Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 16

Málfregnir - 01.05.1987, Blaðsíða 16
Málvöndun og framburðarkennsla í grunnskólum Sú nefnd sem gera átti tillögur um mál- vöndun og framburðarkennslu í grunn- skólum var skipuð 21. febrúar 1985. I henni áttu sæti fjórir menn: Baldur Jóns- son prófessor, Guðmundur B. Krist- mundsson námsstjóri og yfirkennari, formaður, Höskuldur Þráinsson pró- fessor og Indriði Gíslason dósent. Helstu verkefni, sem nefndin átti að vinna að, voru í erindisbréfi talin þessi: 1. Tillögur að stefnu í framburðar- kennslu. Þar verði m.a. tekið mið af framburðarrannsóknum og við- horfum til framburðar og framburð- arkennslu sem greina má í þjóðfélag- inu. 2. Skipan framburðarkennslu í grunn- skólum. Hvenær skal hefja framburð- arkennslu? Á hvað skal leggja áherslu? Hvernig má tengja fram- burðarkennsluna öðrum þáttum talmáls í skóla? Nefndin taki í umfjöllun sinni mið af þroska barna á grunnskólaaldri og farsælli þróun íslenskrar tungu. 3. Aðstœður framburðarkennslu. Nefndin leitist við að kanna hvað standi einkum í vegi fyrir framburð- arkennslu í grunnskólum. 4. Tillögur að stefnu í málvöndun. Nefndin skal leitast við að gera grein fyrir þeim viðhorfum sem fram koma um málvöndun í námsefni og meðal kennara og foreldra. Tillögur um málvöndun í grunnskólanámi taki mið af þroska nemenda og farsælli þróun íslenskrar tungu. 5. Tillögur um framkvæmd. Nefndin geri tillögur um hvernig ofangreindri stefnu verði best framfylgt í grunn- skólanum og geri jafnframt grein fyrir hvað hún telur helst standa í vegi fyrir að þeirri stefnu verði framfylgt. 6. Námsefni og námsgögn. Nefndin semji skrá um námsefni og önnur kennslugögn sem hún telur nauðsyn- leg til að sinna málvöndun og fram- burðarkennslu. Tillögum að námsefni fylgi stutt lýsing. Þegar nýr menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, tók við embætti haustið 1985 var honum gerð grein fyrir starfi nefndarinnar, sem þá var komið á góðan rekspöl, og óskaði hann eftir að hún héldi því áfram. Nefndin lauk störfum 30. október 1986 og skilaði þá fjölritaðri skýrslu, sem nefnist Álitsgerð um málvöndun og framburðarkennslu í grunnskólum (71 bls.). Skýrslunni fylgdi bæklingursem nefndarmenn höfðu tekið saman, og nefnist hann Um íslenskan framburð. Leiðbeiningar. Þar er að finna leiðbeiningarefni um hljóðfræði og framburð, ætlað kennurum. Bæði þessi rit hafa nú verið gefin út fjölrituö í nýrri ritaröð Kennaraháskóla íslands (B- flokkur: Fræðirit og greinar. 1-2. Rvík 1986-87). Áhugasömum lesendum er bent á að snúa sér til Kennaraháskólans. Álitsgerðin skiptist í fjóra kafla. Fyrst er greinargerð um störf nefndarinnar. Þá kemur sögulegt yfirlit yfir afskipti stjórn- valda af íslenskum framburði. Þau voru mest á árunum 1947-1954. Þá lágu fyrir tillögur um opinberar reglur um ís- lenskan framburð, en þær hlutu aldrei afgreiðslu yfirvalda. í þriðja kafla, sem er mestur að vöxtum, er nefndarálitið um málvöndun og framburðarkennslu í grunnskólum. Þar er meginstefnan sett fram bæði í málvöndun yfirleitt og fram- burði sérstaklega. Fjallað er um ýmis hugtök, sem oft er beitt í umræðu um málvöndun, og loks er rætt um beyging- ar, setningafræðileg atriði, nýyrði, orð- myndun, merkingar og orðatiltæki. í fjórða kafla eru tillögur nefndarinnar um framkvæmd þeirrar stefnu sem mörkuð var og er þar af mörgu að taka, sem of langt er upp að telja hér. Hinna helstu er getið í umsögn íslenskrar málnefndar hér á eftir. 16

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.