Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 19

Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 19
meðferð tungunnar og góða blaða- mennsku. Að samantekt yfir þau svið þjóðlífs- ins, þar sem málblóndunar gætir mest, hefur ekki tekist að vinna umfram það sem getið er hér á undan. Nefndin telur þó að með tillögum hennar um lestur og kennslu móðurmálsins, um aðhald í meðferð tungunnar í fjölmiðlum og útgáfu lestrarbókar sé vegið með ákveðnum hætti að rótum meinsemd- anna. Þó skal á það bent að stöðugur ágangur erlendra sönglagatexta er kannski alvarlegastur. Þar þykir nauð- synlegt að frelsi ríki og telur nefndin ekki á sínu valdi að hafa afskipti af mál- vöndun í þeim frjálsræðishópi". Umsögn íslenskrar málnefndar Menntamálaráðuneytið óskaði eftir uinsögn Islenskrar málnefndar um tvö þessara nefndarálita, og fer hún hér á eltir. Þessi umsögn var samþykkt á mál- nefndarfundi 11. mars 1987. Formaður málnefndar tók ekki þátt í afgreiðslu málsins, enda átti hann sæti í báðum nefndunum sem umsögnin varðar. „Að beiðni menntamálaráðuneytisins í bréfi, dags. 28. janúar 1987, hefur íslensk málnefnd tekið til athugunar álitsgerð um málvöndun og framburðar- kennslu í grunnskólum, sem málvönd- unar- og framburðarnefnd á vegum menntamálaráðherra skilaði af sér 30. október 1986, svo og greinargerð, sem málnefnd skipuð af menntamálaráð- herra 29. apríl 1986 skilaði af sér 8. des- ember 1986. Þeim atriðum í tillögum málvöndunar- og framburðarnefndar, sem íslensk mál- nefnd vill vekja athygli á, má skipta í fernt: 1. Menntun og endurmenntun kennara. Málnefndin tekur undir það að námsefni í íslensku í grunnskólum megi auðga og bæta, bæði með rituðu máli og mynd- böndum. En besta ráðið til úrbóta er að efla menntun kennara. í raun eru allir kennarar íslenskukennarar. Því ber að leggja höfuðáherslu á öfluga íslensku- menntun í Kennaraháskóla íslands og vel skipulagða endurmenntun. 2. Samning handbóka handa kennur- um. Málnefndin tekur einnig undir til- lögur „Álitsgerðar" um samningu hand- bóka handa kennurum. Leiðbeiningar þær, sem málvöndunar- og framburðar- nefnd hefur tekið saman, má að vísu lag- færa, en þær eru miklu betri en ekki neitt og mætti bjargast við þær fyrst um sinn án mikilla breytinga. Hins vegar telur mál- nefndin brýna þörf fyrir kennarahand- bók í beygingar- og orðmyndunarfræði og því næst í setninga- og stílfræði. Málnefndin leyfir sér að mæla með því við ráðuneytið að ráðnir verði valin- kunnir menn - eins fljótt og við verður komið - til að taka saman þrjú leiðbein- ingarrit handa kennurum (30-50 bls. hvert): 1) um beygingu og orðmyndun, 2) um skipan orða, setningagerð og stíl og 3) um framburð, framsögn og boð- skipti. Við samningu þessara rita verði stuðst við „Álitsgerðina" og ábendingar með tillögum hennar. Síðasta ritið gæti verið endurbætt gerð þeirra leiðbein- inga, sem þegar liggja fyrir. 3. Frœðslurit handa foreldrum. Sú hugmynd, sem fram kemur í „Álitsgerð- inni", að taka saman fræðslurit handa foreldrum, er allrar athygli verð, en beinar tillögur um það efni hefur mál- nefndin ekki. 4. Islensk orðabók handa grunnskól- um. Eflaust er þörf fyrir íslenska orða- bók, sem hæfir grunnskólum betur en hin stóra orðabók Menningarsjóðs, og 19

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.