Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Qupperneq 59
PV Helgarblað
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 59
Hljómsveitin Strigaskór nr. 42 var
stofnuð árið 1989 í bflskúr í Kópavogin-
um af fjórum fjórtán ára félögum, Ara
Þorgeiri, Kjartani, Gunnari og Hlyni.
Hljómsveitin spilaði eðalrokk og sendi
frá sér eina breiðskífu sem nefndist Blót.
Sama ár og platan kom út eða árið 1994
lagði sveitin upp laupana. Hljómsveitin
átti svo glæsta endurkomu á Airwaves-
hátíðinni á síðasta ári og á x-mas tón-
leikum útvarpsstöðvarinnar x-ins 977.
Á þeim tíma voru einhver loforð á kreiki
um nýja plötu sem ætti að koma út árið
2008. Enn hefur þó ekkert bólað á plöt-
unni og aðdáendur sveitarinnar halda
enn í vonina um aðra plötu ff á rokkur-
unum í Strigaskóm nr. 42.
Sveitin var stofnuð sumarið 1988 af
þeim Þorvaldi Bjama, Eyþóri Amalds og
Andreu Gylfa en þau kynntust í Tónlist-
arskóla Reykjavíkur á þeim tíma. Tod-
mobile gaf út 8 plötur áður en hún hætti
störfum 1994. Það vom plötumar Tod-
mobile sem kom út árið 1990 og Spillt
sem kom út 1993 sem náðu mestum
vinsældum. Sveitin kom svo aftur saman
1996 en hætti svo aftur störfum.
Ánð 2003 kom Todmobile svo aft-
ur saman og tók upp sín vinsælustu
lög ásamt Sinfoníuhljómsveit fslands.
Hljómsveitin hélt síðan nokkra tónleika
svo sem í Laugardalshöll, Reykjavík-
urhöfn á Menningarnótt og tók þátt í
Kaupþingstónleikunum á Laugardals-
velli.
STRIGASKOR NR. 42
TODMOBILE
MEZZOFORTE k ' V u
Mezzoforte varstofauð árið 1977 og náði sveitin fyrst íslenskra hljóm-
sveita verulegum arangri erlendis árið 1983 með Iagi sínu Garden Party sem
hStö l3gaVÍða ^heimÞað ár- AUargötursíðanhefmsveitin
SSSSf?°Jb/e-A Um heimhui’ en ,ítið sem ekkert hefur verið um
afslandl- A Siðasta án áttu Mezzoforte-menn hins vegar þrusu-
S. ‘ f tilefni «f tuuugu to
SYKURMOLARNIR
Eða The Sugarcubes eins og
sveitin hét á ensku var stofnuð
árið 1986. Björk Guðmundsdóttir
var söngkona sveitarinnar en í
Sykurmolunum voru einnig Einar
Öm Benediktsson, Sigtryggur
Baldursson, Þór Eldon, Bragi
Ólafsson, Margrét Ömólfsdóttir og
Einar Melax. Sveitin hætti störfum
árið 1996 þar sem meðlimir hennar
stefndu allir í sitt hvora áttina en
Sykurmolcimir hafa ætíð verið virtir
um allan heim fyrir tónlist sína.
í nóvember 2006 kom sveitin
síðan óvænt saman á ný til að
fagna 20 ára afmælisútgáfu fyrstu
plötu sinnar. Tónleikarmr voru
haldnir í Laugardalshöll en þrátt
fyrir frábærar móttökur og mikinn
áhuga hyggst sveitin ekki spila á
fleiri tónleikum eða taka upp nýtt
efni.
HLJÓMAR
Ein ástsælasta hljómsveit íslands fýrr og síðar og oftar en ekki verið kölluð íslensku Bítlamir. Sveitin var stofhuð
árið 1963 af yngstu meðlimum hljómsveitarinnar. Þeim Guðmundi Ingólfssym, Gunnan Þórðarsym, Etnan
Júh'ussyni og Frlingi Bjömssyni. Þeir fengu svo til liðs við sig Eggert BMstinsson og Rúnar Julíusson.
Sveitin náði gífurlegum vinsældum áður en hún lagði upp laupana árið 1969 og nokknr meðlumr hennar stofa- s-
uðu Trúbrot sem einnig náði miklum vinsældum. Árið 2003 komu Hljómar saman a ny og heldu tonleika í Aus
bæbarsem forseti oe forsætisráðherra vom meðal gesta. Tilefiiið var að 40 ár voru liðrn fra stofnun sveitarmnar.
EGÓ
Bubbi stofnaði Egó ásamt Berg-
þóri bróður sínum árið 1981. Sveit-
in gaf út plötuna Breyttir tímar árið
1982 og sló hún rækilega í gegn og
seldist eins og heitar lummur. Sveit-
in gaf síðan út í mynd sama ár og
Egó 1984. Sveitin leystist svo upp
skömmu seinna og meðlimir henn-
ar fóm sínar eigin leiðir. Árið 2001 ,,
kom Egó saman aftur og gerði plöt-
una f Upphafi Skyldi Endinn Skoða.
Árið 2004 tók sveitin síðan
saman á ný og voru fyrstu i>
tónleikar sveitarinnar á Þjóðhátíð í
Vestmanneyjum. „Við lítum ekki á
þetta sem „kombakk" heldur emm
við að byrja aftur," sagði Bubbi
um endurkomuna í samtali við
Morgunblaðið.