Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 33

Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 33
GLÓÐAFEYKIR 33 út í viðskiptalífið, sem svo annað fólk hefur sitt framfæri af að vinna úr, dreifa og selja. Öll mun þessi starfsemi vera samfélaginu í heild nokkurs virði, enda þótt eitthvað af aurunum lendi í öfugum vasa á leiðinni milli framleiðanda og neytanda. Þetta jafnar sig á þann hátt, að neytand- inn kaupir framleiðsluna þegar hann hefur auraráð, annars ekki, og framleiðandinn framleiðir meðan hann getur og varan selst, lengur ekki. Þá fer fljótlega að minnka hlutur þeirra, sem hafa sitt af því að dreifa, selja og reka skrifstofur. Þá gæti eftirfarandi verið til umhugsunar fyrir fólk, sem ekki hefur gert sér grein fyrir því, að landbúnaður á Islandi skipti einhverju máli gagnvart þjóðfélag- inu í heild og afkomu þjóðarinnar: Ef engin gróðurmold hefði verið á landinu og enginn fiskur í fjörðum, þá hefði ísland aldrei byggzt, ekkert þjóðfélag orðið til, aðeins einhvern tíma verið sett hér upp veðurathugunarstöð, líkt og nú er á Jan Mayen. Eftir að farið var að fljúga yfir höfin, hefði svo verið gerður hér flugvöllur með flugstöð til öryggis. Veðurat- hugunarstöð og flugstöð reknar af nálægum ríkjum í austri eða vestri — og síðan ekki söguna meir. Ekkert þjóðfélag, engin föst byggð. Öll meginstarfsemi þjóðarinnar er á einhvern hátt tengd því, að ná verðmætum úr skauti moldar og hafs, hagræða þeim verðmætum og auka verðgildi þeirra, og dreifa þeim síðan manna á milli. Hins vegar hafa löngum reynzt örðugleikar á að skipta þessum verðmæt- um sem réttilegast. Þá skapar það og ærinn vanda, að illa fer saman ört vaxandi mannfjöldi með vaxandi lífskröfur og minnkandi nátt- úruauður, sem gengur örar á en fjöldinn gerir sér grein fyrir. Þar er verkefni fyrir þá að leysa, sem hafa til þess vilja og getu. Hróbjartur Jónasson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.