Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008
HelgarblaB DV
MENNTAÐISIGTIL
FORSÆTISRAÐHERRA
Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa einungis menntun sem samsvarar stúdentsprófi, þau Jóhanna
Sigurðardóttir og Kristján L. Möller. Fjármálaráðherra er dýralæknir, iðnaðarráðherra er með doktors-
gráðu í lífeðlisfræði og utanríkisráðherra hefur numið bókmennta- og sagnfræði. Birgir Guðmundsson
stjórnmálafræðingur segir reynslu vega þungt þegar kemur að hæfni til að stjórna ráðuneytum.
BALDUR GUÐMUNDSSON
bladamaöur skrifar baldur<§>dv.is
„Almennt séð gildir það um alla
háskólamenntun að hún nýtist
mönnum sem þjálfun í ákveðni
aðferðarfræði og nálgun á hlutum.
Dýralæknisffæðimenntun Arna M.
Mathiesen fj ármálaráðherra þ arf ekki
endilega að vera vondur bakgrunnur
fýrir stjórnanda, svo dæmi sé tekið.
Það er þó að því gefnu að hann kunni
að notfæra sér aðganginn sem hann
hefur að öllum sérff æðingum sem eru
í fjármálaráðuneytinu," segir Birgir
Guðmundsson stjórnmálafræðingur
við Háskólann á Akureyri.
Tveir með stúdentspróf
Þegar rennt er yfir þá menntun
sem íslenskir ráðherrar hafa, kemur
í ljós að tveir af tólf ráðherrum ríkis-
stjómarinnar hafa menntun sem
samsvarar stúdentsprófi. Það em
þau Jóhanna Sigurðardóttir, sem
hefur verslunarpróf ffá Verzlunar-
skóla íslands og Kristján L. Möller
samgönguráðherra sem hefur próf
ffá fðnskóla Siglufjarðar og kennara-
próf frá íþróttakennaraskóla íslands.
Birgir segir Jóhönnu ekki endilega líða
fýrir það að hafa ekki próf úr háskóla.
„Auðvitað hefði hún grætt á því að
hafa farið í háskóla. Hún var hins
vegar lengi flugfreyja og var þess utan
í forsvari fyrir flugffeyjufélagið. Hún
hefúr ákveðin bakgrunn reynslulega.
Hún er ekki með þessa formlegu
þjálfún sem hún gæti hjálpað henni
í starfi en hefur hins vegar mikla
reynslu úr skóla lífsins," segir Birgir
en bætir því við að hann sé með því
ekki að gera lítið úr háskólamenntun.
Hún gagnist öllum.
Góð menntun Geirs
„Mér sýnist Geir einfaldlega
hafa verið að mennta sig til forsætis-
ráðherra. Menntunin hans er
hvom tveggja almenns eðlis, auk
þess að vera nátengd því fagsviði
sem hann fæst við ffá degi til dags.
Hann er með mjög fína menntun,"
segir Birgir. Geir H. Haarde nam í
Bandaríkjunum á áttunda áratugn-
um. Hann hefur BA-próf í hagffæði,
MA í alþjóðastjómmálum og MA í
hagfræði. „Menntunin nýtist honum
vafalaust vel," segir Birgir. Hann
segir að Einar K. Guðfinnsson sé
einnig vel menntaður. „Einar K. er
náttúrulega með stórkostíega mennt-
un í alla staði. Hann er með BA próf í
stjómmálaffæði ffá Essex, eins og ég,"
segir Birgir hlæjandi en þeir Einar
vom skólabræður í Englandi. „Einar
hefur mikinn bakgmnn í málum sen
snúa að sjávarútvegi. Menntunin
gagnast honum almennt séð en
í praktíkinni mun háskóli lífsins
gagnast honum betur í einstökum
viðfangsefnum," segir Birgir.
Ingibjörg með öfluga
samstarfsmenn
Birgir segir að sagn- og
bókffæðimenntun Ingibjargar
Sólrúnar komi henni ágætíega
þó það myndi vissulega hjálpa
henni meira að hafa lært eitthvað
í utanríkisfræðum. „Það gildir
hins vegar sama um hana og Ama
Mathiesen. Hún er með mjög öflugt
lið í kringum sig sem hún ætti að geta
Markvisst nám „Mér sýnist Geir einfaldlega
hafa verið að tnennta sig til forsætisráðherra,"
segir BirgirGuðmundsson stjórnmálafræð-
ingur um menntun forsætisráðherra.
„Það er hins vegar óvíst hvort djúp þekking á
kynlífi laxa gagnist honum í iðnaðarráðuneytinu/
notfært sér vel. Menntun Ingibjargar
er ágætís bakgrunnsmenntun
og gefur henni fi'na yfirsýn yfir
heimsmálin," segir Birgir og bætir því
við að lögffæðimenntun Þorgerðar
Katrínar og Björns Bjamasonar komi
þeim eflaust að góðum notum í starfi,
eins og öllum sem starfa við íslenska
pólitík.
Upp á sérfræðinga kominn
Guðlaugur Þór Þórðarsson
heilbrigðisráðherra er einn þeirra
sem hefði notið góðs afþví að nema
fag sem tengist hans ráðuneytí.
„Hann er í mjög erfiðu fagráðuneyti.
Það væri gott fyrir mann í hans
stöðu að hafa einhverja menntun
á heilbrigðissviði. Þetta er mjög
sérhæft ráðuneyti og það háir honum
kannsld að hafa hvorki menntun né
mikla reynslu úr geiranum. Hann er
örugglega töluvert upp á sérfræðinga
kominn," segir Birgir. Kristján Möller
samgönguráðherra er með menntun
sem samsvarar stúdentsprófi. „Hann
er með sérhæfða menntun á öðru
fagsviði en því sem hann fæst við ffá
degi til dags. Hans menntun nýtíst
honum líklega ekki eins vel og sumra
annarra." Sömu sögu er að segja
um Þórunni Sveinbjarnardóttur
umhverfisráðherra. Það kæmi henni
eflaust vel að hafa einhverja náttúru-
tengda gráðu eða innsýn í raunvísindi
að mati Birgis.
Kynlíf laxa
Birgir segir að í sumum tilfellum
geti verið ágætt fýrir ráðherra að
hafa ekki of djúpa þekkingu á öllum
málum ráðuneytisins. „Það væri
örugglega kostur fýrir Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra ef hann
hefði viðsldptafræðimenntun. Það
getur hins vegar líka verið kostur að
standa aðeins fýrir utan málaflokkinn,
eins og Björgvin gerir. Björgvin er
með BA próf í sögu og heimspeki
og það nýtist honum örugglega vel
almennt, þó það hjálpi honum lítið
í almennum málum," segir Birgir og
bætir því við að sama gildi um Ossur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
en hann er með doktorsgráðu í
lífeðlisffæði. Ráðuneyti hans sé í sjálfu
sér mjög á skjön við menntunina.
Löng háskólaganga hjálpi hins vegar
mönnum í flestum málum sem þeir
fást við. „Það er hins vegar óvíst hvort
djúp þekking á kynlífi laxa gagnist
honum í iðnaðarráðuneytinu," segir
Birgir í léttum tón.
Þegar menntun allra 12 ráðherra
íslands er tekin saman kemur í ljós
að þeir hafa eina doktorsgráðu, sex
mastersgráður eða sambærilega
menntun við mastersnám, og sjö BA-
gráður. Stundum er erfitt að skilgreina
nám þeirra nákvæmlega en svo virðist
sem þeir hafi 14 háskólagráður. Geir
hefur mestu menntunina, eins og
áður hefur komið ffam, en Jóhanna
Sigurðardóttir og Kristján L. Möller
eru minnst menntuð íslenskra ráð-
herra.
ISLENSKIR RAÐHERRAR
Geir H. Haardeforsætisráðherra BA-
próf í hagfræði frá Brandeis-háskóla,
1973. MA-próf í alþjóðastjórnmálum
frá Johns Hopkins-háskóla, 1975. MA-
próf í hagfræði frá Minnesota-
háskóla, 1977. Allt frá Bandaríkjunum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra BA-próf i sagnfræði
og bókmenntum Hl 1979. Cand.
mag.-nám í sagnfræði við HÍ1981-
1983.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra
Embættispróf í dýralækningum frá
háskólanum i Edinborg 1983. Próf i
fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla
1985.
Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra Embættispróf í
lögfræði Hl 1993.
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra BA-próf í sögu og heimspeki
HÍ1997.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra BS-próf í líffræði Hí 1979. Dr. í
lífeðlisfræði frá East Anglia, Englandi,
1983.
Guðlaugur Þór Þórðarsson
heilbrigðisráðherra BA-próf í
stjórnmálafræði HÍ 1996.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
Embættispróf í lögfræði frá H( 1971.
Hdl. 1979.
Einar K. Guðfinnsson sjávar- og
landbúnaðarráðherra BA-próf i
stjórnmálafræði frá háskólanum í
Essex, Englandi, 1981.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra BA i stjórnmálafræði frá
Háskóla Islands 1989 og MA í
stjómmálafræði frá Johns Hopkins
University árið 1990.
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra Próf frá Iðnskóla Siglufjarðar
1971. Kennarapróf frá (þróttakennara-
skóla íslands 1976.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra VerslunarprófVI 1960
DANSKIR RAÐHERRAR
Forsætisráðherra Anders Fogh
Rasmusen MA i hagfræði.
Utanríkisráðherra Per Stig Möller Dr.
í heimspeki.
Fjármálaráðherra Lars Lökke
Rasmussen MA í lögfræði
Menntamálaráðherra Bertel
Haarder Lauk námi í stjórnmálafræði,
með fræði Grundtvig's sem aðalgrein.
Viðskipta- og iðnaðarráðherra
Bendt Bendtson Reynsla af lögreglu-
störfum auk menntunar í bókhalds-
og viðskiptahagfræði.
Heilbrigðisráðherra Jakob Axel
Nielsen MA í lögfræði
Dómsmálaráðherra Lene Espersen
MA í hagfræði
Sjávar- og landbúnaðarráðherra Eva
Kjer Hansen Viðbótarmenntun i
blaðamennsku.
UmhverfisráðherraTroels Lund
Poulsen Lauk ekki stúdentsprófi
Samgönguráðherra Carina
Christensen MS í viðskiptafræði og
tungumálum
Félagsmálaráðherra Karen
Jespersen MA i sagnfræði og
fornleifafræði