Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 2
Útgáfa Málfregna
A árunum 1982-84 gaf íslensk málnefnd út fjölritað blað sem nefnt var Fréttabréf
Islenskrar málnefndar og flutti ýmislegt efni úr verkahring nefndarinnar. Þetta var
eins konar tilraun, sem gafst bærilega. Ekki verður annað séð en Fréttabréf hafi haft
tilætluð áhrif. Það var aldrei söluvara en var sent ýmsum sem sýndu því áhuga eða
það var talið eiga erindi við, t.d. íslenskukennurum og fræðimönnum hérlendis og
erlendis, fjölmiðlum, bókasöfnum, opinberum stofnunum og alþingismönnum. Alls
komu út 6 tölublöð af Fréttabréfi, tvö á ári, og var ætlunin að halda útgáfunni
eitthvað áfram. Af því varð þó ekki, og olli einkum annríki ritstjórans.
Smám saman fór að mótast sú hugmynd að gefa út ögn veglegra rit en þetta fjöl-
ritaða fréttabréf, sem sumum þótti auk þess bera nafn með enskum keim (fréttabréf
er þýðing á e. newsletter). Nú hefir málnefndin ákveðið að tímarit hennar skuli heita
Málfregnir og koma út tvisvar á ári, vor og haust.
Málfregnum er ætlað svipað hlutverk og Fréttabréfi áður. Þó er vonast til að þær
komist nær því að mega kallast tímarit um málrækt. Hér verði unnt að birta stuttar
fræðandi ritgerðir um það efni, eða góðar hugvekjur, og meira um málfarsleg atriði
til leiðbeiningar og fræðslu, þar á meðal um nýyrði. Málfregnir eiga að flytja hvers
konar efni sem varðar íslenska málrækt eftir því sem ástæður leyfa. Leitast verður
við að greina frá afskiptum stjórnvalda af íslensku máli og aðgerðum annarra opin-
berra aðilja. Þetta á einnig við um ýmsar athafnir málnefndarinnar sjálfrar og
sitthvað af hennar verksviði sem ástæða þykir til að segja frá. í Málfregnum verða
birtar stuttar umsagnir um bækur, greint frá niðurstöðum málfræðilegra rannsókna
sem varða íslenska málrækt, sagt frá fundum, ráðstefnum og fleira slíku.
Titilsíðan og merki málnefndar er teiknað á Auglýsingastofu Kristínar. Merkið
gerði Björn H. Jónsson auglýsingateiknari.
Þess er vænst að Málfregnir geti náð til sem flestra áhugamanna um íslenskt mál,
kennara, fræðimanna, rithöfunda, stjórnmálamanna, embættismanna, sérfræðinga í
ýmsum greinum, kaupsýslumanna, auglýsenda, fjölmiðlafólks o.s.frv. Segið vinum
og kunningjum frá Málfregnum og hvetjið þá til að gerast áskrifendur. Hafið sam-
band við íslenska málstöð, Aragötu 9. 101 Reykjavík. Sími (91) 28530.
Málfregnir vænta góðrar samvinnu við lesendur sína og ábendinga frá þeim. BJ