
slíkirleikmenn
, einnaföðrum.
Ég segi ekki að við sjáum aldrei aðra
eins leikmenn en það verður mjög
erfitt að finna annan eins og hann. Ég
veit ekki hvers vegna við fáum ekki
leikmenn eins og hann. Drifkrafturinn
sem einkenndi hann er nokkuð sem
menn læra ekki, heldur nokkuð sem er
meðfætt." ForráöamennTottenham
hafa einnig neitað sögusögnum um að
Darren Bent sé á förum.
Arsene Wenger getur þakkað fyrir að Tógó komst ekki í úrslitakeppni Afrikukeppninn-
ar. Fyrir vikið heldur Emmanuel Adebayor sig heima og tvö skallamörk hans lögðu
grunninn að 0-3 sigri Arsenal á Fulham í nágrannaslag.
Arsenal hefur ekki tapað í seinustu
ellefu leikjum og allt er til reiðu fyr-
ir taugatrekkjandi baráttu um enska
meistaratitilinn í vor. Roy Hodgson
hefur janúarmánuð til að móta Ful-
ham-liðið fyrir erfiða fallbaráttu.
Framherjinn Marlon King, sem átti
að koma frá Watford, stóðst ekki
læknisskoðun og Bandaríkjamað-
urinn Clint Dempsey byrjaði einn
frammi. Miðvörðurinn Brede Hange-
land hafði ekki fengið leikheimild og
sat uppi í stúku en kraftar hans hefðu
komið sér vel til að hafa hemil á Ad-
ebayor.
Heimamenn í Fulham byrjuðu
betur en bit skorti í sókn þeirra. Ars-
enal stóð af sér sóknir þeirra og náði
smám saman tökum á leiknum. Eft-
ir nítján mínútur sendi Gael Clichy
fyrir frá vinstri og Adebayor skallaði
boltann inn þar sem hann gnæfði
yfir miðverði Fulham. Nítján mínút-
um síðar var hann aítur á ferðinni
þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Al-
eksandr Hleb frá hægri. Besta færi
Fulham kom þremur mínútum fyrir
leikhlé en Danny Murphy skaut yfir
frá vítateigspunktinum eftir góðan
undirbúning Stevens Davis.
Króatinn Eduardo da Silva er
á réttri leið eftir dapra byrjun hjá
Arsenal. Hraði hans ogleikni skapaði
usla í Fulham-vörninni. Þannig lagði
hann upp tvö dauðafæri fyrir Tomas
Rosicky í seinni hálfleik. Fyrra
skot Rosickys fór út af í stöng. Hið
seinna, níu mínútum í leikslok, lenti
í markinu. f bæði skiptin fór Eduardo
inn í vítateiginn vinstra megin og
renndi boltanum út þar sem Tékkinn
kom á ferðinni.
Adebayor í framför
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
var ánægður með frammistöðu Ad-
ebayors og sagði hann eiga að halda
sig inni á vítateignum. „Ég viður-
kenni að ég harmaði ekki að Tógó
komst ekki áfram. Það hefði verið
erfitt að vera án Adebayors þótt við
séum með öfluga varamenn eins
og Eduardo, Bendtner og Walcott.
Hann er aðalframherjinn okkar og
veitir okkur aukna fjölbreytni með
skallamörkum sínum. Adebayor hef-
ur stundum átt það til að draga sig út
á kantana því hann langar til að taka
þátt í spilinu. En þannig fer hann af
því svæði þar sem hann er hættu-
legastur. Við höfum bent honum á
þetta og hann hélt sig á miðjunni í
dag. Hann hefur ótrúlegan stökk-
kraft, hann tímasetur stökkin sín vel
og hann er frábær í loftinu."
Wenger var ánægður með
frammistöðu Arsenal sem hafði ráð-
ið leiknum. „Við höfðum völdin í 90
mínútur. Við skoruðum snemma,
vörðumst vel og vorum góðir. Það
sýnir að liðið langar til að standa sig
vel í vor. Það var mikilvægt að vinna
eftir slæm úrslit gegn Birmingham
fyrir viku. Við skoruðum þrjú mörk
eftir fyrirgjafir. Það er sjaldgæft hjá
okkur en sýnir þá fjölbreytni í leik
okkar sem gerir okkur kleift að vinna
bug á hvers konar mótspyrnu sem
við kunnum að mæta."
Staða Fulham versnar
Roy Hodgson sagðist vonast til að
mál Kings leystust á næstu dögum.
Liðið er einnig í viðræðum við suð-
0:
m. MEÐ BOLTANN 54%
SKOTAÐMARKI
SKOT A MARK
RANGSTÖÐUR
HORNSPYRNUR
AUKASPYRNUR
GULSPJÖLD
RAUÐSPJÖLD
ÁHORFENOUR: 25297
Niemi,Volz, Hughes, Stefanovic,
Bocanegra, Ki-Hyeon (Healy 61),
Smertin (Kuqi 78), Oavis (Bullard
46), Murphy, Davies, Dempsey.
Almunia, Sagna, Senderos,
Gallas, Oichy, Hleb, Flamini,
Fabregas, Rosicky, Adebayor,
Eduardo.
MADUR LEIKSINS
E. Adebayor, Arsenal
urkóreska sóknarmanninn Choe Jae
Jin. En á meðan versnar staða Ful-
ham með hverjum leik. Hodgson var
ósáttur með að liðið skyldi ekki ná að
nýta sér góða byrjun.
„Fyrsta markið færði þeim völd-
in í leiknum og eftir annað markið
var ljóst að síðari hálfleikurinn yrði
erfiður. Við sköpum okkur fá færi,
pressan er lítil og við vinnum of fá
Turninn Emmanuel Adebayor
Skorar annað mark sitt gegn Fulham.
návígi. Við verðum að fara að vinna
leiki, því eftir sem það dregst lengur
því erfiðra verður það. En við getum
það vel. Menn eru raunsæir en leik-
mennirnir hafa ekki gefist upp. Ef
við fáum nokkra nýja leikmenn eflir
það liðsandann enn frekar. Við vitum
hvað við þurfum að bæta og vinnum
að því hörðum höndum."
GG
Liverpool tekur á móti Aston Villa í mánudagsleiknum:
LIVERPOOL VERÐUR AÐ SIGRA
Það er stórleikur í ensku úrvals-
deildinni í kvöld þegar Liverpool
tekur á móti Aston Villa á heimavelli.
Aston Villa kemur tvíeflt inn í leikinn
eftir að hafa sigrað í síðustu þremur
leikjum og ekki tapað í síðustu sex.
Liverpool aftur á móti leitar nú
logandi ljósi að sigri eftir að hafa gert
þrjú jafntefli í röð. Öll toppliðin unnu
um helgina og því er lífsspursmál
fyrir Liverpool að vinna Aston Villa
í kvöld.
Tvö af þremur jafnteflum Liver-
pool hafa ekki verið á móti neinum
stórliðum. Liðin í neðri hluta deildar-
innar, Middlesbrough og Wigan
náðu stigum af Liverpool-mönnum
ásamt strákunum hans Svens hjá
Manchester City. I millitíðinni
gerði Liverpool einnig jafntefli við
Luton í bikarnum en rúllaði yfir það
svo í seinni leiknum á heimavelli.
Fernando Torres og Steven Gerrard
hafa verið í fantaformi fyrir Láver-
pool það sem af er og algjörir
yfirburðamenn hjá liðinu. Nú vantar
samt að fleiri stígi upp því Aston
Villa eins og önnur lið finnur lykt af
vonleysi Liverpool-manna og mun
gera það sem það getur til að ná í stig
á Anfield.
Varnarmenn Liverpool munu vera
í vandræðum með sóknarlínu Aston
Villa sem verður bara betri með
hverjum leiknum. Með hinum stóra
og stæðilega Norsara, John Carew,
sem getur gert öllum varnarmönnum
lífið leitt, eru hinir ungu og snöggu
Gabriel Agbonlahor hægra megin
og Ashley Young vinstra megin.
Þessir ungu strákar taka augljósum
framförum með hverjum leiknum
og eru hvergi bangnir við að ráðast á
vamarmenn andstæðinga sinna.
Hvort stórsigur Liverpool á Lut-
on verði kveikjan að sigri Liverpool
er spurning en eitt er víst. Það þarf
að fara að vinna leiki. Aston Villa er
kannski ekki draumamótherji þegar
þú ert kominn svona með bakið upp
við vegg en aftur á móti gæti það verið
nákvæmlega það sem Liverpool þarf.
Sigur er nauðsyn en ekki bara einn.
Þeir þurfa að verða fleiri.
Hvorugt liðið er í vandræðum
með mannskap í leiknum en aðeins
einn leikmaður er meiddur í hvom
liði. Hjá Uverpool er það reyndar
Daniel Agger sem er búinn að vera
frá lengi og vilja margir telja það
stóra ástæðu fýrir gengi Liverpool í
ár. Rafael Benitez á fyrir utan það að
geta stillt upp sínu sterkasta og það
og það getur Martin O’Neill líka hjá
Villa að einum undanskildum. Svíinn
Olaf Mellberg er með víms og mjög
Nu vantar sigur bN
Liverpool veiður að jb*
virma Aston Villa i
kvöld til að vera nieð
i titilbarattuohr
ólíklegt að hann verði með. Mellberg
hefur leyst hægri bakvarðarstöðuna
hjá Villa og gerir það vel.
tomas@dv.is