Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 Fréttir DV SANDKORN ■ Einumlanglífastagetieikseinni tíma lauk þegar tilkynnt var að Ólafur Stephensen yrði næsti ritstjóri Morgunblaðsins. Ólafur áaðbaki langan feril á Morgun- blaðinu þótt hann hafiá tímabili yfir- gefið blaðið og farið í almanna- tengslastörf en síðan snúið aftur. Þegar Ólafur var ráðinn ritstjóri Blaðsins/24 stunda á síðasta ári töldu sumir það vera ákveðnar þjálfunarbúðir fyrir starf Moggaritstjóra. Stjóm- endur Árvakurs virðast allavega ekki hafa orðið fyrir vonbrigð- um með árangurinn en lestur- inn slagar í 46 prósent. Svipað og hann hafði áður orðið hæstur haustið 2006 en síðan fallið mikið í miUitíðinni. ■ Það vom ekki minni tíðindi að Gunnhildur Ama Gunnarsdótt- ir verður næsti ritstjóri 24 stunda. Hún var ein lykilmanneskja í að rífa Blaðið upp haustið 2006enfyrir þann tíma hafði blaðið aldrei náð sér á strik. Gunnhild- ur var ráðin fféttastjóri f ritstjóratíð Sigurjóns M. Eg- ilssonar en þá settu yfirmenn hennar á Fréttablaðinu henni stólinn fyrir dymar og ætíuðu að reyna að halda henni í lengstu lög. Nú verður líka bið á að Gunnhildur taki við nýju starfi á blaðinu því hún verður í bam- eignarleyfi ff am í júní. Wmm ■ Skáldið með stóm meining- arnar ogyfirlýsingarnar, Eiríkur Örn Norðdahl, hafði ástæðu til að gleðjast í gær. Þá var hann verðlaunaður fyrir þýðingu sína á bókinni Móðurlaus Brooklyn eftír Jonathan Lethem. Þýðingin þykir ekki síst góð fyrir þær sakir að söguhetjan er með Tourette og því mikið um skrýtíð orðalag sem er erfitt að þýða. Annars tók Eiríkur ekld við verðlaununum í gær heldur móðir hans. Eiríkur lagði af stað til Bandaríkjanna á þriðjudag, á vit ffelsisins eins og hann orðar það sjálfur. ■ Verðlaun Eiríks Amar urðu fyrrverandi kennara hans til- efhi til að rifja upp skólagöngu hans. Hlynur Þór Magnússon kenndi Eiríki í Mennta- skólanum á fsafirði fyrir rúmum ára- tug. „Hann var latur og alltaf syfjað- ur í tímum. Sennilega hef ég verið svæfandi kennari. Það er fyrirtak. Nemendur tmfla ekki kennarann með fyrirspum- um eða kjaftagangi sín í milli þeg- ar þeir dotta, svo lengi sem þeir hrjóta ekki að ráði. Ég hafði það fyrir reglu að vekja nemendur ef þeir hmtu. Einnig hafði ég það fyrir reglu að vekja nemendur í lok kennslustunda. Fannst það sjálfsögð tillitssemi svo að þeir misstu ekki af ffímínútunum." -bþg Mikil dýfa Snemma á síðasta áratug síðustu aldar gengu Finnar í gegnum mikla kreppu, meðal annars í landbún aði. Kreppan var mjög alvarleg á þessum árum og við þær aðstæður sóttu Finnar um aðild að Evrópusambandinu. GENGUIESBIH SKUGGA KREPPU JÓHANN HAUKSSON bladamadur skrifar: johannh@dv.is „Mikla dýfu í efitahagslífi Finna í byrjun tíunda áratugarins má rekja tíl slælegrar peningamála- og hag- stjómar af hálfu stofnana sem höfðu það ábyrgðarmikla hlutverk með höndum." Þetta segir Markús Lahtinen, prófessor við háskólann í Tampere í Finnlandi. Hann heldur því ffam að aðild Finnlands að Evrópusam- bandinu árið 1995 og síðan upp- taka evrunnar árið 1999 hafi orðið til þess að endurheimta trúverðug- leika peningamála- og hagstjómar í landinu. Á ráðstefnu Alþjóðamálastofii- unar Hí fyrir um þremur missemm sagði Lahtinen að aukinn trúverð- ugleiki peningamála- og hagstjóm- arinnar væri ekki beinlínis afleið- ing af upptöku evmnnar. „Hann hvílir á pófitískri stefnu sem hefur stöðugleika að leiðarljósi og traust- um stofiiunum sem færar em um að fylgja slíkri stefiiu eftir. Svo er að sjá sem aðild Finna að sameigin- legu myntsvæði Evrópu hafi hjálpað þeim að ná vopnum sínum á ný að þessu leytí." Margt líkt með frændþjóðum Athyglisvert er að bera saman stöðu Finnlands árið 1990 við stöðu íslands nú 18 árum síðar. Snemma á tíunda áratug síðustu aldar gengu Finnar í gegnum sína mestu kreppu á síðari áratugum. Algerlega tók fyrir hagvöxt og þjóðartekjur minnkuðu um 13 prósent Ástæður vom marg- ar, sumar heimatilbúnar, þar á með- al vond peningamála- og hagstjóm. Ytri ástæður vom einnig fyrir hendi eins og fall Sovétríkjanna. Kreppan var í rauninni mjög alvarleg á þess- um árum og við þær aðstæður sóttu Finnar um aðild að Evrópusam- bandinu. Árið 1994 fengu kjósend- ur að segja álit sitt í þjóðaratkvæða- greiðslu. Aðildin var samþykkt með 57 prósentum atkvæða. Vert er að geta þess að þegar Finnar öðluðust fulla aðild að ESB 1995 höfðu þeir átt aðild að EES-samningnum um eins árs skeið ásamt íslendingum ogfleiriþjóðum. Lathinen segir að efiiahagsleg- ur ávinningur aðildarinnar hafi ekki einvörðungu ráðið afstöðu Finna á þessum tíma heldur einnig öryggis- mál og ógnun af hálfu Rússa. ESB breytti rekstrarumhverfi Síðan um miðjan tíunda ára- tuginn hefur Finnum vegnað vel í efnahagslegu tilliti. Hagvöxtur varð meiri en 3 prósent 2006 og meiri en að jafnaði innan ESB. Verðbólgan var einnig undir meðaltali ESB. Þetta þakkar Lahtínen mikilli fram- leiðni, hóflegum launahækkunum, vaxandi samkeppni innanlands og lækkandi innflutningsverði á öðru en eldsneytí. Árið 1999 tóku Finnar skrefið til fulls og tóku upp evru með aðild að EMU, sameiginlegu myntsvæði Evr- ópu, og eru þeir eina Norðurlanda- þjóðin sem hefur tekið það skref. „Hraðan vöxt í lok tíunda áratug- arins er ekki unnt að rekja alger- lega til aðildarinnar að ESB þar eð búast máttí við uppsveiflu í kjölfar kreppunnar og hastariegrar geng- isfellingar," sagði Lahtinen á áður- greindri ráðstefnu. „Vöxturinn hefði líklega orðið viðlíka með EES-samn- inginn að vopnL Hins vegar hefur ákvörðun Finna um að hverfa frá EES-samningnum og ganga í Evr- ópusambandið valdið gagngerum breytingum á efnahagslegu um- hverfi fyrirtækja. Það felst fyrst og síðast í endurskipulagningu land- búnaðarins, upptöku evrunnar og aukinni samkeppni samfara þessu tvennu." Markus Lahtinen segir að aðild að ESB hafi ekki verið dans á rósum fyrir finnskan landbúnað. Á föstu verðlagi hafi heildartekjur greinar- innar dregist saman um 34 prósent á 11 árum. En það má að stimu leyti rekja til aukins kostnaðar og tekju- samdráttar á markaði. Býlum hefur hins vegar fækkað mjög líkt og ann- ars staðar og tekjur á hvert býli hafa auldst. Þá er að nefiia að Iandbún- aðarstyrkir úr sjóðum ESB eru mikl- ir og stöðugir. „Þótt ávinningur aðildar að ESB fyrir finnska bændur sé óviss er svo mikið víst að lækkandi verð á búvör- um hefur bætt hag neytenda með lækkandi kostnaði og samsvarandi „Svo er að sjá sem aðild Finna að sameiginlegu myntsvæði Evrópu hafí hjálpað þeim að ná vopnum sínum á ný að þessu leyti." aukningu kaupmáttar" segir Lah- tinen. Niðurbrot og skapandi afl En hvað um upptöku evrunnar í Finnlandi? „Sameiginleg mynt efl- ir samkeppni. Verðmunur frá einu landi til annars verður gagnsærri og það stuðlar að aukinni samkeppni eitt og sér. Kostnaður við að halda útí sjálfstæðri mynt hverfur sem slíkur. Það greiðir fyrir verslun milli landa innan myntsvæðisins. Því meiri verslun því meiri spamaður af því að hafa sameiginlegan gjaldmið- il. Sveiflur sjálfstæðs gjaldmiðils eru dragbítur í viðsldptum." Lahtinen er hallur undir það sem kalia mætti skapandi tortímingu. „Segja má að aðild Finnlands að myntbandalagi ESB hafi leitt til eins konar skapandi niðurbrots eða tor- tímingar í efiiahagslífinu. Það blas- ir við að fyrirtækin geta ekld lengur treyst á gengisbreytíngar til að bjarga sér úr þrengingum. Þar með leitast þau við að sýna meiri fyrirhyggju en áður. Ef þau af einhverjum ástæðum glata samkeppnishæfni sinni verð- ur því ekki bjargað með gengisfell- ingu heldur breyta þau framleiðsl- umynstri sínu. En það er líka líf utan sameigin- lega myntsvæðisins," segir Lahtinen og bendir á Svía og Dani sem haldið hafa gjaldmiðlum sínum. Kreppa og afleit peningamálastjórn leiddu Finna inn í Evrópusambandið árið 1995. Þeir höfðu aðeins notið EES-samningsins í eitt ár ásamt íslendingum og fleiri þjóðum þegar þeir gengu í sambandið. Markus Lahtinen, prófessor í Tampere, segir að upp- taka evrunnar í Finnlandi árið 1999 hafi reynst drjúgur ávinningur í viðleitni til að endurheimta trúverðuga peningamála- og hagstjórn í landinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.