Glóðafeykir - 01.04.1969, Page 39
GLÓÐAFEYKIR
39
Úr sagnaþáttum Gísla Konráðssonar
FRÁ JÓNI EGGERTSSYNI.
(Athugasemd: Jón var sonur Eggerts umboðsmanns á Ökrum í Blönduhlíð
(f. um 1670, d. 1719), Jónssonar klausturhaldara á Ökrum (f. um 1643, d. 1689),
Eggertssonar. Kona Eggerts klausturhalda var Sigríður „stórráða" (d. 1694) Magn-
úsdóttir lögréttumanns á Sjávarborg. Kona Eggerts umboðsmanns og móðir Jóns
yngra, er hér segir frá, var Ragnheiður Eiríksdóttir prests og skálds að Höfða
norður. Jón var talinn skáld gott. Kona hans var Ingibjörg Skaftadóttir lögréttu-
manns á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, systir þeirra Þorleifs stiftsprófasts og Magn-
úsar bónda á Víðimýri. — Hefst nú þátturinn. — G. M.).
Jón Eggertsson og Ingibjörg kona hans bjuggu fyrst að Steins-
stöðum í Tungusveit og síðan lengi að Héraðsdal. Jón var reið-
maður mikill og afar kær að góðum hestum. Hann átti einn þann
hest, er Eitill hét. Um hann kvað hann svo:
Allvel finnur Eitill stað
undir svörtum Jóni,
á hádegi fór ég heiman að,
í Hofsós kom að nóni.
En það er meira en þingmannaleið frá Héraðsdal að Hofsósi. Það
var um sumarið, að hollenzka duggri rak upp á Borgarsandi. Þar
komust menn af. Þá hafði Skagafjarðarsýslu Skúli Magnússon, er
siðar varð fógeti. Brá hann skjótt við og reið frá Ökrum, þar sem
hann bjó, og reið út á sandinn og bauð upp allt féð, og var kallað
væri af yfirvarpi, því menn voru þá slíku óvanir. Gerði Skúli þann
reikning fyrir er honum sýndist, og vita menn ei, hver orðið hefur,
en allt var það kallað konungsfé og upptækt, er þeir menn höfðu,
og þeir ófrjálsir sjálfir. Lét Skúli sýslumaður Jón Eggertsson frá
Héraðsdal sækja sök á hendur þeim um ófrjálsa kaupverzlun og
var þar fátt til andsvara. Var þeim síðan dæmd refsing, en hann gaf
þeim hana upp um síðir, en hann tók féð. Er þess getið, að þeir