Málfregnir - 01.05.1987, Qupperneq 13
árlegu |iingum þeirra ef viö verður
komiö.
Nefndin skal einnig, eftir ástæðum,
hafa samvinnu við erlendar stofnanir
sem gefa út sérhæfð orðasöfn, þ. á m.
staðla.
Að öðru leyti skal málnefndin leit-
ast við að kynna sér starfsemi
erlendra málræktarstofnana og
alþjóðlegt samstarf til eflingar þjóð-
tungum.
Skipan málncfndar og fundir
3. gr.
Fimm menn eiga sæti í íslenskri
málnefnd, skipaðir af menntamálaráð-
herra. Háskólaráð tilnefnir einn mann.
heimspekideild Háskólans einn og Orða-
bók Háskólans einn, en tveir eru
skipaðir án tilnefningar.
Menntamálaráðherra skipar formann
og varaformann úr hópi nefndarmanna.
Skipunartími nefndarinnar er fjögur
ár.
4. gr.
Islensk málnefnd kemur saman þegar
formaður boðar til fundar eða þrír nefnd-
armenn hið fæsta óska þess. Forstöðu-
rnaður Islenskrar málstöðvar skal jafnan
boðaður á fundi nefndarinnar (sbr. 9.
gr-)-
Málnefndin er ályktunarfær ef meiri
hluti nefndarmanna er á fundi.
Nú eru atkvæði jöfn og ræður þá
atkvæði formanns.
Tekjur málnefndar
5. gr.
Starfsemi íslenskrar málnefndar er
kostuð af ríkisfé samkvæmt því sem veitt ,
er í fjárlögum og hefur hún sjálfstæðan
fjárhag.
Aðrar tekjur nefndarinnar eru:
a) styrkir til einstakra verkefna,
b) greiðslur fyrir aðstoð eða verk sem
unnin eru á vegum málnefndar,
c) tekjur af útgáfu rita,
d) gjafir.
Um íslenska málstöð
6. gr.
fslensk málstöð er skrifstofa íslenskrar
málnefndar og miðstöð þeirrar starfsemi
sem málnefndin hefur með höndum.
Málstöðin er einnig samstarfsvett-
vangur málnefndarinnar og Háskóla
íslands, sbr. 9. gr. og 11. gr.
Málstöðin getur haft með höndum
hagnýtar rannsóknir á íslensku máli og
beitt sér fyrir eða tekið þátt í slíkum
rannsóknum í samvinnu við aðra. Þar
getur ýmist verið um að ræða rannsókn-
arverkefni á starfssviði málnefndar, sem
unnin eru fyrir hana, eða verkefni er
forstöðumaður á frumkvæði að og teljast
þá háskólaverkefni, sbr. 9. gr.
Nú tekur málstöðin að sér verkefni,
sem ekki er unnið fyrir málnefndina, og
tekur greiðslu fyrir. Pá skal greiða skatt
af því í Rannsóknasjóð Háskólans eins
og af þjónustuverkefnum háskólastofn-
ana en heimilt er að öðru leyti að nota
fé, sem þannig er aflað, til að efla starf-
semi málstöðvarinnar.
Málstöðin getur einnig í samvinnu við
Málvísindastofnun Háskóla íslandsgefið
stúdentum kost á þjálfunarstörfum við
rannsóknir o.fl. eftir því sem aðstæður
leyfa, sbr. e-lið 16. gr. reglugerðar nr.
89/1983 um rannsóknastofnanir heim-
spekideildar.
7. gr.
Málstöðin skal fylgjast með þróun íðorða-
banka í öðrum löndum, undirbúa slíkan
banka hér og sjá um rekstur hans.
Málstöðin skal leitast við að ganga svo
frá gögnurn og heimildum, orðaskrám af
ýmsu tagi og öðru slíku, sem hún ræður
yfir, að sem best not verði af. Skal mál-
stöðin kappkosta að liðsinna starfs-
13