Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 9

Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 9
hluti af slíku dagskrárefni undanþegnar ákvæðum 1. tl. 1. mgr. þessarar grein- ar.“ Ef varnarliðsútvarpið er frá talið er öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum í landinu gert að skilyrði að „efla íslenska tungu“. Hverri stöð er í sjálfsvald sett hvernig þau orð skulu túlkuð. Þau eru ekki útskýrð umfram það litla sem fram kemur í tilvitnuðum reglugerðarákvæð- um, og það lýtur einungis að sjálfsagðri þjónustu eða í hæsta lagi að varnarað- gerðum. A Ríkisútvarpinu hvíla auð- vitað mestar siðferðislegar skyldur gagn- vart tungu þjóðarinnar, og raunar einnig lagalegar, sbr. 15. gr. útvarpslaga. Það hefir á sínum vegum sérstakan málfars- ráðunaut til að fylgja eftir ákvæðum laga og reglugerðar að nokkru leyti. En hvað um hinar stöðvarnar? f útvarpslögunum segir (í 2. mgr. 2. gr.): „Öðrum aðilum [þ.e. öðrum en Ríkis- útvarpinu] má veita leyfi til útvarps. Skal starfa sérstök nefnd, útvarpsréttarnefnd, sem veitir slík leyfi samkvæmt 3.-6. grein þessara laga og fylgist með að reglum þeirra sé fylgt“ (auðkennt hér). Eftir þessu að dæma á útvarpsréttarnefnd að fylgjast með því að útvarpsstöðvar full- nægi því skilyrði að „efla íslenska tungu". Útvarpsréttarnefnd skipa sjö menn sem kosnir eru á Alþingi til fjögurra ára. Menntamálaráðherra skipar formann og varaformann úr hópi hinna kjörnu. í „Reglugerð um útvarp samkvæmt tímabundnum leyfurn" eru í 3. gr. ákvæði um þau atriði, sem fram þurfa að koma í umsókn um leyfi til útvarps. Þar er ekkert að finna um það hvernig umsækjandi hyggst fullnægja skilyrði laganna um að „efla íslenska tungu". Um það efni þarf hann ekkert að segja. „Útvarpsréttarnefnd getur afturkallað leyfi til útvarps séu reglur brotnar, enda sé um alvarleg og ítrekuð brot að ræða“, segir í 8. gr. útvarpslaga. Sú vanrækslu- synd að láta undir höfuð leggjast að efla íslenska tungu verður líklega seint talin til ítrekaðra brota. Skilyrðið, sem sett er um þetta atriði í lögunum, er því lítið annað en viljayfirlýsing löggjafans. Hins vegar ætti að vera auðveldara að taka á ákvæðum 6. gr. reglugerðar nr. 70 1986 um íslenska texta eða tal með erlendu myndefni og um það að allt íslenskt tal og texti í útvarpi skuli vera á lýtalausu máli. En varla dettur nokkrum manni í hug að útvarpsréttarnefnd fari að rekast í því þó að eitthvað fari úrskeiðis í þessum efnum, hvað þá að svipta stöðvar útvarpsleyfi fyrir mállýti. Akvæði laganna eru svo sem góðra gjalda verð, en við verðum að gera okkur ljóst af fullu raunsæi að þau tryggja ekki góða meðferð máls í útvarpi og sjónvarpi. í hæsta lagi veita þau eitt- hvert aðhald. Eftir sem áður kemur hið raunverulega aðhald frá sterku almenn- ingsáliti. Ef það bregst er öll löggjöf máttlaus. Þetta á líka við um Ríkisútvarpið þó að það hafi málfarsráðunaut. Hlust- endur mega ekki ætlast til alls af honuni. Því aðeins getur hann orðið að umtals- verðu gagni að hann eigi vísa stoð í opin- skáu almenningsáliti. f rauninni er hann í þjónustu þess. Margt er vel gert í útvarpi og sjón- varpi og ber að þakka það. Ekki virðist vanta tæknilegan metnað. Við eigum góða fréttamenn, þuli og dagskrárgerð- arfólk og mætti taka blómann úr því liði til fyrirmyndar. En þegar á heildina er litið skortir mikið á í meðferð máls, meiri metnað, meiri örvun, meiri ögun og betri tilsögn. Reglugerðin gerir þá kröfu að íslenskt tal og texti í útvarpi skuli að jafnaði fylgja erlendu efni. Er sú krafa virt? Reglugerðin gerir einnig kröfu um að allt íslenskt tal og texti skuli vera á lýta- lausu máli, en daglega sitja landsmenn undir útvarpi mállýta af öllu tagi bæði í Ríkisútvarpi og öðru útvarpi. Hlust- endur eiga ekki að láta slíkt yfir sig 9

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.