Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 24. APR(L 2008
Fréttir DV
Mútubrot, sem Árni Johnsen var dæmdur
fyrir árið 2003, hefur gefið Evrópunefnd
sem vinnur gegn spillingu tilefni til að
krefjast breytingar á hegningarlögum.
Nefndin vill að lög um mútubrot nái einn-
ig til þingmanna og vill herða refsingar.
Jeinnig til þingmanna, „en strangt
til tekið hafa engin mál verið rekin
gegn kjörnum fulltrúum almenn-
ings á íslandi" eins og segir í skýrsl-
unni.
Opinberir fulltrúar GRECO hefur
sérstakar áhyggjur af mögulegri
spillingu í tengslum við einkavæðingu
hér á landi og óeðlilegum tengslum
opinberra fulltrúa við viðskiptahags-
muni á almennum markaði.
í nýrri skýrslu á vegum nefndar Evr-
ópuráðsins (GRECO), sem vinnur
gegn spillingu í aðildarlöndunum,
eru mútubrot talin einkennilega fá-
tíð hér á landi.
Sérstaklega er til þess tekið að
aðeins einn dómur hafl fallið vegna
mútubrota síðastliðin tíu ár hér á
landi, en það var í máli Árna John-
sen, þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Árið 2003 var Árni meðal ann-
ars dæmdur fyrir að fara ffam á og
þiggja 650 þúsund króna mútur sem
formaður byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins. í skýrslunni segir að
nefndarformaðurinn og þingmað-
urinn hafi verið dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi í héraðsdómi
en Hæstiréttur hafi þyngt dóminn
í tveggja ára fangelsi. „í heimsókn-
um okkar til íslands vegna skýrslu-
gerðarinnar kom á daginn að hann
hafði verið kjörinn alþingismaður á
ný,“ segir í skýrslunni.
Sérffæðingar GRECO-nefnd-
arinnar vekja einnig athygli á því
að viðmælendur í hópi íslenskra
embættismanna og sérffæð- i
inga séu ekki á einu máli um J
hvortgildandihegningarlög JH
nái til þingmanna held-
ur aðeins til embættis-
manna og annarra op- Jn
inberrastarfsmanna. JÆ
I>ví er lagt til að að ^H
ákvæðum íhegn- jÆ
ingarlögum Æk
verði breytt
og tekin af
tvímæli JáS
um að H
Þau Æ
Æá
Reynsluleysi ákæruvalds og
dómstóla
í heildina telur GRECO-nefndin
að reynsla lögreglu og ákæruvalds
við að rannsaka og meðhöndla
spillingarmál á við mútubrot sé
mjög lítil og þjálfun þar af leiðandi
ábótavant. Aðeins eitt mútumál í
opinberu starfi á tíu árum gefi vís-
bendingar um þetta. { skýrslunni
segir berum orðum að viðtöl við
embættismenn og sérfræðinga hafi
leitt í ljós að reynsluleysi dómstóla
í meðferð slíkra mála og skortur á
rannsókn slíkra mála valdi því aug-
ljóslega að túlkun íslenskra við-
mælenda á grunnþáttum mútu-
brota sé mjög mismunandi og
stundum mótsagnakennd. Sérstak-
lega hafi þetta átt við um það hvort
íslensk hegningarlög nái til mútu-
brota alþingismanna.
Nefndarmenn GRECO hlýddu
á íslenska viðmælendur leggja
áherslu á að umburðarlyndi
með mútubrotum væri
ekkerthérálandi,
en smá-
vægilegar gjafir teldust ekki falla
undir mútubrot. GRECO-nefndin
spyr sig því hvað teljist stórar eða
litlar gjafir og beinir þeim tilmæl-
um til íslenskra stjórnvalda að þau
taki af öll tvímæli um það í lögum
hvað teljist meiriháttar og minni-
háttar gjafir og hvar mörkin yfir í
alvarleg mútubrot liggi.
unni. Þetta sé undarlegt því í skýr-
ingum með hegningarlögunum sé
íjallað um þörfina á að koma í veg
fýrir það tjón sem mútubrot á al-
mennum markaði geti valdið eðli-
legri samkeppni auk þess félags-
lega skaða sem þau valda. Ekki síst
með tilliti til þess að mikilvæg sam-
félagsleg starfsemi hins opinbera
hefurverið einkavædd.
Líkt og í skýrslu sinni um ísland
fyrir fjórum árum staldrar GRECO
enn við þá staðreynd að málarekst-
ur vegna mútubrota er nær óþekkt-
ur hér á landi. Nefndin telur, líkt og
þá, að þetta geti stafað af andvara-
leysi íslenskra stjórnvalda; telji þau
sjálf spilhngu vera litla' sem enga
séu þau heldur ekki líkleg til þess að
grípa til aðgerða til þess að ganga úr
skugga um hvort það eigi við rök
að styðjast. Þetta sé áhyggjuefni í
ljósi þess að nefndinni hafi borist
til eyma að möguleg spilling fari
vaxandi á fslandi í tengslum við
einkavæðingu og útrás.
„íheimsóknum
okkar til íslands vegna
skýrslugerðarinnar
kom á daginn að hann
hafði verið kjörinn
alþingismaður á ný"
Vill þyngri refsingu
GRECO-nefndinni þykir einnig
viðurlög við mútubrotum lítil á ís-
landi og mælist til þess að refsing
verði þyngd. Hegning fyrir mútu-
brot sé til dæmis minni en fyrir fjár-
svik, fjárdrátt og misbeitingu valds
þar sem hámarksrefsing er sex ára
fangelsi.
Þá þykir nefiidinni undarlegt að
refsing fyrir mútubrot á íslenskum
einkamarkaði sé vægari en refsing
fyrir mútubrot manna í opinberu
starfi. „Af þessu mætti álykta að
mútubrot á einkamarkaði séu ekki
eins alvarleg og meðal manna í op-
inberu starfi, en það gengur þvert á
þann skilning sem er að finna í
Evrópusáttmálanum um
H^H^^ varnir gegn spill-
ingu," segir í
- T-^r- skýrsl-
gegnsæi og hamli gegn spillingu.
Þvert á móti geti fámennið haft í
för með sér aukna hættu á frænd-
hygli og nánum tengslum miUi op-
inberrar stjómsýslu og viðskipta-
hagsmuna á almennum markaði.
Þannig hafi íslenskir fjölmiðlar
greint frá einstökum slíkum gmn-
semdum á undanförnum mánuð-
um.
íslendingar gerðust aðilar að
GRECO, samvinnu ríkja innan Evr-
ópuráðsins gegn spillingu, árið
1999. Stjómvöld staðfestu Evrópu-
sáttmálann um lög gegn spilling-
arbrotum árið 2004 án fyrirvara.
GRECO-nefiidin veitir stjórnvöld-
um frest til 31. október á næsta ári
til að bregðast við athugasemdum
hennar. Björn Bjamason, dóms-
málaráðherra lagði fram minnis-
blað á fundi ríkisstjórnarinnar 15.
apríl síðastliðinn. Á minnisblað-
inu er ekkert að finna um mál Áma
Johnsen og ástæður þess að
GRECO vill að hegningarlög gegn
mútubrotum nái einnig til alþing-
ismanna.
Merki um aukna spillingu
GRECO er alls ekki sömu
skoðunar og margir íslensk-
ir viðmælendur nefndarinnar,
að fámenni
þjóðarinn-
ar tryggi
Arni Johnsen Árni
er eini maðurinn hér
á landi sem dæmdur
hefur verið fyrir
mútubrot á síðustu
tíu árum. Það þykir
GRECO einkennilegt.
Alþingishúsið GRECO telur
óhjákvæmilegt að taka af öll tvímæli
um að hegningarlög nái einnig til
þingmanna varðandi mútubroL
JÓHANN HAUKSSON [
blaðamadur skrifar: johanr í hifpdv.is *
r»i
LMj
r-Ær m>. '
mW ~~ ''' ' -v.. r. rn_ “■ M *>dk’\ '.aigff-