Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 2008
Fréttir DV
íslandsmet
hjá KFÍ
Unglingaflokkar KFÍ settu
íslandsmet um helgina þegar
þeir skoruðu úr 10.000 snið-
skotum. Markmiðið var að skora
körfurnar á sem stystum tíma
og setja þannig nýtt íslandsmet.
Á endanum náðu krakkamir að
setja metið á þeim glæsilega tíma
tveim tímum, fimmtíu og níu
mínútum og fimmtíu og fimm
sekúndum. Samkvæmt kfi.is
var það Sunna Smrludóttir sem
skoraði síðustu körfima og voru
krakkarnir rétt að hitoa þegar
hún var skoruð.
Bensín nálgast
200 krónur
Stóru olíufélögin hafa hækkað
verð á bensíni hjá sér upp í 170,4
í sjálfsafgreiðslu. Kostar Útrinn
nú heilar 179 krónur með þjón-
ustu. Algengt verð á h'tranum
á dísilolíu er í sjálfsafgreiðslu
186,80 krónur, 191,80 með þjón-
ustu. Er þetta hækkun upp á 6
krónur á bensínlítranum og um
7 krónur á dísillítranum. N1 var
síðasta stóra oh'ufélagið sem
hækkaði verðið hjá sér en áður
höfðu Skeljungur og Olís hækkað
verð.
Sluppu við
refsinqu
Héraðscfomur Suðurlands
hefur sakfellt tvo menn fyrir lík-
amsárás en fallið frá því að refsa
þeim sérstaklega vegna þess
hversu mikið rannsókn málsins
dróst á langinn. Tvö ár liðu frá
árásinni þar til ákæra á hend-
ur mönnunum var gefin út án
nokkurra skýringa á þeim drætti
málsins að mati dómsins. Hinum
ákærðu var aftur á móti gert að
greiða allan sakarkostnað máls-
ins sem og tæpar 390 þúsund
krónur í miskabætur tíl manns-
ins sem ráðist var á.
Af framburði vitna taldist
sannað að hinir ákærðu hefðu
nefbrotíð fómarlamb sitt.
MetaðsókníHA
f ár var metaðsókn í Háskól-
anum á Akureyri. Alls bámst
rúmlega 900 umsóknir frá ný-
nemum og vom það tæplega
200 fleiri en árið áður. Mesta
aðsóknin var að viðskipta- og
raunvísindadeild eða rúmlega
300 manns. Þorsteinn Gunnars-
son, rektor skólans, segir þenn-
an mikla áhuga vera gleðiefni.
„Gæði náms við Háskólann á Ak-
ureyri em alþjóðlega viðurkennd
og nemendur leita að námi sem
þeir geta byggt ffamtíð sína á,"
segir Þorsteinn.
Haett störfum Sólveig Eiríksdóttir
er andlit Himneskrar hollustu. Hún
starfar þar þó ekki lengur eftir að
Biovörur keyptu lager og
vörumerkiö af rekstrarfyrirtæki
Himneskrar hollustu.
„Auðvitað hefur mað-
ur áhyggjur afþví.
Þetta er ekki til að
styrkja vörumerkiði'
vömr Himneskrar hollustu. Ný-
keyptur lager með myndinni verð-
ur seldur en óvíst er hvort Sólveig
prýðir þær vömr sem framleiddar
verða í ffamtíðinni. Það er eitt fjöl-
margra atriða sem enn á eftir að
semja um vegna kaupanna.
Áhyggjur af vörumerkinu
Aðspurður hvort gjaldþrota-
skiptin komi til með að skaða vöm-
merki Himneskrar hollustu segir
Ingimar: „Auðvitað hefur maður
áhyggjur af því. Þetta er ekki til að
styrkja vörumerkið."
Markmið Biovara er að nýkeypt
merki verði hluti af stórri og öfl-
ugri heildsölu með heilsuvörur en
meðal þeirra merkja sem Biovömr
hafa á sínum snæmm er NOW sem
framleiðir ýmiss konar bætiefni og
er selt víða í apótekum, matvöm-
búðum og heilsubúðum. Alls selja
Biovömr nú á þriðja þúsund vöm-
númer.
Þrætti fyrir rekstrarerfiðleika
Til stóð að heildsala Biovara og
Himneskrar hollustu sameinaðist
í ársbyrjun. f ffétt DV í maí sagði
Hjördís Ásberg hjá Biovörum hins
vegar að ekkert yrði af þeirri sam-
einingu og að sú ákvörðun hefði
verið tekin eftir að slæm rekstrar-
staða Himneskrar hoUustu varð
ljós. Þá hafði verið tekin ákvörðun
um að hætta sölu á fersku salati.
Eh'as var þó á öðru máli og sagði
þá við DV að sameiningin yrði líkt
og áður hafði verið ákveðið. Beiðni
um gjaldþrotaskiptí fyrirtækisins
sýnir þó annað.
Við vinnslu fréttarinnar náð-
ist hvorki tal af Elíasi né Sólveigu.
Símanúmer sem þau em skráð fyr-
ir em bæði lokuð og samkvæmt
heimUdum DV em þau erlendis.
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladomaöur skrifar: erk ug.dv.is
Gjaldþrotaskiptabeiðni rekstrar-
fýrirtækis Himneskrar hoUustu var
tekin fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í lok síðustu vilcu. HeUdsalan
Biovömr sem sérhæfir sig í heUsu-
vörum hefur keypt vörumerki
Himneskrar hollusm ásamt lager
fyrirtækisins af þrotabúinu. Ingi-
mar Ingimarsson, framkvæmda-
stjóri Biovara, segir að þær vör-
ur sem nú em seldar undir merki
Himneskrar hollustu verði áfram á
markaði.
Salatið var banabitinn
DV sagði frá því fýrir þremur
vikum að sölu á fersku salati und-
ir merld Himneskrar hollustu hefði
verið hætt. Elías Guðmundsson,
þáverandi ffamkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, sagði af því tilefni að
sala á salati hafi ekki staðið undir
sér og reynst fyrirtækinu dýrkeypt
með hækkandi gengi krónunnar,
enda salatið innflutt.
19. maí sagði Eh'as í samtali við
DV að engir rekstrarerfiðleikar
væm tU staðar hjá Himneskri holl-
ustu og engar frekari breytingar
fyrirhugaðar.
Ingimar segir að hvorki Eh'as
né Sólveig Eiríksdóttir, fýrrverandi
ráðgjafi fýrirtækisins, muni starfa
hjá Biovörum.
Mynd af Sólveigu prýðir einmitt
Dómstólar hafa til meðferðar beiðni um gjaldþrotaskipti rekstr-
arfyrirtækis Himneskrar hollustu. Aðeins eru þrjár vikur síðan
Elías Guðmundsson þvertók fyrir rekstrarerfiðleika fyrirtækis-
ins en hann var þá framkvæmdastjóri. Heildsalan Biovörur hef-
ur keypt bæði lager og vörumerki Himneskrar hollustu og verða
vörurnar áfram seldar i verslunum.
HIMNESKI
H0LLUSTA
Nýir eigendur Vörumerkið
Himnesk hollusta verður áfram
við lýði. Þó á eftir að semja um
hvort andlit Sólveigar prýði þær
vörur sem framleiddar verða
undir vörumerkinu í framtíðinni.
A HAUSIN
hihhJ5*
OUllSÍ*
Gengisbreytingar hafa áhrif á slökkvilið Akureyrar:
Spilliefnagámur hækkar um milljónir
Smíði spilUefnagáms á Akureyri
hækkaði um tt'ær milljónir vegna
gengisbreytinga en samkvæmt upp-
lýsingum formanns framkvæmda-
ráðs Akureyrar, Helenu Þuríðar
Karlsdótmr, var erindinu vísað tíl
bæjarráðs. Það var slökkviliðsstjór-
inn Þorbjörn Haraldsson sem fór
fram á fjárveitinguna.
Það var í haust sem slökkvilið
Akureyrar fékk úthlutað fjármagni
samkvæmt fjárlögum bæjarins til
þess að smíða spilliefhagáminn.
Síðan þá hafa orðið gn'ðarlega mikl-
ar breytingar á gengi krónunnar og
svo virðist sem áhrifin nái víða.
„Ástandið hefur víðtæk áhrif,"
segir Helena en ffamkvæmdaráð
samþykktí kaup á gámnum fýrir sitt
leyti. Leyfi til þess að smíða gám-
inn fékkst á síðasta ári en þá var
gert ráð fýrir að gámurinn myndi
kosta minna, eða um ellefu milljón-
ir króna.
„Við gerðum engar athugasemdir
og vísum því erindinu til bæjarráðs,"
segir Helena um framhald málsins
en bæjarráð tekur afstöðu til máls-
ins sem síðan verður lagt fýrir bæj-
arstjórn til samþykktar.
Slökkvilið Akureyrar hefur einn-
ig fengið nýja sjúkrabifreið tíl um-
ráða en það er Benz-sjúkrabifreið
og var hún innréttuð á Ólafsfirði.
Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu
slökkviliðsins er innréttíngin frá-
brugðin þeirri gömlu en fagnefnd
sjúkraflutningamanna vann að nýrri
hönnun sjúkrarýmis þessarar nýju
bifreiðar. Megintílgangur þeirrar
vinnu var að gera sjúkrarýmið ör-
uggara og vinnuvænna fýrir sjúkra-
flumingamenn sem og sjúklinga.
valur@dv.is