Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 11
PV Helgarblað
FIMMTUDAGUR 24. APRfL 2008 11
Lögreglan var grá fyrir járnum og und-
irbúin fyrir hvaö sem verða vildi vegna
mótmæla viö Rauðavatn í gær. Kylfum
og piparúða var beitt. Tíu voru hand-
teknir. DV segir frá atburðum miðviku-
dagsins og lítur einnig yfir sögu átaka
milli mótmælenda og lögreglu á íslandi
eins og Gúttóslagnum árið 1932 og mót-
mælunum á Suðurgötu árið 1921.
ÍANAHOR
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
bíaöamadur skrifar: sigtryggur@dv.is
Veggur Óeiröalögregla sýndi listir sínar á
bílastæði við Olísstöð. Ungmenni hreyttu
i þá ókvæðisorðum og hlógu.
Handtekinn Stór hluti lögregluliðs-
ins fór fyrirvaralaust af stað og
handtók þennan mann. Fjórir
lögreglumenn héldu honum í götunni
á meðan tveir gáfu sér tíma til þess að
þjarma að honum og handjárna.
„Það hefur verið
gengið alft of
langt. Auðvitað
þarf lögreglan að
reyna að hafa
hemil á mótmæl-
unum. Það er hins
vegar ekki rétt að
nota táragas til þess. Vörubílstjór-
arnir eiga mína samúð svo lengi
sem þeir, eða stuðningsmenn
þeirra, henda ekki grjóti. Mér
flnnst lögreglan hafa gengið of
langt og ég styð vörubílstjóra."
Karl Leifsson,
25 ára starfsmaður Rizzo pizza
Til harðra átaka kom á milli flutn-
ingabílstjóra og óeirðalögreglu
við Rauðavam í gærmorgun. Lög-
reglumenn beittu kylfum og valdi
óhikað við handtökur á fimm bíl-
stjórum, sem ekki höfðu orðið
við kröfum þeirra um að fjarlægja
flutningabíla sem lokuðu Suður-
landsvegi. Þegar frá leið bar minna
á bílstjórum, en hópur fólks hafði
safnast saman á bensínstöð Oh's.
Um hádegisbilið réðst lögregl-
an á ungan mann sem hafði verið
með skrílslæti, eins og Hörður Jó-
hannesson aðstoðaryfirlögeglu-
þjónn orðaði það í sjónvarpsviðtali
í gær. Fjórir lögreglumenn héldu
honum niðri, einn lét kylfuhöggin
dynja, á meðan sá sjötti sá um að
handjárna piltinn.
Tíu handteknir
Það var strax upp úr klukkan
níu í gærmorgun sem hópur flutn-
ingabílstjóra lokaði fyrir umferð
um Suðurlandsveg, skammt aust-
an Rauðavatns við bensínstöð Olís.
Lögreglulið var fljótlega komið á
vettvang og var hópurinn stærri
en áður þegar bílstjórar hafa lokað
vegum. Lögregla krafðist þess að
bílstjórarnir opnuðu fyrir umferð,
ellegar yrði gripið til aðgerða.
Bílstjórar urðu ekki við kröf-
um lögreglu, sem þá tók til við að
handtaka menn úr framvarðarsveit
bflstjóranna. Mikill hiti greip um
sig og úðuðu lögreglumenn pip-
arúða yfir nærstadda með öskr-
um og berserksgangi. Þegar DV fór
í prentun í gær höfðu tíu manns
verið handteknir, bílstjórar og aðr-
ir mótmælendur. Suðurlandsvegur
var lokaður fyrir allri umferð fram
eftir gærdeginum.
Lögreglumaður á slysadeild
Á milli klukkan eitt og tvö í gær-
dag tóku ungmenni til við að kasta
eggjum í lögreglu, sem þau keyptu
á bensínstöðinni þar sem átökin
fóru fram. Eggin höfnuðu í skjöld-
um óeirðasveitar lögreglunnar.
Fyrr um daginn var steini kastað
og hafnaði hann í höfði lögreglu-
manns sem sendur var á slysa-
deild. Haft er eftir Herði Jóhann-
essyni að piparúðanum sé beitt
til þess að komast hjá líkamlegum
átökum.
Flutningabílar voru í vegarkant-
inum og bílstjórar þeirra hvergi
sjáanlegir. Lögregla hóf þá að flytja
bílana á brott. Þeim var komið fyr-
ir á gamla strætísvagnaplaninu við
Kirkjusand. Hörður Jóhannesson
sagði í sérstökum aukafréttatíma
Sjónvarpsins að ástæða þess að
lögregla hafi farið í aðgerðir í þetta
skiptið hafi verið sú að mótmæl-
in hafi virst vera orðin stjórnlaus.
Minna bar á flutningabflstjórum
þegar leið á daginn, en ungmenni
J
heldu uppi motmælum gegn ofur-
efli þungvopnaðrar lögreglunnar.
Malarhlass a veginn
Rétt fyrir klukkan tvö í gær birtist
svo vörubílstjóri á Norðlingabraut-
inni, skammt frá þar sem mótmælin
fóru fram, og sturtaði moldarhlassi
á veginn. Lögreglan elti bílstjórann
uppi, handtók hann og lagði hald
á vörubílinn. Fleiri bílstjórar með
möl á palli komu sér fyrir í næsta
nágrenni, tilbúnir í slaginn.
Mótmælum var þó fyrst og fremst
haldið uppi af almennum borgur-
um, þar á meðal menntaskólanem-
endum, uppáklæddum í svokallaða
dimmisjón-búninga. Eggjum var
kastað í lögreglu af miklum móð,
allt þar til Olísstöðin hætti að selja
egg-
Ekki strið
Á bilinu 40 til 50 lögreglumenn
voru á svæðinu fram eftír degi.
Stór hópur sérstakrar óeirðasveit-
ar með hjálma, skildi og kylfur fór
fyrir lögreglumönnunum. Á bak
við var þéttur hópur óbreyttra lög-
reglumanna sem beið þess sem
verða vildi. Á svæðinu mátti sjá bíl
frá sérsveit ríkislögreglustjóra, sem
er vopnuð byssum. Lögreglumenn
með skotvopn var þó hvergi að sjá
á svæðinu þar sem mótmælin fóru
fram. Talið er að lögreglumenn
hafi verið um það bil jafnmargir og
motmælendumir. Hörður Jóhann-
esson ítrekar að lögreglan telji sig
ekki vera í stríði við vörubílstjórana.
Hins vegar hafi enginn þeirra viljað
taka ábyrgð á mótmælunum og því
hafi ekld verið hægt að reyna samn-
ingaleiðina.
Framhaldá
næstusíðu