Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 Fréttir DV KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaöamaöur skrifar: kolbeinntipdv.is Hrukkur og grátt hár hafa ekki verið eftirsóknarverðir kostir í Holly- wood, háborg blekkinga og brellna. Litað hár og lýtaaðgerðir eru tvær þeirra leiða sem fólk reynir í baráttunni við elli kerlingu. En sumir velja þann kostinn að eldast eðlilega og með reisn, en þess ber að geta að vegna útlitsdýrkunar er það sem talið er þroskamerki á karlmönnum ekki eins vel séð þegar konur eiga í hlut. George Clooney er einn þeirra karlmanna sem gránár og er sáttur við það. 0C EÐALVIN „Hann er karlmannlegur, en afvopnar þig með vingjarnleika sínum" og saltogpipar hár, hefur hann elst eins og gott vín". Robert Kubey sem vinnur að f]ölmiðlarannsóknum tekur í sama streng. „Þessi kjálki, þessi augu. Og hann er ekki bara snoppufríður - hann er hæfileikaríkur leikari. Jafn- vel ég myndi íylgja honum á heims- enda ef hann færi fram á það, og ég hef verið hamingjusamlega giftur í fjórtán ár." Það væri gaman að sjá hann bjóða sig ffam til forseta Bandaríkj- anna, en hann hefur sagt að hann muni ekki bjóða sig fram til slíkra embætta. „Eg í framboð? Nei. Ég hef sofið hjá of mörgum konum, hef notað of mikið af fíkniefnum og ver- ið í allt of mörgum partíum," sagði Clooney og var í það minnsta ær- legur. En hvað sem því líður hefur kviknað sá orðrómur að hann hafi augastað á forsetaembættinu. Langur listi kvenna George Clooney hefur kvænst einu sinni, og skilið. Hann skildi við eiginkonu sína Talíu Balsam eftir fjögurra ára hjónaband. Hann seg- ist aldrei munu kvænast á ný og eft- ir skilnaðinn var hann orðaður við fegurðardísirnar Kristu Allen, Lisu Snowdon og Celine Balitran og hef- ur verið óstöðvandi stefnumótam- askína allar götur síðan. Hann er núna í sambandi við Söru Larson, fyrrverandikokkteil-þjónustustúlku frá Las Vegas, sem sökum aldurs gæti reyndar verið dóttir hans. Þrátt fyrir orðróm um náin kynni við leik- konurnar Lucy Liu, Renée Zellweg- er og örvæntingarfullu húsmóður- ina Teri Hatcher virðist hann leita fanga meðal almennings. Yfirlýsingar Clooneys um að hann myndi aldrei ganga í hjóna- band aftur urðu til þess að 1998 veðjuðu leikkonurnar Nicole Kid- man og Michelle Pfeiffer tíu þús- und Bandaríkjadölum að Clooney yrði kvæntur með börn árið 2001. Það þarf ekki að taka það- fram að George Clooney vann veðmálið. Lucy Liu Ein þeirra kvenna sem Clooney var bendlaður við. Lisa Snowdon Féll fyrir Clooney eftir að hann skildi við eiginkonu sína. ur að eldast, en eldast ékki. Sam- kvæmt heimildum víða að þá er það staðreynd að George Clooney, sem tvisvar sinnum hefur verið valinn „Kynþokkafyllsti karlmaður á lífi" (eins og dauðir menn búi yfir kyn- þokka) af tímaritinu People, lítur vel út. Síðastíiðin tuttugu og fimm ár hefur fengið hæstu einkunn í öllu sem talið er karlmanni til tekna í líkamlegu og andlegu atgerfi, og- virðist hafinn yfir kyn, kynþátt, trú- arbrögð, stéttir og kynhneigð. Celine Balitran Clooney hefur verið nefndur óstöðvandi stefnumóta- maskína. Ekki bara snoppufríður Þeir sem telja sig hafa vit á kyn- þokka hafa samt ekki alveg getað fest hönd á hvað það er sérstaklega sem færir Clooney gott betur en skör ofar okkur öðrum dauðlegum mönnum. „Hann er karlmannleg- ur, en afvopnar þig með vingjarn- leika sínum," sagði Janet Hargrove, prófessor við Princeton-háskólann, en hún hefur stúderað Clooney um áratugarskeið. Að hennar mati hef- ur Clooney orðið myndarlegri með árunum „með þessi hvolpaaugu Sumt fólk eldist eins og vín er stund- um sagt. Það er sönnun þess að þú ferð ekki út í búð og kaupir sjarma, aðdráttarafl og persónuleika. Að eldast með reisn er ekki öllu fólki gefið og eftir því tekið, sem dæmi má nefna Sean Connery, sem ku enn hafa aðdráttarafl þrátt fyrir að vera orðinn háaldraður. Annar mun yngri er leikarinn George Clooney, sem nú um mundir skartar gráu hári og skeggi en telur ekki eins mörg ár 'V'il og Connery. Það blessun þegar fólk gerir sér grein fyr- ir því að af tvennu illu þá er það skárri kost- Sean Connery Eldist með reisn og heillarenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.