Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 44

Glóðafeykir - 01.04.1969, Blaðsíða 44
44 GLÓÐAFEYKIR dóttur, ættaðrar af Ströndum vestur. Hann ólst upp með föður sín- um fram um tvítugsaldur, var síðan á ýmsum stöðum unz hann settist að á Sauðárkróki um eða eftir 1910 og átti þar heirna æ síðan. Árið 1915 kvæntist Ástvaldur Sigurbjörgu Pálsdóttur frá Mel- rakkadal. Hún lézt 1949. Þau eignuðust 4 dætur og komust allar til fullorðinsára: Ingibjörg, dó ógift. Álfheiður, húsfr. á Sauðárkróki, Pála Sigurrós, húsfr. í Reykjavík og Stefanía, húsfr. á Sauðár- króki. Ástvaldur Einarsson var hár maður og grannvaxinn, gervilegur og myndarlegur. Hann var greindur maður og nárnfús, myndaði sér ákveðnar skoðanir á samfé- lagsmálum. Hann var hæglátur rnaður í framkomu og stillilegur, félagslyndur, glaðsinna o° gamansamur. Hann var mik- ill atgervismaður meðan entist máttur og heilsa, ágætur verkmaður um afköst og hagvirkni að hverju sem lrann gekk, og fór þó að engu óðslega. Þótt eigi yrði hann gamall maður, var hann löngu þrotinn að kröftum og mátti eigi á sig reyna árum saman. Andlegu þreki hélt hann hins vegar unz ævina þraut. Pdlmi Jónasson, bóndi á Álfgeirsvöllum á Efribyggð, lézt þ. 4. dag októbermán. 1955. Fæddur að Efra-Lýtingsstaðakoti (nú Tungu- hlíð) í Tungusveit 15. maí 1898. Foreldrar: Jónas bóndi á Ásum í Austur-Húnavatnss. og síðan á Álfgeirsvöllum, Björnsson, bónda í Kolgröf á Efribyggð, Gottskálkssonar bónda í Syðra-Vallholti, Þor- valdssonar, og kona hans María, dóttir Guðmundar bónda á Hömr- um á Fremribyggð, Hannessonar, með Ragnheiði Guðmundsdóttur bónda á Steinsstöðum í Tungusveit, Jónssonar, og konu hans Sig- ríðar Árnadóttur bónda á Skatastöðum, Jónssonar. Aldamótaárið fluttist Pálmi með foreldrum sínum frá Efrakoti (var löngum kallað svo) vestur að Ásum og óx þar upp. Árið 1920 Iivarf fjölskyldan aftur norður yfir Vatnsskarð og settist að á Álf- geirsvöllum, er Jónas, faðir Pálma, hafði þá keypt af Ólafi Briem alþm.. Þar átti Pálmi heima æ síðan og bjó á eignarhluta Sínum frá 1933 til æviloka. Ungur að árum var Pálmi að námi við unglingaskóla á Hvamnrs- Astvaldur Einarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.