Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 11
íslenska málhefð. Ríki, lönd,
borgir, héruð, höf, fljót, fjöll, og
annað slíkt ber að nefna hefð-
bundnum íslenskum heitum, ef þau
eru til, svo sem Hjaltland (ekki
Shetland), Kaupmannahöfn eða
Höfn (ekki Köbenhavn né Köben),
Björgvin (ekki Bergen), Saxelfur
(ekki Elbe né Elba). Sé þessa ekki
kostur, ber að nota eftir því sem
unnt er þau heiti sem íbúar viðkom-
andi landa tíðka sjálfir, svo sem
Nuuk (ekki Godtháb), Múnchen
(ekki Munich), Nice (ekki Nissa),
Westfalen (ekki Westphalia).
11) Heiti á útlendum mönnum skal fara
með að hætti viðkomandi þjóðar
eftir þvf sem unnt er, nema íslensk
hefð sé fyrir öðru, eins og er um
mörg heiti erlendra þjóðhöfðingja
sem erfa ríki, og heiti páfa. Heiti
stofnana, hljómsveita, listaverka og
þess háttar er rétt að íslenska þegar
fært þykir, og gæta þá samræmis
eftir því sem unnt er.
12) Skammstafanir sem engum breyt-
ingum taka, fara illa í mæltu máli í
stað nafna á samtökum, fyrirtækjum
og stofnunum. Pær skal forðast.
Rétt er að nota óstytt heiti í upphafi
frásagnar en síðan stytt heiti sem
lýtur lögmálum tungunnar fremur
en skammstöfun, svo sem Sam-
bandið fyrir SÍS, Alþýðusambandið
fyrir ASÍ, Bandalagið fyrir BSRB
og svo framvegis.
13) Utvarpsráð vekur athygli á einhliða
áhrifum enskrar tungu á íslenskt
mál um þessar mundir og telur að
bregðast verði við með markvissum
hætti, meðal annars í starfsemi
Ríkisútvarpsins.
14) I Ríkisútvarpinu skulu að staðaldri
vera fræðsluþættir um íslenskt mál
og notkun þess.
Ályktun málnefndar
Islensk málnefnd fagnar samþykkt
útvarpsráðs um málstefnu Ríkisútvarps-
ins og getur fallist á hana í öllum aðalat-
riðum. Nefndin vill þó vekja athygli á
því, að erlendum tungumálum hefur að
hennar dómi verið gert of hátt undir
höfði í auglýsingum. fréttum og íþrótta-
þáttum sjónvarps. Nefndin telur ekki
koma nægilega skýrt fram í samþykkt-
inni, að breytt skuli um stefnu í þessu
efni (sjá einkum 5. og 8. tl.). Að öðru
leyti telur málnefndin mikils um vert, að
hinni nýju stefnu Ríkisútvarpsins verði
framfylgt og heitir stuðningi við fram-
kvæmd hennar.
II