Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 2008
Neytendur DV
DÍSILOLÍA HÆKKAR
OF HRATT
„Nú þegar maður sér lítrann á dísilolíu
hækka svona hratt fer maður að velta fyr-
ir sér hvort maður þurfi ekki að fara að fá
sér rafmagnsbíl," segir Úlfar Finnbjöms-
son matreiðslumaður.„Hann er líka svo
lítill að það tekur því varla að finna stæði
fyrir hann. Maður getur næstum tekið
hann með sér inn í búðina."
„Börn eru áhrifagjarnari neytendur og því eiga sérstök lögmál aö gilda fyrir þau,“ seg-
ir í lagatillögu frá umboðsmanni barna og talsmanni neytenda sem lögð var til í hring-
borðsumræðum hagsmunaaðila um neytendavernd barna. Samkvæmt tillögunni ætti
meðal annars að hætta að selja sælgæti á kassa og banna auglýsingar í barnatímum í
sjónvarpinu.
„Við erum með
þrjármegin-
áherslur."
BORNUM HLÍFT
VIÐAUGLÝSINGUM
■ Lofið fær Litla
Kaffistofan á
Hellisheiði.
Viðskiptavinur kom
á staðinn með
Lastið fær
Quizno's fyrir -Jjp
rándýrar samlokur.
Viðskiptavinur sem W
ætlaði að fá sér einn slíkan
skyndibita á bensínstöð
hætti snarlega við þegar
■■pHM hann
HlNi II verðlistann. Til eru
þrjár stærðir og
kostar stærsti
báturinn meira en 1.600 krónur. Það
er dýr samloka með áleggi.
Vinningshafar
dagsins
Eftirfarandi eru vinningshafar 6.
júnf 2008 í leiknum DV gefur
milljón. Þau hlutu í verðlaun tfu
þúsund króna inneign (Bónus. DV
óskar þeim innilega til hamingju.
Anna Friðbjört Joensen
Arnór Kristinsson
Jóhanna Kristinsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
Þórarinn Jónsson
164,40 IIIIKSlN 179,80 IIÍNKL
Sprengnandi 162,70 IIENSlN 178,20 UÍSEL
Q Sk&riiU 162,90 IIP.NNÍN 178,20 lllNPI.
s Craforvogi 160,60 it i:\sIn 176,10 UÍSEL
5 OS Baróastööum 160,70 IIENNlN 176,20 DtSEI.
ftihmúla 162,70 UF.NSÍN 178,20 llfNPI.
jjjy Sldjmíí 162,50 IIF.NNÍN 178,30 DÍSEL
höfuðverk og bað
um vatnsglas og verkjatöflu. Það var
minna en Iftið
mál að bjarga
þvf og var
bllferð
viðskiptavinarins bjargað. Heimilis-
leg og góð þjónusta.
Nýlega voru haldnar hringborðs-
umræður fimmtíu fulltrúa hags-
munaaðila um neytendavernd
barna. Þar komu fram tillögur um
hvernig auglýsingum eigi að vera
háttað til barna. Sumar tillögurnar
voru umdeildar og hefur samráðs-
tíminn verið lengdur fram í ágúst í
þeim tilgangi að ná sem mestri sátt.
Einnig að fá sem flesta samstarfs-
aðila með í átakið.
Þrjár áherslur
„Við erum með þrjár megin-
áherslur í þessu," segir Gísli
Tryggvason, talsmaður neytenda.
„f fyrsta lagi er miðillinn sérstak-
lega áhrifamikill eins og sjónvarp-
ið er gagnvart yngstu börnunum. f
öðru lagi er það vettvangurinn eins
og skólastarfsemin en þar ættu börn
að vera óáreitt. í þriðja lagi einbeit-
um við okkur að innihaldinu en
það á ekki að höfða til barna." Gísli
segir að sátt ríki í umræð-
unum um skóla-
kaflann þar sem
flestir eru á sama
máli eftir hring-
borðsumræð-
urnar. Hins veg-
ar er hugmyndin
um að takmarka
sælgæti við kassa
og algjört bann
við auglýsingum á
barnatímum um-
deild.
Samráðstíminn
lengdur
Gísli segir að
samráðstíminn
hafi verið lengd-
ur fram í ágúst. f ljósi þess að sum-
ar tillögurnar voru umdeildar og að
vonast er eftir fleirum í samstarf-
ið var ákveðið að lengja frestinn.
Hann segir einnig mikilvægt að al-
menningur kynni sér efnið. „Það er
ekkert að því að fólk viti að tillög-
urnar séu til og að það myndi sér
skoðanir. Það getur verið að ýmis-
legt vanti eða að gengið hafi verið
of langt í einhverjum efnum," segir
Gísli og bendir á að tillögurnar eru
birtar til umsagnar á vef talsmanns
neytenda og öllum aðgengilegar.
„Við erum búin að ná til sem flestra
en við viljum fá sem mesta sátt um
reglugerðina."
Eftirfylgnin skiptir öllu
„Okkur finnst við vera að fara
af umræðuplaninu og yfir á að-
gerðaplanið," segir Gísli. Hann tal-
ar um að eftirfylgnin muni koma til
með að skipta öllu máli. Það kem-
ur bæði í hlut almennings og fjöl-
miðla en þeir geta skipt gríðarlegu
máli og fagnar Gísli mjög aukinni
neytendaumræðu í miðlum lands-
ins. Hann segist einnig vonast til að
sjá einstök fyr-
irtæki lýsa yfir
stuðningi sín-
um með því að
fylgja reglunum.
„í grófari tilvik-
um má búast við
gagnrýni frá okk-
ur og hefur kom-
ið fram sú ágætis
hugmynd að fastur
samráðsvettvagnur
um neytendavernd
barna verði gerð-
ur að árlegum við-
burði," segir Gísli.
Tillögumar eru
aðgengilegar á
i vefsíðunni www.
talsmadur.is.
Leikskólabörn Eru áhrlfagjörnustu
neytendurnir og þurfa því meira aðhald.
SÆLGÆTI BANNAÐ VIÐ
KASSA f tillögunni segir
að banna ætti að selja
sælgæti við kassa í búðum.
Ferðin í gegnum flugvöllinn getur verið ansi dýr:
SPARNAÐUR Á FLUGVELLINUM
I.OF&LAST
■ TAKTU MEÐ ÞÉR NESTI
Notaðu það sem til er f ísskápnum. Maður
er að fara í frí og þarf hvort sem er að
henda mat. Ávextir, samlokurog lokaðir
drykkir eru sniðugur matur. Auk þess er
gott að hafa með sér hnetur og þurrkaða
ávexti. Það gefur mikla orku.
Borðaðu áður en þú ferð:
Ef maður er saddur þarf maður ekki að
kaupa sér rándýran mat á flugvellinum.
■ DREKKTU VATN FYRIR FLUGIÐ
Vatnið á flugvellinum er mjög dýrt og ekki
má fara með það f gegnum tollinn. Þar sem
vatn er nauðsynlegt í flugi er best að
drekka eins mikið og þú getur áður en þú
ferð af stað að heiman. Gott er líka að hafa
með sérvatnsbrúsa og drekka á leiðinni. Þá
er líkaminn fullur af vatnsbirgðum. Þeir
sem verða þyrstir í fluginu þurfa þá
eingöngu að kaupa vatn í flugvélinni í stað
þess að þurfa gera það á flugvellinum llka.
■ TAKTU LESEFNI AÐ HEIMAN
Vertu búinn að ákveða hvaða blöð eða bók
þig langar að lesa nokkru áður en þú ferð í
ferðalagið. Það er óþarfi að kaupa heilt
blað á þúsund krónur sem maður les einu
sinni. Þú getur líka geymt eitt tímarit
þangað til þú ferð í flugið.
■ EKKI KAUPA ÓÞARFA
Ef þú vilt endilega kaupa þér eitthvað á
flugvellinum vertu þá búinn að skipuleggja
kaupin. Hægt er að sjá verð á vörum á
vefnum. Maður á það til að missa sig á
meðan verið er að bíða eftir fluginu.
Snyrtivörur eru í sumum tilfellum ódýrari í
útlöndum en á flugvellinum og því gott að
athuga. Kaupa þá vörurnar á leið heim úr
fríinu séu þær ekki hagstæðari. Það er einn-
ig staðreynd að sælgæti er ekki ódýrara en
í stórmörkuðum.
■ KOMDU EKKI OF SNEMMA
Það eru meiri líkur á að maður eyði meiru
ef maður hefur of mikinn tíma á
flugvellinum. Skipuleggðu tímann þannig
að þú getir nokkurn veginn gengið beint
út í flugvél. Bara passa sig að vera ekki of
seinn. Það gæti orðið dýrkeyptara.
J