Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 64
Helgarblaö DV ^4 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 Frábært meðlæti Hvort sem þú grillar fisk eða steykir læri í ofninum er einstaklega gott að bera fram bakað rótargrænmeti með. Skerið niður sætar kartöflur, kartöflur og gulrætur og setjið í eldfast mót Saxið einn hvítlauksgeira og blandið við. Setjið vel af olíu yfir og kryddið með salti, pipar, oregano og kanil. Bakið í ofni í þrátíu til fjörutíu mínútur við 180 gráðu hita. Frábært meðlæti sem á við með flestum mat. U mj ó n: Ko I b r ú n P. Helgadóttir. N etf a n g kolbrun@dv.is 0 0 Góð grillráð Grillilmurinn hefur teygt anga sína yfir heilu hverfm síðastliðnar helgar enda viðrað vel að undanförnu. Þið sem ekki eruð búin að dusta rykið af grillinu ykkar aettuð að drífa í því. Á heimasíðu Nóatúns má finna ýmis skemmtileg ráð sem gott er að hafa í huga þegar grillað er. Nauðsynlegt er að hreinsa grillflöt áður en ný máltíð er grilluð. — Gott er að nudda hálfum lauk eftir heitum grillteinunum rétt áðuren byrjað er að grilla. Þetta gefur aukið bragð af matnum og ómótstæðilegur ilmur sem fyllir loftið eykur enn frekar á stemninguna. Einnig er gott aö binda rósmaringreinar upp (pensil og láta marinerast ( ólífuolíu. Pensla síðan grillið fyrir grillun með rósmaríngreinunum. Best er að strjúka kryddlöginn af matnum áður en hann er settur á grillið þv( það erfyrst og fremst lögurinn sem brennur. Svo má ef til vill pensla matinn aftur með leginum áður en hann er tekinn af grillinu. En tryggið samt sem áður góðan hita á kryddleginum ef hann er penslaöur aftur á steikina. Notið grilltöng til að snúa steikinni á grillinu ffekar en gaffal því hann skilur eftir sig göt í kjötinu og þá er llklegra að kjötið verði þurrt Þegar grilla á fisk með roði skal alltaf láta roðhliðina snúa fyrst upp því hún heldurfiskinum saman þegar honum er - snúiðvið. Ekki sakar heldur að nota þar til gerðar fiskgrindur. Ef kjötið er keypt frosið eða tekið út úr frysti þarf að gaeta þess að það hafi náð að þiðna til fulls áður en það er sett á grilliö. Kjöt sem er enn frosið eöa ískaft í miðju grillast oft ójafnt og haett er við að það brenni að utan áöur en það nær að hitna nægilega í gegn. Það er af mörgu að taka í glæsilegu tölublaði Gestgjafans þennan mánuðinn og spilar fiskur þar stórt hlutverk. Þessa fersku og flottu uppskrift er kjörið að gera á góðum sumardegi.Tilvalið er að leyfa börnunum að taka þátt í gerð réttarins með því að tína hundasúrurnar. • 400 g bleikja, skorin í strimla • 1/2 dl límónusafi • 1/3 dl hvítvínsedik • 1/2 dl olía • 1/2 tsk. worchestershire-sósa • 1 msk. hunang • lOhundasúrur, skornar í strimla • Salt • Nýmalaður pipar Setjið allt saman í skál og geymið í kæli í 10 mínútur. HUNDASÚRUSÓSA: • 2 dl hundasúrur, smátt saxaðar • 1 eggjarauða • 1 msk. sítrónusafi • 1 msk. hvítvínsedik • 1 msk. sykur • Salt • Nýmalaður pipar • 2 dl olía Setjið allt nema olíu í matvinnslu- vél og maukið vel í 5 mín. Hellið þá olíunni saman við í mjórri bunu og látið vélina ganga á meðan. Látið kryddlöginn drjúpa af fisk- inum og berið hann fram með sós- unni, salati og góðu brauði. Forstöðumaður Gufunessgarðs grefur lamb „Fyrir mörgum árum fórum við hjónin að fikta við að grafa kjöt með svipuðum hætti og norski graflaxinn er verkaður. Og nú er svo komið að grafið lamb með hvítri sósu er ómissandi hluti af stórveislum hjá vinum og vandamönnum," segir Heimir Bjöm Janusarson, matgæðingur vikunnar, sem býður upp á grafið lamb. „Þar sem ég er forstöðumaður í kirkjugarði fannst mér það vel við hæfi." Grafið lamb Verkunaraðferðin er í raun sáraeinföld. Á fjóra innanlærisvöðva þarf bolia af sykri og bolla af salti, svartan nýmulinn pipar í ómældu magni og viilijurtakryddblönduna frá Pottagöldmm. Fyrst blanda ég pækilinn og finn til fat með 2-3 cm háum kanti. Svo er að þekja botninn á forminu með pæklinum, leggja vöðvana þar ofan á og dreifa síðan afganginumyfir þannig að ekki sjái í kjötið. Því næst er fatinu pakkað vel inn í plast og komið fýrir í kulda. (Ég set þetta alltaf út á svalir.) Ofan á fatið er sett einhvers konar lok eða trébretti sem hvílir á kantinum á fatinu og svo ofan á lokið er sett þungt farg (ég á sérstakan hleðslustein úti á svölum sem notaður er við þessi tældfæri og raunar mörg önnur). Kjötið þarf að liggja í pæklinum undir fargi í allavega sólahring. Þá er hveijum vöðva fýrir sig pakkað í plast og þeir settir í frysti. Þar verða þeir alveg að fá að frjósa í gegn áður en þeir em skomir næfurþunnt og bomir fram sem forréttur, nokkrar sneiðar á mann með góðu salati og hvítri sósu. Hvíta sósan (einhvern veginn svona) • % búnt af steinselju • 3-4 hvítlauksrif • 1 dl. Sweet relish frá Heinz • 1 dós af 10% sýrðum rjóma • 3-4 msk. mayones. Sett í matvinnsluvél og hmfurinn látinn ganga vel og lengi. Ef svo ólíklega vill til að afgangur verði af óskomum grafriingi er tilvalið að skera hann í 2-3 cm þykkar sneiðar og þurrka hann, annaðhvort í matarþurrkara eða í ofni með blæstri en engum hita. Útkoman er eins konar lamba „jerky" eða ah'slenskur smalamatur sem hentar einkar vel sem nesti í útilegum eða snakk með sjónvarpinu. „Ég skora á Svetlönu Kab- alinu, sem situr meö mér í hverfisráöi Vesturbœjar, aö vera nœsti matgœöingur. Ég hef mikla trú á aö Svetlana, sem er Rússi, komi meö nýja vídd í íslenska eldhúsiÖ' TASTE IN THE WEST IMDIAN LUNCII ÍNDIAN DINNER INDIAN - PAKISTANI CUISINE AUSTURSTRÆTI 4, Tel: 551 0292 , www.shalimar.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.