Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. APRfL 2008
Helgarblað DV
Fjórirlögreglumerin héldu hon-
um niðri, einn lét kylfuhöggin
dynja, á meðan sá sjötti sá um
að handjárna piltinn
n
„Mérfinnstfáránlegt
að stjórnvöld geti ekki
gert neitt fyrir
vörubllstjórana og
almenning sem þarf
að kaupa eldsneyti á
himinháu verði, Það
þarf að gera eitthvað.
Mér finnst sorglegt að heyra að
lögreglan hafi beitt táragasi, kylfum og
piparúða til að halda aftur af fólkinu.
Það mætti örugglega nota aðrar
friðsamlegri aðferðir."
Einar Emil Pálsson,
27 ára bensínafgreiðslumaður
„Mérfinnst þau
æðisleg, loksins
eitthvað að gerast. Skil
samt ekki af hverju
þessir vörubílstjórar fá
sér ekki bara aðra
vinnu, efástandið er
svona slæmt. Mér
finnst að þeir ættu að beita öðrum
aðferðum. Þetta endar með þvf að þeir
fá fólk upp á móti sér. Annars fannst mér
lögreglan fullhörð við þessa peyja sem
voru að fylgjast meö þessu. Þeir voru
örugglega ekki komnir með bílpróf"
Sigurður Sigurðsson,
46 ára bóndi
„Ég er ánægður með
trukkabílstjórana. Þeir
standa sig með sóma
og kunna að koma
skilaboðum sínum á
framfæri. Mérfinnst
þeir ekki hafa gengið
of langt. Þetta eru bara
mótmæli og þau eru bara svona. Þetta
er bara hark og það þýðir ekkert að gefa
eftir. Ég ætlaði að mæta í morgun að
styðja þá en komst því miður ekki."
Sigurbjörn Viktorsson,
32 ára bílasali
„Mérfinnst þetta fínt.
Mérfinnstlélegt af
lögreglunni að beita
svona hörðum
aðgerðum. Þeir eru að
skerða rétt almenn-
ings til að mótmæla.
Þetta er ekkert
lýðræði lengur ef fólk má ekki segja það
sem því finnst. Ég hef samúð með
vörubílstjórum því þeir hafa talað fyrir
daufum eyrum í mörg ár. Mérfinnst
aðgerðir þeirra skiljanlegar."
Barði Sigurjónsson,
37árakranamaður
„Mérfinnstrangtaf
fólkinu að kasta
steinum að
lögreglunni þegar hún
eraðvinna sína vinnu.
Mér finnst aðgerðir
vörubtlstjóra
skiljanlegar enda er
olíuverð allt of hátt. Ég styð þá að vissu
leyti en ég get ekki veriö fylgjandi því að
menn kasti grjóti að lögreglumönnun-
um. Þá er of langt gengið að mínu mati."
Heiðrún Harðardóttir,
18 ára starfsmaður Bónusvideó