Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 5

Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 5
GLÓÐAFEYKIR 5 var sofið og eldað. „Kabyssa“ var tíðast notuð til upphitunar en kom þá að gagni sem eldavél um leið. Það kom sér vel að þær voru ekki rúmfrekar. Ég ólst upp og átti heima fram yfir tvítugsaldur í Græna húsinu svonefnda. Það er nú engin höll, eins og þú veizt, mundi ekki þykja rúmgott fyrir eina fjölskyldu nú, en þarna bjuggu samt í þá daga fjórar fjölskyldur. Og þó að ótrúlegt kunni að þykja, þá finnst mér alltaf, að ég hafi í raun og veru aldrei átt annars staðar heima en í Græna húsinu. Auðvitað bar svo þráfaldlega að garði næturgesti framan úr sveit, og þá var bara að þrengja betur að sér og taldi það enginn eftir. Samvinnan milli sveitafólks og bæjarbúa \ar alltaf góð. Vitanlega var það héraðið, sem bjargaði bænum, upp á annað var ekki að hlaupa, — og gerir raunar enn, því að viðgangur Sauðárkróks byggist hvað mest á því, að hafa þetta stóra og góða liérað á bak við sig. Auðvitað átti öll alþýða hér í bænum ekki neitt á þessum árum, jafnvel stundum ekki mat til næsta máls þegar fram á veturinn kom, bara hafragrjón og vatn út á, stundum kannski súr. Kjöt og fisk höfðu menn gjarnan eitthvað framan af vetri, en það vildi ganga upp. Mjólk sást ekki nema þá sem vinargjöf frá konum frammi í sveit og svo fékkst hún stundum í vöruskiptum. Upp úr 1910 fór einn og einn maður að fá sér kú. Var mjólkinni þá miðlað eftir þörfum og ástæðum, en það þekktist ekki að hún væri seld. Kúm smáfjölgaði svo í bænum og munu hafa verið eitthvað á annað hundrað, er þær voru flestar. En er Mjólkursamlagið tók til starfa, lagðist sú búgrein niður hér í bænum. Ekki þekktist heldur þá, að iiskur væri seldur hér í fjörunni. Menn sögðu bara við náungann: „Taktu þér í soðið, góði,“ og svo var það útrætt mál. LTpp úr 1910 fóru einstaka menn einnig að koma sér upp geitum og kindum. Geiturnar eru horfnar en kindurnar halda enn velli þó að þeim hafi fækkað eftir því, sem atvinna hefur aukizt, og ég held, að megin ástæðan til þess að sumir hafa hér enn nokkra kinda- eign, sé fremur andleg nauðsyn en efnaleg. Verzlun öll við bændur var hrein vöruskiptaverzlun. Og í verzlunum var úttekt bara gegn vinnu, sem verzlunin eða vinnuveitandinn verðlagði í raun og veru sjálfur, — og svo e. t. v. einhverjum fiskuggum. I róður fóru menn yfirleitt ekki nema til þess að fá sér i soðið. Að vísu tók Popp kaup- maður fisk og verkaði. Lét þurrka hann hér niður á mölum. En afli var sjaldan mikill og menn gerðu sig ánægða með lítið. Ég reri einu sinni tvö sumur og fékk 100 pund í hlut. Það þótti alveg tætings afli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.