Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Side 27
PV Sviðsljós
ÞRIÐJUDAGUR 10.JÚNI2008 27
FYRSTU MYNDIRNAR
Af þessu fallega pari,
svona innileg saman.
• •
OLUUMSKTTSAMA
UMTYSON
AMY WINEHOUSE HEFUR NU AFTUR KOMISTIVANDRÆÐI FYRIR
MYNDBAND ÞAR SEM SÖNGKONAN SYNGUR MJÖG FORDÓMA-
FULLT LAG UNDIR ÁHRIFUM EITURLYFJA.
Amy Winehouse hefur enn einu
sinni komist í heimspressuna íyr-
ir myndband sem dagblaðið News
of the World hefur undir höndum.
í þetta skiptið sést Winehouse vera
að reykja eitthvað sem lítur út fyr-
ir að vera eiturlyf í gegnum pípu og
syngja á rasistalegum nótum.
Myndbandið h'tur út fyrir að vera
tekið upp af eiginmanni Winehouse,
Blake Fielder-Civil, áður en hann
var dæmdur í fangelsi. Fielder heyr-
ist á einum stað sannfæra Wine-
house og aðra stúlku sem heyrist
bara vera kölluð Sarah um að hann
sé ekki að mynda þær og í kjölfarið
fer Amy að raula þennan einstaklega
fordómafulla og niðrandi textabút:
„Svertingjar, Pakistanar, Asíubúar
og Japanir, Asíubúar og Japanir! og
heyrnarlausir og heimskir og blindir
og samkynhneigðir!"
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem
Winehouse næst á myndband við
undarlegt athæfi en fyrr á árinu birt-
ust myndbönd af henni að kaupa
eiturlyf og leika sér við mýs.
Eins og eflaust hefur ekki farið
fram hjá neinum á Amy Winehouse
við mikinn eiturlyfjavanda að stríða
og segir faðir söngkonunnar að eina
vonin til að hún hætti í neyslu sé ef
hún ákveði að gerast móðir. „Ég er
alveg sannfærður um það að eftir
tvö ár verði Amy heilsuhraust kona á
réttri braut í lífinu. Komin með börn
og lífið leiki við hana," sagði faðir
hennar í viðtali við tímaritið People.
Blake Fielder-Civil sa
allavega ástæðu til aö Ijúga að Winehouse
að hann væri ekki að mynda hana.
Tökur á Angels and Demons töfðust
þegarTom Hanks meiddist.
Tökur á myndinni Angels
and Demons standa nú yfir í
Róm. Þær töfðust nokkuð í síð-
ustu viku þegar aðalleikarinn
Tom Hanks slasaðist við tökur.
Tom slasaðist á hendi og fingri
en meiðslin voru ekki alvarleg.
Eftir að hafa verið grandlega
skoðaður af læknum var honum
leyft að halda áfram.
Angels and Demons er
framhald af hinni geysivinsælu
Da Vinci Code sem er byggð á
samnefndri metsölubók. Þar er
Tom Hanks mættur aftur í hlut-
verk sitt sem dr. Robert Langd-
on. Myndin er væntanleg í maí
á næsta ári.