Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008
Sterkurhópur Arnar segir hópinn að
norðan feiklsterkan og akveðið hafi verið
að styrkja hann enn frekar með þvi að
baeta við 6. stúlkunni.
Verulega ósátt Svana skilur
ekkert i þvt hvemig forsvarsmönn-
um keppninnar datt i hug að baeta
aukasæti við. MYND Páll A. Pálsson
ÞETTA HELST
ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST í VIKUNNI
(slensk fegurð Fram undan er valið um ungfrú
Island 2008 og í keppnina mæta 6 fegurðardísir af
Norðurlandi. Myndin sýnir þegar búið var að krýna
Jóhönnu Völu Jónsdóttur ungfrú ísland 2007.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamaðui skrifar:
K
Fegurðardísir af Norðurlandi furða
sig á ákvörðun forsvarsmanna ung-
frú Norðurlands 2008 að bæta við
auka keppnissæti fyrir keppnina
ungfrú tsland 2008. Forsvarsmenn-
imir voru búnir að ákveða að dís-
imar í 5 efstu sætunum yrðu sendar
suður en eftir úrslitakvöldið, laugar-
daginn 19. apríl, var ákveðið að bæta
við einu sæti. Heiður Lilja Sigurðar-
dóttir, sem lentí í 6. sæti keppninnar
í ár, fær aukasætíð sem bætt var við
eftír að úrslitin voru ljós.
Eftir lokakvöldið hefur óánægja
fegurðardísanna, einkum þeirra
sem vom í sætunum fyrir neðan
Heiði, vaxið og skilja þær ekkert í því
hvers vegna þessi ákvörðun var tek-
in þvert á það sem búið var að lýsa
yfir fyrir keppnina. f þeirri umræðu
hafa óánægðu stúlkurnar velt fyrir
sér mögulegum skýringum og er sú
líklegasta talin vera fjölskyidutengsl
Heiðar við margreyndan dómara
fegurðarsamkeppninnar. Heiður er
tengdadóttir dómarans.
Búið að ákveða annað
Svana Kristjánsdóttir, ein fegurð-
„Að mínu mati hefði
verið eðlilegast að
senda þær 5 sem
ákveðið vareðasenda
allar stelpurnar, það á
ekki að bæta svona við
einu sæti eftir á"
ardísanna sem kepptu um títilinn
ungfrú Norðurland 2008 um síðustu
helgi, skilur ekkert í því hvemig for-
svarsmönnum keppninnar datt í hug
að bæta við aukasætí þegar búið var
að tilkynna annað. Hún segir aug-
Ijóst að fjölskyldutengsl hafi ráð-
ið för við ákvörðunina. „Ég er brjál-
uð. Mér finnst þetta alveg ótrúlega
mikið svínarí að allt í einu sé þessu
aukasæti bætt við þegar búið var að
ákveða annað. Þetta aukasætí var
aldrei inni í myndinni fyrir keppnina
fýrr en ljóst var að sú sem fær auka-
sætíð fékk engin verðlaun. Hún er
tengdadóttir dómara og það er al-
veg 100 prósent ástæðan fyrir því að
þessi breytíng var gerð,“ segir Svana.
Amar Laufdal, eigandi keppn-
innar ungfrú Island, staðfestir að
áður hafi verið búið að ákveða að
senda 5 efstu keppenduma en vísar
því á bug að tengsl Heiðar við hinn
margreynda dómara hafi orð-
ið tíl þess að sætinu var bætt
við. Hann segir það hafa
verið ákveðið tíl að styrkja
keppnishópinn að norðan
enn frekar. „Það em engar
fastar reglur um þetta en
við emm búnir að bjóða
6 keppendum að fara í
lokakeppnina. Það stóð
tíl að senda 5 en við
tókum ákvörðun um
að bæta 6. sætínu
við,“ segir Amar.
Sterkari hópur
„Sjálfur þekld
ég ekki nein fjöl-
skyldutengslkepp-
andans sem bættíst við og slík tengsl.
höfðu engin áhrif á ákvörðun okkar.
Ég útiloka það algjörlega. Hópurinn
fyrir norðan var sterkur fyrir og við
ákváðum að gera hann enn sterkari
með því að bæta þessari stúlku við,"
bætir Arnar við.
Aðspurð segist Svana hafa orðið
vör við mikla óánægju með hina um-
deildu breytingu og hefúr orðið vör
við umræðu þess efrtís að tengda- !
faðirinn hafi þrýst á forsvarsmenn
keppninnar að bæta 6. sætinu við.
„Ég veit að það em margir mjög reið-
ir út af þessu. Fólk er óánægt og veltir-
því fyrir sér hvers vegna í ósköpun-
um þetta er gert. Ég held að það hafi
einfaldlega orðið að bæta tengda-
dótturinni það upp að hafa ekki
fengið nein verðlaun og umræðan er
á þeim nótum. Að mínu matí ;
hefði verið eðlilegast
að senda þær 5
sem ákveð-
ið var eða
senda allar
stelpumar,
það á ekki
að bæta w
svona við
einu sætí
eftirá,"seg-
ir Svana.
Fréttir DV.
SÝÐURUPPÚR
Átök bmtust út
milli lögreglu og
mótmælenda á
Suðurlandsvegi þar
sem atvinnubílstjór-
ar höfðu lagt bílum sínum.
Þeir héldu áfram mótmæl-
um gegn háu eldsneytísverði
og hvíldartímatílskipunum
en ólíkt því sem áður hefur
verið enduðu mótmælin
ekki friðsamlega. Lögreglu-
menn beittu piparúða og
kylfúm á mótmælendur
og einn lögreglumaður var
fluttur á sjúkrahús eftír að
hafa fengið grjót í hausinn.
Nokkrir mótmælendur vom
handteknir.
KALLIBJARNIFERÚRLANDI
tfhUNSK SIUIIAIHOUYWOOO:
- LEIKUR
IXIIWK
ÍFÓRNARLAMB
POLANSKIS
FRESTAR AFPLÁNUN 06 HELDUR ÁFRAM
KAII
Karl Bjami Guð-
mundsson, betur
þekktur sem Kalli
Bjami, er farinn til
Noregs, samkvæmt
áreiðanlegum heimild-
um DV. Hann áttí á miðviku-
dag að hefja afplánun tveggja
ára fangelsisdóms fyrir fíkni-
efnasmygi en er talinn hafa
fengið frestun á upphafi
afplánunar ffarn á mánu-
dag. Hann sást í flugvél á
leið tíl Noregs í síðustu viku.
Stutt er sfðan Kalli Bjami
var handtekinn af lögreglu.
Hann fannst með nokkurt
magn fíkniefna á hótelher-
bergi í Reykjavík þar sem
hann dvaldi með vinkonu
sinni. Efhin vom talin til
einkaneyslu og sölu.
SKELFILEGUR KENNARASKORTUR
Gífurlegurkenn-
araskortur blasir
við næsta skóla-
vetur í grunn-
skólum höf-
uðborgarinnar.
Kennaraskorturinn er
ríflega helmingi meiri í
dag miðað við sama tíma í
fyrra þegar skorturinn var
engu að síður mikill. „Ég
hef aldrei séð annað eins
og leit síðastí vetur nógu
illa út Því miður óttast ég
að talan eigi enn eftir að
hækka á næstunni," sagði
Þorgerður L. Diðriksdótt-
ir, formaður Kennarafé-
lags Reykjavíkurborgar.
skortÚh
KENNURUl
ÓSÁTTAR ÓFRÍSKAR KONUR
Ung kona hefúr lagt
ffarn kæm á hend-
ur Háskólanum á
Bifröst þar sem hún
telur brotíð á sér á
gmndvelli jafnréttís-
áætiunar skólans. Þar er gert
ráð fyrir sveigjanleika í námi
vegna meðgöngu og bams-
fæðinga. Tvær kæmr á hend-
ur Bifföst em því til meðferðar
áfrýjunamefndar háskóla-
nema. DV hefur heimildir
fyrir því að fleiri kvenkyns
nemendur séu ósáttir við
framgöngu skólans hvað
! varðar skort á sveigjanleika
i vegna bameigna. Háskól-
: inn á Bifföst er kynntur sem
jafnréttissinnaður skóli og
samkvæmt upplýsingum á
vefsíðu skólans er þar í gangi
’ jafnréttísáætlun.
HITTMALIÐ
___________ Forsvarsmenn fegurðarsamkeppninnar ungfrú
Norðurland 2008 eru sakaðir um að hafa látið undan þrýstingi og
bætt við aukakeppnissæti fyrir keppnina um ungfrú ísland sem
fram undan er. Heiður Lilja Sigurðardóttir, sem lenti í 6. sæti
keppninnar, fær að fara með suður en fyrir keppnina var búið að
ákveða að senda 5 efstu fegurðardísirnar. Heiður er tengdadóttir
margreynds dómara við fegurðarsamkeppnina.
X