Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚN(2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og ReynirTraustason, rt@dv.ls
FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Janus Sigurjónsson, janus@dvJs
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.ls
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Ásmundur Helgason, asi@blrt!ngur.ls
DREIFINGARSTJÓRI:
Jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7040.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaösins eru hljóðrituö.
SAIVDKORN
■ Oft er talað um að í góðæri
eigi að minnka umsvif ríkisins
en auka þau þegar þrengir að
til að mæta
atvinnu-
leysi. Nú er
hins vegar
að heyra að
ríkisstjórn-
in hyggist
jafnvel slá af
byggingu há-
tæknisjúkra-
húss og lagningu Sundabrautar
vegna kreppunnar. Guðmund-
ur Gunnarsson, formaður Raf-
iðnaðarsambandsins, undrast
þetta. Hann spyr á bloggsíðu
sinni hvort samgönguráðherr-
ann Kristján Möller hyggist þá
slá afVaðlaheiðargöngin eða
stoppa af Siglufjarðargöng í til-
efni kreppunnar, en téð göng
eru í kjördæmi hans.
■ Jukob Ilrafnsson er ungur
fiamsóknarmaður sem hefur
þótt lfldegur til að verða næsta
ungstirni flokksins. Jakob er
bróðir Björns Inga Hrafnsson-
ar, sem þótti vænlegasti fram-
tíðarleiðtogi flokksins áður en
hann hætti vegna innanbúðar-
átaka. Nýjasta tillaga Jakobs er
hins vegar umdeild. Hann vill
leysa umferðarvandann með
því að niðurgreiða leigubfla.
Öðrum þykir óiíklegt að bílum
fækki þótt fólk taki leigubíl f stað
einkabfls.
■ Ef marka má Orðið á götunni
þá eru átök í uppsiglingu innan
Ríkisútvarpsins. Félag frétta-
manna vill veglegar launahækk-
anir í samræmi við ofurlaun
Páls Magnússonar útvarps-
stjóra sem er með 1,6 milljónir
króna á mánuði. Þá er Þórhall-
ur Gunnarsson, dagskrárstjóri
Sjónvarps, með um 800 þús-
und krónur
á mánuði
eins og Séð
og Heyrt
upplýsti en
Sigrún Stef-
ánsdóttir,
dagskrár-
stjóri Út-
varpsins,
er með um 80 þúsund krón-
ur lægri laun sem væntanlega
kristallar jafnréttisstefnu stofn-
unarinnar. Öðrum stjórnend-
um er ætlað að þiggja rúm 30C
þúsund á mánuði og um það
snýst ólgan.
■ Vefritið Vísir undir ritstjórn
Óskars Hrsafns Þorvaldssonar
á það til á köflum að fara mik-
inn í fréttum og jafnvel skúbba
þegar um grynnri mál er að
ræða. Þeir sátu þó illilega eftir
þegar dv.is upplýsti á laugardag
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
myndi segja sig frá leiðtoga-
hlutverkinu og Hanna Birna
Kristjánsdóttirtaka við. Fréttdv-
,is er tímasett kl. 15.48. Nokkru
síðar dúkkaði upp samhljóða
frétt á Vísi og einhverjum til
undrunar var hún tímasett kl.
15.35 en þá stóð enn yfir fund-
ur þar sem Vihjálmur kynnti
ákvörðun sína.
Lögregluofbeldi
LEIDARI
REYNIRTRAUSTASON RITSTJORISKRIFAR.
Áríöandi er ad almenningiir vakli ofbeUlisseggina
Sú stórhættulega
'þróun hefur átt sér
stað að sífellt fleiri
dæmi eru um að
Iögregluþjónar grípi til til-
gangslauss ofbeldis og nið-
ist á borgurum. Dæmið um
lögreglumanninn sem tók
ungan mann kverkataki í
verslun 10-11 var sláandi
og lýsandi fyrir hugsunar-
hátt sem þrífst innan lög-
reglunnar. Þrír lögreglumenn ruddust inn á heimili á Akranesi og
beittu þar hiirku með þeim tækjum sem þeir höfðu yfir að ráða.
Tilgangurinn var að ná í húsráðanda til að gefa skýrslu vegna at-
burðar sem varð nokkrum dögum fyrr. Hinn handtekni fékk ekki
að sjá heimild lögreglunnar til þess að rjúfa friðhelgi heimilisins.
Nýjasta dæmið um ofbeldisáráttu lögreglumanna var á Patreks-
firði á sjómannadaginn þar sem ungur sjómaður var úðaður með
táragasi af því að hann vildi eldd leggjast í jörðina. Myndband sýn-
ir að hann var ekld ógnandi við lögreglumennina heldur hörfaði.
Gaslöggan við Rauðavatn, sem í sýnilegum tryllingi úðaði á mót-
mælendur, er orðin landsfræg fyrir framgöngu sína.
Lögregluyfirvöld verða að
taka af ákveðni á málum
sem þessum og fyrirbyggja
að undirmenn þeirra komi
óorði á alla stéttina með
tilgangslausum árásum á
borgara. En eftir höfðinu
dansa limirnir og það er
líklega borin von á með-
an siðleysingi á borð við
Harald Johannessen situr
í stóli rikislögreglustjóra.
Þá er ólíklegt að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra geri
neitt í þessum málum. Ráðherrann ber ábyrgð á ríkislögreglu-
stjóra og er ákafur talsmaður þess að stjórna með hörku frem-
ur en mildi. Það undirstrika draumar hans um stóra sérsveit
eða jafnvel herlið sem notað verði til að berja niður borgarana.
Þegar þessum tveimur mönnum hefur verið komið frá emb-
ættum er von um að böndum verði komið á ofbeldislöggur. Það
liggur í starfsheitinu lögregluþjónn að honum er ætlað að vera í
þjónustu almennings en ekki að þjóna eigin hvötum til valdbeit-
ingar. Áríðandi er að almenningur vakti ofbeldisseggina og komi
á framfæri upplýsingum um brot þeirra.
ÓLAFS-SYNDRÓMIÐ
SVARTHÖFÐI
T
göfuglyndi Vilhjálms sem hjó loks
á hnútinn.
Þáttur flokksformannsins Geirs
H. Haarde í þessari afferu allri
er kostulegur en raðklúður
flokksins í borginni
hafa grafið hressi-
lega undan hug-
myndum fólks
um að Geir búi
yfir einhverjum
leiðtogahæfi-
leikum. Hann
talaði íjálglega um
stórmennsku Vilhjálms að
leysa krísuna með eftirgjöf um helg-
ina. Stórmennskan er þó ekki sprott-
in af neinu öðru en neyð og fjölda
skoðanakannana sem hafa sýnt ótví-
rætt að borgarbúar hafha Vilhjálmi
sem framtíðarleiðtoga. Borgarbú-
ar hafa að vísu einnig hafnað Ólafi
F. Magnússyni sem leiðtoga sínum
en hann þarf ekki að sýna neina
Eftir endalausan vandræða-
gang og klúður leystu sjálf-
stæðismenn í Reykjavík odd-
vitakrísu sína um helgina þegar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lét loks
þau boð út ganga að hann myndi
eftirláta Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur borgarstjórastólinn á næsta
ári. Þessi niðurstaða hefur í
raun verið óumflýjanleg frá
því Hanna Birna sýndi
ótvíræða leiðtogahæfi-
leika í fjöldamótmæl-
unum á pöllum borg-
arstjórnar fýrr á árinu.
Þar sveifluðust Ólafur F.
Magnússon og Vilhjálm-
ur eins og lauf í vindi, skít-
hræddir við baulin í mótmæl-
endum á meðan Hanna Birna sýndi
karakter, sussaði á liðið og sveiflaði
hamrinum án þess þó að missa sig
og siga lögreglu á múginn. En meg-
intilgangur mótmælenda var að
sjálfsögðu að espa nýjan borgar-
stjórnarmeirihluta til frekari ill-
verka og helst ofbeldis.
Þótt Hanna Birna hafi haft
hemil á sér í hringiðu mót-
mælanna og hafi ótvírætt
sýnt fram á það síðustu
mánuði að ef einhver
innan borgarstjórn-
arflokks Sjálfstæð-
isflokksins sé með
fulla fimm þá sé
það helst hún er alls
óvíst að hún geti haft
stjórn á þeirri sundur-
lausu og ringluðu hjörð
sem Vilhjálmuir hefur nú
loks eftirlátið henni. Sjálf-
stæðismennirnir í Reykjavík
eru svolítið eins og Rómverjarn-
ir hans Steinríks forðum. Þeir eru
„klikk". Vita ekkert í sinn haus og
hafa ítrekað keyrt sjálfa sig, flokk-
inn og borgina í þrot í grímulausu
valdabrölti knúnu áfram af eigin-
girni og óbilgirni.
Hanna Birna er nú í lítt öf-
undsverðu hlutverki Ses-
ars og þótt allir brosi og
Gísli Marteinn sé ljúfur sem lamb
glampar á rýtingana og alls óvíst að
allir í þessari fordæmdu herdeild
sundrungarinnar muni una þess-
um málalyktum. En það er víst
óviðeigandi að ræða málin á
þessum nótum nú þegar línan
hefur verið lögð úr Valhöll og
öllum ber að fagna í einum kór
stórmennsku og stíga af stalli. Hann
er þar ekki á eigin ábyrgð heldur
sjálfstæðismanna. En auðvitað er
óviðeigandi að ræða stöðu Ólafs á
þessum tímapunkti.
*
Olafur innleiddi hugtakið
„óviðeigandi" í borgarpól-
itíkina þegar hann vann
borgarstjórastólinn í póker af Villa
og Kjartani Magnússyni og síðan
þá hefur helst ekk-
ert mátt ræða.
Og borgin og
borgarstjórnin
hefur hnign-
að í súrrandi
meðvirkni og
þagnarsamsæri.
Geir Haarde hefur
farið að dæmi Ólafs
og dæmir nú hitt og þetta óvið-
eigandi. Til dæmis kom fram í máli
Geirs um helgina að óviðeigandi
væri að spyrja um þátt formannsins
í þessum málalyktum. Það er sem
sagt óviðeigandi að forvitnast um
hvort formaður Sjálfstæðisflokksins
hafi átt hlut að máli þegar oddviti
flokksins ákveður að víkja. Margt er
undrið. Við heilbrigðar aðstæður
ætti þessi spurning jafnmikinn rétt
á sér og eldri spurning um heilsu
Ólafs F. en í þeirri sjúklega með-
virku og samsettu fjölskyldu sem
nú stýrir borginni er allt óviðeig-
andi sem ekki er hreinræktað „ já“-
hjal og lofrullur um þá sem halda
heimilishaldinu í heljargreipum.
„Eigum við ekki að vona það."
Elísabet Árný Tómasdóttir
bankastarfsmaður
a'H)'l
„Já, ég held að hún verði betri en
Vilhjálmur og Ólafur F. Ég hef trú á
henni og held að hún verði góður
leiðtogl."
Herdís Friðriksdóttir,
38 ára skógfræðingu
„Já, það hugsa ég."
Anna D. Sveinbjörnsdóttir,
57 ára matráðu
„Ég veit það ekki. Ég vona að hún
standi sig vel en ég er samt ekki viss."
Þór Benediktsson,
63 ára bílstjóri
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
VERÐUR HANNA BIRNA GÓÐUR LEIÐTOGI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS?