Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 3

Glóðafeykir - 01.04.1969, Síða 3
GLÓÐAFEYKIR Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga 9. HEFTI . APRÍL 1969. Riistjóri og ábyrgðartnaður Gisli Magnússon, Eyhildarholti. Yið kunnum ekki nógu vel að stjórna okkur Ef þér verður gengið eftir Skagfirðingabrautinni á Sauðárkróki á sólvermdu sumarkvöldi, þá er ekki ólíklegt, að á stéttinni framan við kjörbúð Kaupfélags Skagfirðinga sjáirðu standa roskinn mann, ekki ýkja háan en þrekvaxinn og þykkan undir hönd, hvassleitan en þó hýrublik í augum, framkoma öll og fas með þeim hætti, að ekki dylst, þegar við fyrstu sýn, að þar muni enginn veifiskati vera. Ég hygg að þessi lýsing, þótt lausleg sé, nægi kunnugum til að átta sig á hver maðurinn muni vera en öðrum til skýringar skal þess getið, að hann heitir Guðmundur Sigurðsson og er húsasmíða- meistari að atvinnu, Mundi Gulla, eins og kunningjar hans kalla hann sín á milli. Nú hafði svo málum skipazt, að ég gengi á fund Guðmundar og freistaði þess, að fá hann til að segja lesendum Glóðafeykis eitthvað frá liðnum árum, því að tvenna man hann tímana eins og aðrir þeir, sem komnir eru á hans aldur. Þarf þó ekki þann aldur til þótt Guð- mundur sé ekki gamall maður, svo snögg hafa orðið umskiptin á öllum sviðum íslenzks þjóðlífs, svo stutt er síðan við stóðum enn í sporum forfeðranna um atvinnuhætti og afkomu. En Guðmundur telur mig kominn í geitarhús að leita ullar og lætur lítt yfir að hann búi yfir nokkru því, er í frásögur sé færandi. Fellst þó á, að ég fái að bera fram nokkrar spurningar, eins og til reynslu. — Þú ert borinn og barnfæddur Sauðkrækingur, Guðmundur, eða er ekki svo? — Nei, ég er nú raunar fæddur í Eloltsmúla í Staðarhreppi árið LAttBSSOKASAFK 286209 fSLAHDS

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.