Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 39

Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 39
GLÓÐAFEYKIR 39 Úr sagnaþáttum Gísla Konráðssonar FRÁ JÓNI EGGERTSSYNI. (Athugasemd: Jón var sonur Eggerts umboðsmanns á Ökrum í Blönduhlíð (f. um 1670, d. 1719), Jónssonar klausturhaldara á Ökrum (f. um 1643, d. 1689), Eggertssonar. Kona Eggerts klausturhalda var Sigríður „stórráða" (d. 1694) Magn- úsdóttir lögréttumanns á Sjávarborg. Kona Eggerts umboðsmanns og móðir Jóns yngra, er hér segir frá, var Ragnheiður Eiríksdóttir prests og skálds að Höfða norður. Jón var talinn skáld gott. Kona hans var Ingibjörg Skaftadóttir lögréttu- manns á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, systir þeirra Þorleifs stiftsprófasts og Magn- úsar bónda á Víðimýri. — Hefst nú þátturinn. — G. M.). Jón Eggertsson og Ingibjörg kona hans bjuggu fyrst að Steins- stöðum í Tungusveit og síðan lengi að Héraðsdal. Jón var reið- maður mikill og afar kær að góðum hestum. Hann átti einn þann hest, er Eitill hét. Um hann kvað hann svo: Allvel finnur Eitill stað undir svörtum Jóni, á hádegi fór ég heiman að, í Hofsós kom að nóni. En það er meira en þingmannaleið frá Héraðsdal að Hofsósi. Það var um sumarið, að hollenzka duggri rak upp á Borgarsandi. Þar komust menn af. Þá hafði Skagafjarðarsýslu Skúli Magnússon, er siðar varð fógeti. Brá hann skjótt við og reið frá Ökrum, þar sem hann bjó, og reið út á sandinn og bauð upp allt féð, og var kallað væri af yfirvarpi, því menn voru þá slíku óvanir. Gerði Skúli þann reikning fyrir er honum sýndist, og vita menn ei, hver orðið hefur, en allt var það kallað konungsfé og upptækt, er þeir menn höfðu, og þeir ófrjálsir sjálfir. Lét Skúli sýslumaður Jón Eggertsson frá Héraðsdal sækja sök á hendur þeim um ófrjálsa kaupverzlun og var þar fátt til andsvara. Var þeim síðan dæmd refsing, en hann gaf þeim hana upp um síðir, en hann tók féð. Er þess getið, að þeir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.