Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008
Helgarblað PV
íjninningu
Ástn Lovisu
Ásta Lovísa lést úr
krabbameini fyrir
tæpu ári Allur ágóöi af
sölu bókarinnar Þriöji
hver rennurtil barna
baráttukonunnar.
Bókin Þriðji hver Qallar um ferðalag sonar
um sögu og vísindi krabbameins. Ágóði bók-
arinnar mun renna til barna baráttukon-
unnar Ástu Lovísu sem lést úr krabbameini
í maí á síðasta ári.
Ásta Lovísa Bloggaði
opinskátt um baráttu sína
við krabbamein.
Nýlega kom út bókin Þriðji
hver eða One In Three.
Bókin, sem fjallar um ferða-
lag sonar um sögu og vís-
indi krabbameins, hefur vakið mikla
athygli um víða veröld. Ekki engöngu
fyrir þær sakir að hún fræðir lesand-
' ann um sjúkdóminn dularfulla held-
ur fer hún í gegnum mannlegu hlið-
ina, óttann og áfallið sem fylgir því
að greinast með krabbamein. Það er
fleira merkilegt við þessa bók en 111-
ugi Jökulsson, útgefandi bókarinn-
ar hér á landi, hefur ákveðið að láta
ágóða bókarinnar renna til barna
Ástu Lovísu Vilhjálmsdóttur heit-
innar sem tapaði hetjulegri baráttu
sinni við krabbamein í maí á síðasta
ári. Ásta lét eftir sig þrjú börn.
Aðdáunarvert viðhorf
Ásta Lovísa bloggaði opinskátt
um veikindi sín og hikaði ekki við
að deila tilíinningum sínum með
lesendum, það gerði hún þó ekki til
að fá samúð heldur var þetta henn-
ar leið til að fá útrás í þessari erfiðu
baráttu. Styrkur Ástu Lovísu var ein-
stakur og jákvætt viðhorf hennar í al-
varlegum veikindum sínum var að-
dáunarvert. Ásta kom fram í hinum
ýmsu viðtölum og miðlaði hún því til
okkar hinna að við ættum að njóta
lífsins í stað þess að kvarta og kveina
undan smámunum. Það mikil áhrif
hafði hún á samfélagið að tímaritið
ísafold útnefndi hana íslending árs-
ins árið 2006.
Engin svör
Opinská saga Ástu Lovísu á því
eflaust margt sameiginlegt með
umræddri bók. Hún er skrifuð af
leikstjóranum og blaðamanninum
Adam Wishart í kjölfar þess að faðir
hans greindist með krabbamein. Eft-
ir að faðir leikstjórans greindist með
krabbamein gekk honum afar erfið-
lega að finna bókmenntir sem svör-
uðu grundvallarspurningum hans
um sjúkdóminn og hvaða þýðingu
það hefði að fá sjúkdóminn. Hann
vildi vita hvað það væri sem gerði
sjúkdóminn svo erfiðan viðfangs
eins og raun ber vitni og hversu nærri
lækningu við erum.
Átakanleg orð Ástu Lovísu
sem birtust á bloggsíðu
hennar þegar hún átti
skammt eftir ólifað:
„Það er sártað vita aðmeð þessu
áframhaldi og efekkert fer að
gerast til að draga úr þessari
hröðu þróun er vitað mál að ég á
ekki langt eftir. Mér finnst það
virkilega sárt og ég er virkilega
hrædd. Núna líður mér eins og ég
séaðkafna og það sé ekkert sem
geti hjálpað mér að ná andanum
aftur. Úffff... Ég hata stöðu mlna í
lífinu núnal“
Saga sjúkdómsins rakin
í bókinni fjallar Wishart ítarlega
um sjúkdóminn og læknavísindin,
hann rekur sögu sjúkdómsins langt
aftur og þróun hans til dagsins í dag.
Hann útskýrir á mannamáli hvað
krabbamein er og eru eflaust margir
sammála því að þörf hafi verið á bók
sem þessari. Eins og titill bókarinnar
gefur til kynna fær þriði hver krabba-
mein á lífsleiðinni og er bókin skrif-
uð með það í huga að hjálpa fólki
að skilja sjúkdóminn betur. Ekki má
gleyma þeim sem standa við bakið á
krabbameinssjúklingunum en margt
nytsamlegt er að finna í bókinni fýr-
irþá.
Einstök bók
Útgefandinn Illugi Jökulsson
þekkti Ástu Lovísu ekki persónu-
lega en það er auðheyrt á honum að
saga hennar hefur snert hann djúpt.
Ákvað hann því eins og áður seg-
ir að láta ágóða bókarinnar renna
til barna hennar. Hann segir bókina
einstaka að því leyti hve mannleg og
einlæg hún er í bland við vísindin á
bak við sjúkdóminn.
Eins og flestir vita getur kost-
að töluverð fjárútlát að berjast við
krabbamein. Ásta Lovísa þurfti á dýr-
um lyfjameðferðum að halda og tók
það verulega á fjárhag fjölskyldunn-
ar. Sett var af stað söfnun og lögðu
margir hönd á plóg til að hjálpa Ástu
Lovísu og fjölskyldu hennar.
Þrjú börn
Þótt baráttukonan Ásta Lovísa sé
fallin frá þýðir það ekki að baráttunni
sé lokið. Hún skildi eftir sig þrjú ynd-
isleg börn sem enn eru ung að aldri.
Þau eru eflaust umvafin ást og um-
hyggju eftirlifandi foreldra sinna og
ættingja en vissulega þarf að tryggja
þeim góða framtíð. Framlag Illuga
Jökulssonar til barnanna er rausn-
arlegt og ættu fleiri að taka sér svona
lagað tii fýrirmyndar, margt smátt
gerir jú eitt stórt.
Falleg en erfið kveðjustund
Ásta Lovísa snerti marga í baráttu
sinni við sjúkdóminn og mættu á
milli fimm hundruð til sex hundruð
manns í útför hennar sem fram fór
fram frá Hallgrímskirkju.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, faðir
Ásm Lovísu, sagði í viðtali að útför-
in hefði verið gullfalleg og mjög vel
heppnuð. „Þetta var eins og maður
óskaði sér. Presturinn Þorvaldur Víð-
isson stóð sig frábærlega og ekki er
heldur hægt að sleppa því að minn-
ast á Pál Óskar Hjálmtýsson. Hann er
einstakur listamaður á heimsmæli-
kvarða og söngur hans fullkomn-
aði þessa fallegu en jafnframt erfiðu
stund," sagði Vilhjálmur að lokum.
kolbrun@dv.is