Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Page 17
PV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 10.JÚNI2008 17
Næstum1-0 RuudVan
Nistelroy missti jafnvægið
í gullnu marktækifæri í
upphafi leiks.
MANCHESTER UNITED KVARTAR Manchester United hefur
sent FIFAformlega kvörtun vegna aðfara Real Madrid að Cristiano
Ronaldo en David Gill, stjórnarformaður Manchester United, segir
félagið hafa nálgast leikmanninn á ólöglegan hátt þar sem hann
sé samningsbundinn félaginu. Fregnir hafa verið uppi um að Cristi-
ano Ronaldo hafi ekki svarað símtölum frá Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóra United, en forráðamenn félagsins hafna öllu slíku.
Ronaldo sagði fyrir nokkrum dögum að hann gæti vel hugsað sér
að spila fýrir Real Madrid og skvetti þar með olíu á eldinn varðandi
sögusagnir þess efnis að hann sé að fara til Real Madrid.
ÓVÆNT BOÐIBENDTNER Fregnir herma að Liverpool sé við það að þjóða óvænt 6 millj-
ónir punda í danska framherjann Nicklas Bendtner sem leikur með Arsenal. Rafa Benitez ku
vera spenntur fyrir Dananum sem veitir aukna möguleika framarlega á vellinum. Bendtner
var fyrir nokkru talinn meðal efnilegustu framherja Evrópu en hann hefur ekki alveg náð að
standa undir þeim væntingum og hefur þess vegna ekki spilað mikið í byrjunarliði Arsenal.
Ekki er talið að Arsene Wenger sé áfjáður í að selja kappann þar sem Eduardo da Silva og
LESTUNÚNA SPORTIÐÁ 01415/
i laugardag fvrsti ís-
l: og vann sinn fyrsta
kílóa beljaki tileink-
‘St í síðustu viku.
SIGURVEGARI Skuli
fagnar sigri á meðan Caleb
Nelson stendui vígalegur
en hníptur í sinu horni.
Þá segir ennfremur að það hafi
hreinlega ekki verið nóg því Skúli væri
einfaldlega betri boxari og kynni „vís-
indin" eins og það er orðað mun bet-
ur. „Nelson var sterkur en hann ógn-
aði mér ekkert," sagði Skúli við blaðið
eftir bardagann.
Fékk borgað og er að
taka kennsluréttindi
Skúli er nú eini Islendingurinn
með skráðan atvinnubardaga. „Ég
fékk smá summu fyrir sigurinn," sagði
Skúli léttur við DV í gær. Skúli skart-
ar nú árangri sem hljóðar upp á einn
sigur, ekkert tap og eitt rothögg og fer
þvível af stað. Skúli erþó ekki einung-
is að hugsa um að keppa þessa dag-
ana. „Ég er að læra að kenna amer-
ískt box líka. Ég mun Ijúka öðru stigi í
því fljótlega," sagði Skúli Ármannsson
hnefaleikakappi við DV að lokum.
Hollendingar gerðu sér lítið fyrir og rúlluðu ítölum upp, 3-0, i „dauðariðlinum“:
Heimsmeistararnir niðurlæqðir
Margir efuðust um samheldni og
getu Hollendinga fyrir EM 2008 en
engin ástæða er til að efast um þá ef
tekið er mið af frábærum leik þeirra
gegn ftölum. 3-0 sigur Hollendinga
var sannarlega sanngjarn og gam-
an var að sjá hve djarfir Hollending-
ar mættu til leiks. Leikur þeirra þótti
heldur varnarsinnaður í riðlakeppn-
inni en allt slíkt var fjarri í gær þar
sem léttleikandi sóknarleikur fékk að
njóta sín.
Eftir fjörlegar upphafsmínútur
kom það í hlut markahróksins Ruuds
Van Nistelroy að koma Hollending-
unum yfir. Markið var heldur vafa-
samt þar sem endursýningar sýndu
að Nistelroy var klárlega rangstæður
þegar hann stýrði skoti frá Sneijder í
markið. ftalir mótmæltu en markið
stóð engu að síður.
Fimm mínútum síðar eða á þrí-
tugustu mínútu komust „appelsín-
urnar" tveimur mörkum yfir. Dirk
Kuyt gerði vel þegar hann skailaði
knöttinn á Wesley Sneijder sem sneri
boltanum glæsilega ffamhjá Buffon
sem kom engum vörnum við. ftal-
ir voru í losti en reyndu að sækja og
þeim til hróss verður að viðurkenn-
ast að þeir hefðu vel getað skorað
mark í fýrri hálfleik eftir nokkrar góð-
ar tilraunir.
Eðlilega reyndu ftalir að sækja í
síðari hálfleik. Pressan var nærri því
að skila sér en Edwin Van Der Saar,
markvörður Hollendinga, sýndi
trekk í trekk hvað í hann er spunnið
og varði allt sem á markið kom.
Fyrirsjáanlega voru það Hollend-
ingar sem skoruðu þriðja markið.
Góð sókn þeirra endaði með því að
Dirk Kuyt sendi knöttinn fýrir á að-
vífandi Van Bronkost sem skallaði
boltann í netið með viðkomu í varn-
armanni. Hollendingar ærðust af
fögnuði á meðan Roberto Donadoni,
þjálfari ftala, starði stjarfur í vantrú á
það sem var að gerast. Liðið var al-
gjörlega lánlaust og sama hvað það
reyndi á lokasprettinum. Knötturinn
vildi ekki inn.
„Ég veit ekki hvort þetta var versti
leikur liðsins undir minni stjórn. f
fyrri hálfleik voru Hollendingar ekki
betri en við . Við byrjuðum vel en
mistökin voru okkur dýrkeypt og við
fengum á okkur tvö mörk. Eftir það
var þetta erfitt," sagði Donadoni nið-
urlútur eftir leik.
Annað hljóð var í hollenska fram-
herjanum Dirk Kuyt sem lagði upp
tvö mörk. „Frá byrjun vorum við
staðráðnir í að standa okkur. Þeir eru
heimsmeistarar með mjög gott lið
skipað frábærum leikmönnum. En
við gáfum allt í þetta og úrslitin voru
frábær," sagði kampakátur Kuyt.
vi'dar@dv.is
MOLAR
GUNNAR KOMINN HEIM
Körfuknattleiksmaðurinn Gunnar
Stefánsson hefur ákveðið að snúa
aftur heim til Keflavíkur og leika með
liðinu í lceland
Express-deild-
inni á næstu
leiktíð. Gunnar
eruppalinn
Keflvíkingurog
hefúr leikið með
Keflavíkalla
tíð að síðustu
tveimurárum
undanskild-
um. Hann skipti yfir í KR 2006, færði sig
svo til Hauka en lék með Ármanni í 1.
deildinni á síðasta tímabili. Gunnar er
10. leikjahæsti leikmaður Keflavíkur ffá
upphafi en hann á að baki 377 leiki fyrir
félagið. Hann gerir þriggja ára samning
við (slandsmeistarana.
SlÐASTA TÆKIFÆRIÐ
Jón Arnór Stefánsson og félagar (ítalska
körfuknattleiksliðinu Lottomatica Roma
mæta Siena í fjórða leik úrslitanna um
meistaratitilinn þar (landi (kvöld. Siena
leiðir einvígið 3-0 og þarf aðeins einn
sigur til að tryggja sér meistaratitilinn.
Roma-menn verða þv( að vinna í kvöld
ætli þeir ekki að láta sópa sér úr úrslit-
um án þess að vinna leik. Jón Arnór lék
vel í þriðja leik liðanna og skoraði 8 stig
á þeim 25 mínútum sem hann spilaði.
Roma leiddi með 12 stigum í hálfleiken
Siena vaknaði heldur betur í seinni hálf-
leik og vann með átta stigum að lokum.
NÖFNIN A MAKEDÓNSKU
Athygli vakti þegar (sland lék gegn
Makedónfu (fyrri leiknum um laust
sæti á HM hvernig makedónsku sjón-
varpsmennirnir birtu nöfn liðsmanna
Islands. Heimamönnum var nokk sama
þótt eitthvert
annað land sem
talarekki þeirra
tungumál hefði
keypt útsend-
ingu frá leiknum
og þeir höfðu
alla stafi á make-
dónsku.Vignir
Svavarsson á
makedónsku
er það eina sem hægt er að stafa en
hann heitir CBABAPCOH á því ágæta
tungumáli. Þá voru önnur nöfn með
stöfum sem strik fóru f gegnum og leit
nafri landsliðsþjálfarans, Guðmund-
ar Guðmundssonar, út eins og gáta (
Tinnabók.
HEIL UMFERÐ (1. DEILD
Liðin sem varspáð uppaf öllum fyrir
mót mætast í kvöld þegarVíkingur
tekur á móti (BV (Víkinni í 1. deildinni í
kvöld. Gengi liðanna við upphaf móts
hefur þó verið svart og hvítt en Eyja-
menn tróna á
toppi deildar-
innarmeðfullt
hús stiga og
hafa enn ekki
fengið á sig
mark.Víkingur
situr(5.sæti
með 7 stig,
búinn að tapa
tveimur leikjum
og gera eitt jafntefli. Spútniklið Selfoss,
sem er (2. sæti deildarinnar, tekur á
móti Stjömunni heima en Selfyssingar
hafa komið öllum að óvörum og eru ta-
plausir eftir 5 umferðir. I öðmm leikjum
kvöldins mætast Fjarðabyggð og Leikn-
ir á Eskifirði, KA tekur á móti KS/Leiftri á
Akureyri, Víkingur Ólafsvík leikur heima
gegn Þór og Njarðvtk sækir Hauka heim
að Ásvöllum.
GENGUR LÍTIÐ í KEFLAVÍK
Keflavík lagði KR í Landsbankadeild
karla í fyrradag með fjórum mörkum
gegn tveimur. I síðustu tíu deildarleikj-
um liðanna I Keflavík hefur KR aðeins
tvisvar sinnum náð sigri í Keflavík.
Það var árið 1999 þegar Guðmundur
Benediktsson og Bjarki Gunnlaugsson
skoruðu(3-1 sigriVesturbæingaog
2002 skoraði núverandi landsliðsþjálf-
ari kvenna, Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
sigurmark KR suður með sjó.