Glóðafeykir - 01.04.1969, Qupperneq 44
44
GLÓÐAFEYKIR
dóttur, ættaðrar af Ströndum vestur. Hann ólst upp með föður sín-
um fram um tvítugsaldur, var síðan á ýmsum stöðum unz hann
settist að á Sauðárkróki um eða eftir 1910 og átti þar heirna æ síðan.
Árið 1915 kvæntist Ástvaldur Sigurbjörgu Pálsdóttur frá Mel-
rakkadal. Hún lézt 1949. Þau eignuðust
4 dætur og komust allar til fullorðinsára:
Ingibjörg, dó ógift. Álfheiður, húsfr. á
Sauðárkróki, Pála Sigurrós, húsfr. í
Reykjavík og Stefanía, húsfr. á Sauðár-
króki.
Ástvaldur Einarsson var hár maður og
grannvaxinn, gervilegur og myndarlegur.
Hann var greindur maður og nárnfús,
myndaði sér ákveðnar skoðanir á samfé-
lagsmálum. Hann var hæglátur rnaður í
framkomu og stillilegur, félagslyndur,
glaðsinna o° gamansamur. Hann var mik-
ill atgervismaður meðan entist máttur og
heilsa, ágætur verkmaður um afköst og
hagvirkni að hverju sem lrann gekk, og fór þó að engu óðslega. Þótt
eigi yrði hann gamall maður, var hann löngu þrotinn að kröftum
og mátti eigi á sig reyna árum saman. Andlegu þreki hélt hann
hins vegar unz ævina þraut.
Pdlmi Jónasson, bóndi á Álfgeirsvöllum á Efribyggð, lézt þ. 4.
dag októbermán. 1955. Fæddur að Efra-Lýtingsstaðakoti (nú Tungu-
hlíð) í Tungusveit 15. maí 1898. Foreldrar: Jónas bóndi á Ásum í
Austur-Húnavatnss. og síðan á Álfgeirsvöllum, Björnsson, bónda
í Kolgröf á Efribyggð, Gottskálkssonar bónda í Syðra-Vallholti, Þor-
valdssonar, og kona hans María, dóttir Guðmundar bónda á Hömr-
um á Fremribyggð, Hannessonar, með Ragnheiði Guðmundsdóttur
bónda á Steinsstöðum í Tungusveit, Jónssonar, og konu hans Sig-
ríðar Árnadóttur bónda á Skatastöðum, Jónssonar.
Aldamótaárið fluttist Pálmi með foreldrum sínum frá Efrakoti
(var löngum kallað svo) vestur að Ásum og óx þar upp. Árið 1920
Iivarf fjölskyldan aftur norður yfir Vatnsskarð og settist að á Álf-
geirsvöllum, er Jónas, faðir Pálma, hafði þá keypt af Ólafi Briem
alþm.. Þar átti Pálmi heima æ síðan og bjó á eignarhluta Sínum frá
1933 til æviloka.
Ungur að árum var Pálmi að námi við unglingaskóla á Hvamnrs-
Astvaldur Einarsson.