Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR lO.JÚNf2008
Slðast en ekki slst DV
BÓKSTAFlega
„Ég gat ekki mætt þangað
með fylgjuna í eftirdragi."
■ Inga Sigrun Atladóttir í DV,
baejarfulltrúi H-listans ÍVogum,
komst ekki á landsþing S(S, enda
stödd á fæðingardeildinni.
„Metnaður, sigurvilji og
bjór."
■ Benedikt Kristjánsson, tvítugur
tenór, sem komst fyrir helgi inn í einn
virtasta tónlistarháskóla Evrópu, í DV.
Einnig má geta þess
að við spurning-
unni.Hverer
maðurinn?"
svaraði Benedikt:
„Marlboromaður-
inn."
„Afi minn oj
pabbi voru báðir með
hesta en þegar
ég var ungl-
ingur hætti
pabbi þessu
nestastússi.
Ég féll hins
vegar aftur fyrir
þessum skepnum þegar
ég lék í Nonna og Manna
fyrir um tveimur áratug-
um og reið Grundaríjörð-
inn fram og til baka."
■ Helgi Björnsson í Fréttablaðinu en
hann sendir á næstunni frá sér eins
konar kántríplötu með hestaívafi.
„Það er einfalt og gott svo
allir geti spilað
það á gítar-
mn.
■„Það er einfalt
og gott svo allir
geti spilað það á
gítarinn."
HreimurÖrn
Heimisson spurður um þjóðhátíðar-
lagiðíár.-DV
„Þeir sem skutu ísbjörn-
inn eru vistfræðilega fá-
vísir og algjörar gungur."
■ Leikkonan, söngkonan og
fyrrverandi fyrirsætan Brigitte Bardot
er ósátt við að (sbjörnin hafi ekki
fengið að lifa. - DV
„Já, Ingibjörg hefur per-
sónulegar ástæður og
keppir ekki í ungfrú al-
heimí í ár,"
■ Arnar Laufdal, framkvæmdastjóri
Ungfrú Island, en Ingibjörg R.
Egilsdóttir hafnaði i öðru sæti í
keppninni um fegurstu stúlku (slands
en mun ekki keppa í fegurðarsam-
keppni Donalds Trump eins og til
stóð.
„Þetta var
afspyrnu-
slakur leik-
ur af okkar
hálfu."
■ Sársvekktur landsliðs- þjálfar-
inn, Guðmundur
Þórður Guðmunds-
son, þegar DV
náði í skottið á
honum rétt fyrir
liðsfund í
gærkvöldi.
„Ég var ósáttur við
Árna Kristin [leikmann
Breiðabliks] og var á
leiðinni að tala við hann.
Síðan tekur Guðmann
Þórisson mig hálstaki og
dómarinn ákveður að
refsa okkur báðum með
gulu spjaldi. Ég gerði
samt ekki neitt."
■ Fyrirliði Vals, Atli
Sveinn Þórarins-
son, við DV eftir
leik Breiðabliks og
Vals á Vodafone-
vellinum.
HAFNFIRÐINGUM
VELTREYSTANDI
Tilkynnt var um helgina að Hanna
Birna Kristjánsdóttir mundi taka
við sem oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn. Hanna Birna tekur við
embætti borgarstjóra á næsta ári.
MAÐUR
DAGSINS
Var það alltaf draumur þinn að
verða borgarstjóri?
„Nei, en í dag dreymir mig um að
að fá tækifæri til að vinna vel í þágu
Reykvfkinga."
Hvað er skemmtilegast við
pólitíkina?
„Hvað hún er fjölbreytt og hvemig
hún býður upp á ný tækifæri á hveij-
um degi."
Hver er konan?
„Hún er fjörutíu og tveggja ára borg-
arfulltrúi, eiginkona og móðir í Foss-
voginum"
Er Hafnfirðingi treystandi til að
stjórna Reykjavíkurborg?
„„Hafnfirðingum er treystandi til
allra góðra verka."
Hvert verður þitt fyrsta verk sem
borgarstjóri?
„Að taka við góðu búi frá Ólafi F.
Magnússyni, núverandi borgar-
stjóra."
Eru konur betri stjórnendur?
„Allavega jafhgóðir."
En leiðinlegast?
„Sú krafa að maður munnhöggvist
við fólk sem manni líkar ljómandi
vel við."
Hvað á að gera í sumar?
„Vinna að góðum málum í borginni
og nota allar lausar stundir með fjöl-
skyldunni."
Hvað drífur þig áfram?
„Löngunin til að láta gott af mér
leiða."
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú varst lítil?
„Ég ætlaði að verða kennari."
Hvenær fer flugvöllurinn?
„Þegar við finnum honum betri
stað."
Hvernig sérð þú Reykjavík fyrir
þér eftir fimm ár?
„Eins fallega og hún er í dag."
Ef þú værir föst á eyðieyju. Hvaða
þrjá hluti eða manneskjur mynd-
ir þú taka með þér?
„Manninn minn og dætumar tvær."
Deilur vegna meints klofnings meöal kvikmyndaframleiðenda:
Sérhagsmunir ráða ekki ríkjum
„Að sjálfsögðu eru það ekki sér-
hagsmunir fárra sem ráða ríkjum.
Menn þurfa ekki annað en líta yfir
sviðið til þess að sjá hvað er að ger-
ast. Stjórnarmenn hafa til að mynda
verið að vinna að því að RÚV komi
myndarlegar að hvers kyns þátta-
gerð, kvikmyndaframleiðslu, heim-
ildamyndagerð og fleiru. Allt þetta
tekur bara ákveðinn tíma," segir
Agnes Johansen sem var til svara
fyrir hönd stjórnar framleiðendafé-
lagsins SÍK þegar DV leitaði eftir því
í gær. Tílefnið er grein eftir Böðvar
Bjarka Pétursson, kvikmyndafram-
leiðanda og skólastjóra Kvikmynda-
skóla fslands, sem birtist á logs.is á
föstudag.
í greininni segir Böðvar Bjarki
að fjöldi framleiðslufyrirtækja sé
að taka sig saman og ædi að stofna
nýtt félag til að sjá um hagsmuni
sína. Ástæðan sé að þau telji að
stjórn framleiðendafélagsins SÍK
„hafi ekki staðið sig sem skyldi og að
þröngir sérhagsmunir fáeinna bíó-
myndaframleiðenda ráði algjörlega
ríkjum í félaginu".
„Ég hef ekki heyrt af stofnun nýs
félags, en ég hef heyrt kurr í nokkr-
um minni framleiðendum," segir
Agnes. „Ég held hins vegar að það
séu miklu fremur þrengri hagsmun-
ir örfárra af þessum smærri fram-
leiðendum, sem sjá ekki út fýrir
skóginn sinn, sem stendur svolítið
í þeim. En ef þeir telja að stofnun
nýs félags þjóni þeirra hagsmunum
betur er það bara gott og blessað. Ég
held þó að menn séu ekki að skoða
heildarmyndina."
Böðvar gagnrýnir einnig í grein
sinni að SÍK hafi ekki enn haldið að-
alfund á þessu ári, sem hefð sé fyr-
ir að halda snemma á vorin. Agnes
segir eðlilega skýringu á því. „Það
eru tvö stór mál sem ekki tókst að
leysa fyrir vorið. Því verður hann
líklega ekki haldinn fyrr en í haust
þar sem það eru svo margir fjarver-
andi á sumrin."
Aðspurð hvaða mál þetta séu
segir Agnes þau snúa að tveimur
nefndum sem falið hafi verið að fara
yfir lagabreytingatíllögur félags-
manna annars vegar og hins vegar
nefnd sem fer nú yfir reglur um höf-
undarréttargreiðslur. Þegar þær hafi
lokið störfum sé ekkert því til fýrir-
stöðu að boða til aðalfundar.
kristjanh@dv.is
Agnes Johansen
Talsmaðurstjórnar
framleiðendafélagsins SfK.
SWDKORN
■ Oddur Hrafn Stefán Björg-
vinsson, betur þekktur sem
Krummi í Mínus, er staddur í
Marokkó
um þess-
ar mundir.
Krummi er
þar ásamt
vinum en á
facebook-
síðu söngv-
arans stóð
fýrirhelgiað
hann væri „á leiðinni til Mar-
okkó að finna sig og skemmta
sér með góðum vinum" Að sögn
Björgvins Halldórssonar, föður
hans, er ekki um tónlistarferð
að ræða heldur sé Krummi í
fríi með vinum og væntanlegur
heim í dag.
■ Sjónvarpsmaðurinn Oddur
Ástráðsson í íslandi í dag á Stöð
2 sýnir stoltur á myspace-síðu
sinni nýja tattúið sitt. Listaverk-
ið lét hann setja á sig síðast-
liðinn föstudag, á svokallaðri
tattúráðstefnu sem haldin var
áTunglinu
um helgina
og var allt
fest á filmu
fyrir þátt-
inn. Inn-
blásturinn
er Svandís
Svavars-
dóttir, borg-
arfulltrúi
vinstri grænna, sem er einmitt
móðir Odds. Húðflúrið minnir
einna helst á gömlu sjómanna-
tattúin. Engin mynd, ekkert
tákn, bara „Mamma".
■ Kvennahlaup fSÍ fór fram
á níutíu stöðum á landinu á
laugardaginn. Konur á ísafirði
létu að sjálfsögðu ekki sitt eftir
liggja og hlupu á fjórða hundrað
konur á öllum aldri í hlaupinu
þar í bæ. Það væri kannski ekki
frásögur færandi nema fýrir þær
sakir að hundrað og fjögurra
ára gömul kona, Torfhildur
Torfadóttir, tók þar þátt. Sam-
kvæmt vestfirska fréttavefnum
bb.is er Torfhildur sú elsta til
að taka þátt á landinu svo vitað
sé. Vegalengdin sem Torfhildur
hljóp var 2,5 kílómetrar.