Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 3
GLÓÐAFEYKIR
Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga
9. HEFTI . APRÍL 1969.
Riistjóri og ábyrgðartnaður Gisli Magnússon, Eyhildarholti.
Yið kunnum ekki nógu vel að stjórna okkur
Ef þér verður gengið eftir Skagfirðingabrautinni á Sauðárkróki
á sólvermdu sumarkvöldi, þá er ekki ólíklegt, að á stéttinni framan
við kjörbúð Kaupfélags Skagfirðinga sjáirðu standa roskinn mann,
ekki ýkja háan en þrekvaxinn og þykkan undir hönd, hvassleitan
en þó hýrublik í augum, framkoma öll og fas með þeim hætti, að
ekki dylst, þegar við fyrstu sýn, að þar muni enginn veifiskati vera.
Ég hygg að þessi lýsing, þótt lausleg sé, nægi kunnugum til að átta
sig á hver maðurinn muni vera en öðrum til skýringar skal þess
getið, að hann heitir Guðmundur Sigurðsson og er húsasmíða-
meistari að atvinnu, Mundi Gulla, eins og kunningjar hans kalla
hann sín á milli.
Nú hafði svo málum skipazt, að ég gengi á fund Guðmundar og
freistaði þess, að fá hann til að segja lesendum Glóðafeykis eitthvað
frá liðnum árum, því að tvenna man hann tímana eins og aðrir þeir,
sem komnir eru á hans aldur. Þarf þó ekki þann aldur til þótt Guð-
mundur sé ekki gamall maður, svo snögg hafa orðið umskiptin
á öllum sviðum íslenzks þjóðlífs, svo stutt er síðan við stóðum enn
í sporum forfeðranna um atvinnuhætti og afkomu.
En Guðmundur telur mig kominn í geitarhús að leita ullar og
lætur lítt yfir að hann búi yfir nokkru því, er í frásögur sé færandi.
Fellst þó á, að ég fái að bera fram nokkrar spurningar, eins og til
reynslu.
— Þú ert borinn og barnfæddur Sauðkrækingur, Guðmundur,
eða er ekki svo?
— Nei, ég er nú raunar fæddur í Eloltsmúla í Staðarhreppi árið
LAttBSSOKASAFK
286209
fSLAHDS