Málfregnir - 01.05.1987, Side 10
ganga átölulaust. Ekkert annað en virkt sem forsvarsmenn stöðvanna þurfa að
almenningsálit getur vakið þann metnaö hafa og starfslið þeirra. - BJ
Málstefna Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið skal samkvæmt lögum efla
íslenska tungu og menningu. Útvarpsráð
telur að stofnunin hafi mikilvægu
fræðslu- og uppeldishlutverki að gegna á
þessu sviði.
Allt málfar í Ríkisútvarpinu á að vera
til fyrirmyndar, og allt sem frá stofnun-
inni kemur, á vandaðri íslensku, flutt
með góðum framburði.
Erlend orð sem ekki verður komist
hjá að nota, ber að samræma lögum
íslenskrar tungu, eftir því sem fært þykir
og góð venja býður.
Um einstök atriði
1) Vandað mál er markvisst og felst í
góðu orðavali, réttum beygingum,
eðlilegri orðskipan, skýrri hljóð-
mótun, réttum áherslum og eðlilegu
hljómfalli samfellds máls. Starfs-
menn Ríkisútvarpsins eiga að leggj-
ast á eitt til að málfar í útvarpi og
sjónvarpi sé til fyrirmyndar.
2) Þeir sem vinna að dagskrárgerð,
skulu jafnan gæta þess að ntálfar sé
vandað og svo auðugt sem skynsam-
legt er eftir aðstæðum. Þeir bera
ábyrgð á að texti sá sem flytjandi
fær í hendur, sé réttur og fullnægi
þessurn skilyrðum.
3) Flytjendum dagskrárefnis ber að
vanda framburð sinn og flutning á
alla lund. Þeir eiga að gæta þess
eftir mætti að málfar textans full-
nægi ofangreindum skilyrðum. Mál-
villur eiga þeir að leiðrétta en mega
ekki breyta málfari að öðru leyti án
samráðs við ábyrgðarmann textans.
Verkstjóra ber að sjá um að hlutað-
eigandi starfsmaður dagskrár fái hið
fyrsta upplýsingar um vangá sem
hann hefur gert sig sekan um í þessu
efni.
4) Aðsent efni á að fullnægja eðli-
legum kröfum um málfar.
5) Auglýsingar skulu vera á gallalausri
íslensku og fluttar með góðum
framburði. Ef sérstök ástæða er til,
getur útvarpsstjóri þó leyft að
sungið sé eða talað á erlendu máli í
auglýsingu.
6) Ríkisútvarpinu ber stöðugt að gefa
starfsmönnum sínum kost á að
auðga íslenskukunnáttu sína og
bæta málfar sitt og framsögn, bæði á
námskeiðum og með einstaklings-
fræðslu. Starfsmönnum er skylt að
nýta sér slíka fræðslu ef málfars-
ráðunautur telur það nauðsynlegt.
Málfarsráðunautur hefur umsjá
með þessari starfsemi stofnunarinn-
ar.
7) Málfarsráðunautur eða annar sér-
fróður maður á að vera starfs-
mönnum á fréttastofum, auglýsinga-
stofum og öðrum slíkum vinnu-
stöðum Ríkisútvarpsins til halds og
trausts, meðal annars með því að
lesa yfir handrit fyrir útsendingu
eftir því sem unnt er.
8) Forðast skal útlent mál í efni sem
samið er til flutnings í Ríkisútvarp-
inu, en þegar ekki verður hjá því
komist, svo sem í fréttum, viðtölum
við útlendinga og svo framvegis, ber
jafnan að flytja eða sýna íslenska
þýðingu samtímis nema bein ástæða
sé til annars.
9) Sjónvarpsefni sem ætlað er börnum
og unglingum sérstaklega, skal flutt
á íslensku eftir því sem kostur er.
10) Sérnöfn úr erlendum málum ber að
fara með í samræmi við góða
10