Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2008
Fákus DV
(Dstannnar
Saga
ástarinnar
Alma Singer er fjórtán ára og vill
framar öllu lækna einmanaleika
móður sinnar. Lausnin gæti verið
falin í bókinni sem mamma hennar
er að þýða og
því leggur hún
upp í leit að
höfundinum.
Saga ástarinn-
ar var tilnefnd
til Orange-
bókmennta-
verðlaunanna.
Verðlaunin
eru einungis
___ _J veitt konum
af dómnefnd
sem skipuð er konum. Bók-
in hefur verið þýdd á yfir þrjátíu
tungumál og stendur nú til að gera
kvikmynd eftir henni. Það eru þó
ekki aðeins konur sem hafa heillast
af þessari sögu um tengsl ástar og
sögu, fortíðar og nútíma. Nóbels-
verðlaunahafmn J.M. Coetzee seg-
ir bókina heillandi, blíða og afar
frumlega. Skuggi forlag gefur út.
Tré Janiss-
aranna
FOR A MINOR REFLECTION A ORGAN
(slenska hljómsveitin F0RAMIN0R REFLECTION og hin bandaríska NORTHERN VALENTINE halda tónleika
áORGAN i kvöld. Hljómsveitirnarspiluðu í Viðeyjarkirkju á sunnudaginn viðfeikigóðar undirtektir
viðstaddra, auk þess sem þær spiluðu saman í Bandaríkjunum um páskana. Þær ættu því að vera
orðnar vel kunnugar hvor annarri fyrir tónleikana í kvöld sem hefjast klukkan 21.
Dama og fugl „Keren Ann er
mögnuð söngkona og kom, sá
og sigraði með sínum einlæga
söng og fjölbreytileika."
. Hjá Skugga er einnig nýlega
komin út bókin Tré Janissar-
anna. Nótt eina árið 1836 er ung
stúlka kyrkt í kvennabúri sold-
ánsins og á sama tíma er liðsfor-
ingja slátrað á
götum Istan-
búl. Borgin er
sem púður- Tl'.É
tunna og hið J/., »</>
glæsilega _
heimsveldi (CTj
Tyrkjasold- ':,:}'J
áns riðar til
falls. Hinar
fornu úr-
valssveitir TXa/.íí, i
Janissaranna
virðast koma við sögu,
en hvernig? Aðeins einn maður
getur leyst gátuna: Yashim, sér-
legur ústsendari soldánsins og
geldingur úr kvennabúrinu. Tré
Janissaranna vann hin virtu Edg-
ar-verðlaun í Bandaríkjunum.
Það eru eftirsóttustu verðlaun
sem glæpa- og spennusögur geta
fengið.
V____________________________J
Morðin í
Betlehem
Morðin í Betlehem segir frá palest-
ínska kennaranum Omar Yussef
sem þarf að takast á við dularfullt
sakamál í fæðingarborg frelsarans.
Þegar eftir-
lætisnemandi
hans, George
Saba, er hand-
tekinn fyrir
morð verður
Omar sann-
færður um að
komið hafl
verið á hann
rangri sök.
George stend-
ur frammi
fyrir dauða-
refsingu og veitir það gamla sögu-
kennaranum innri kraft sem hann
hélt að væri löngu glataður. Morð-
in í Betlehem er fyrsta bókin í röð
spennusagna um hinn „óvænta"
spæjara Omar Yussef, eins og segir í
tilkynningu frá Skugga forlagi. Höf-
undurinn, Matt Rees, hefur fjallað
um Mið-Austurlönd í starfi sínu
sem blaðamaður í áratugi.
AFSLAPPAÐIR
OG LIFANDI
Létt og gott andrúmsloft var í
stóra sal Háskólabíós síðastliðinn
fimmtudag þegar Barði Jóhanns-
son og Keren Ann Zeidel komu
fram með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á tónleikum sem voru hluti
af Listahátíð í Reykjavík. Tónleik-
arnir voru þeir síðustu á Listahá-
tíðinni og næstsíðustu í tónleika-
röð Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Barði er vel þekktur meðal
landsmanna og er einn flölhæfasti
listamaður landsins. Það sannað-
ist á þessum tónleikum sem hann
og Keren Ann hafa unnið saman
undanfarin ár með afar góðum ár-
angri. Lögin á tónleikunum voru
úr ýmsum áttum. Flest lögin voru
frá þeim Barða og Keren Ann sem
þau hafa unnið að í sameiningu
undir nafninu Lady and Bird. Tvö.
þeirra voru frá árum Barða í Bang
Gang þar sem Ester Thalía Casey
kom og söng með honum. Rifjuð-
ust þá upp góðar minningar. Auk
þess voru lög af nýjustu plötu Bang
Gang, Ghost from the Past.
Keren Ann er mögnuð söng-
kona og kom, sá og sigraði með
sínum einlæga söng og fjölbreyti-
leika. Það er alveg ljóst að hún leyf-
ir sér að leika sér með hugmynd-
ir sínar og er óhrædd við að prófa
eitthvað nýtt. Hún söng ýmist ein
eða með Barða.
Barði var léttur í skapi og af-
slappaður. Hann sló á létta strengi
milli laga og reytti af sér nokJcra
brandara sem fengu salinn til
að hlæja. Hann náði að létta hið
LADYANDBIRD
ÁSAMTSINFÓNÍU-
HUÓMSVEIT ÍSLANDS
HÁSKÓLABlÓifimmtudaginn S.júní
1 'k'k'kir _____________
TÓNLEIKADÓMUR
formlega andrúmsloft sem á til
að myndast á sinfóníutónleikum.
Undirrituð hefur að minnsta kosti
ekki upplifað jafn persónulega
stemningu á slíkum tónleikum.
Myndasýning var á stórum skjá
alla tónleikana og er óhætt að segja
að það hafi haft áhrif á upplifunina.
Nýtt myndefni var við hvert lag.
Auk þess var kór sem söng með.
Tónleikarnir voru mjög lifandi
og ijölbreyttir. Stórskemmtilegt
var að upplifa Keren Ann Zeidel í
svo mörgum hlutverkum og er hún
með íjölhæfari listamönnum sem
undirrituð hefur séð. Án hennar
hefðu tónleikarnir ekki verið eins
góðir. Keren Ann nýtur mikilla vin-
sælda í Frakklandi. Hún hefur gefið
út fimm plötur sem allar hafa feng-
ið frábærar viðtökur auk þess sem
hún hefur hlotið ótal viðurkenn-
ingar fýrir tónlist sína.
Hið sterka samband milli henn-
ar og Barða skflaði sér til áhorfand-
ans á þessum tónleikum á magnað-
an hátt með Sinfóníuhljómsveitina
bak við. Tíma sem var afar vel var-
ið.
Ásdis Björg Jóhannesdóttir
í SKYNDI
PRYÐISMATURILUMMO UMHVERFI
Síðastliðinn laugardag ákvað ég
að hitta á vinkonurnar í hádeginu
á veitingastaðnum Brons við Póst-
hússtræti. Þetta var í fýrsta skipti
sem ég kem þangað inn enda búið
að taka mig langan tíma að sætta
mig við það að Kaffibrennslan sé
búin að vera og Brons sé kominn í
staðinn.
Staðurinn sjálfur finnst mér ekki
smart. Hann er ffemur kuldalegur
og gat ég alls ekki hugsað mér að
sitja á efri hæðinni sökum myrkurs.
Það var ekld mikið að gera þegar við
komum enda grenjandi rigning og
fáir á ferli í miðbænum svo við gát-
um sem betur fer fengið sæti á neðri
hæðinni. Matseðillin á Brons er
girnilegur. Það er mildð um litla og
girnilega tapasrétti sem ég er alveg
til í að prófa einhvern tímann þegar
þannig liggur á mér. í þetta skiptið
ákvað ég hins vegar að fá mér kjúkl-
ingasalat með mangó og sauðaosti.
Þjónninn var indæll og til í að svara
samviskusamlega þeim spurningum
sem ég hafði varðandi matseðilinn.
Þegar ég fékk svo kjúklingasalatið
varð ég heldur betur fyrir vonbrigð-
um, blessaður sauðaosturinn sem
hafði heillað mig hvað mest við sal-
atið var hvergi sjáanlegur. Þjónninn
var hins vegar eldd lengi að ldppa því
í liðinn og sótti litla skál með niður-
rifnum osti sem ég sá þá bara sjálf
um að blanda út í. Ekkert stórmál en
alltaf leiðinlegt að fá eldd það sem
maður pantaði. Vinkona mín pant-
aði sér bolla af svörtu kaffi. Kaffihús
nútímans eru hins vegar mörg hver
orðin svo nútímavædd að ekki er
notast við gömlu góðu uppáhelling-
una heldur espressó-vél og fékk hún
því nautsterkan tvöfaldan espressó
(að mér sýndist) blandaðan með
örlitlu vatni. Þar sem kaffibollinn
kostaði þrjú hundruð lcrónur fannst
oldcur fátt sjáifsagðara en ábót væri
innifalin. Svo var hins vegar ekki
en afgreiðslustúlkan sá samt aum-
ur á vinkonunni og splæsti á hana
ábót og fékk hundrað rokkstig fyrir.
Salatið mitt kostaði fjórtán hundr-
uð krónur, var vel útilátið og alveg
hreint ágætt á bragðið. Maturinn var
því prýðilegur en hönnunin á staðn-
um dregur stemninguna niður.
KRISTA HALL fóráBroris m
HRAÐI: ★ ★
VEITINGAR: ★ ★
VIÐMÓT: ★
UMHVERFI: ★ ★★★