Málfregnir - 01.05.1987, Side 17
Sérstök málnefnd
29. apríl 1986 skipaði Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra nefnd til að
gera tillögur um meðferð tungunnar í
skólum, á vinnustöðum og í fjölmiðlum.
í nefndina voru skipuð: Baldur Jónsson
prófessor, Guðrún Kvaran deildarstjóri,
Indriði G. Porsteinsson rithöfundur, for-
maður, Stefán Jónsson rithöfundur og
Ævar Kvaran leikari.
Verkefni, sem upp eru talin í erindis-
bréfi, eru þessi:
1. að gera tillögur um meðferð tung-
unnar í skólum, á vinnustöðum og í
fjölmiðlum;
2. að vinna að samantekt yfir þau svið
þjóðlífsins þar sem málblöndunar
gætir mest;
3. að gera tillögur um kennslu í mæltu
máli í skólum, m.a. með námskeiðum
og upplestri til þess hæfra manna í
kennslustundum;
4. að finna leiðir til að efla málkennd
fjölmiðla cg aðferð til að halda þeirri
kennd við til frambúðar;
5. að láta orðtaka vinnusvæði með það
fyrir augum að íslenska það sem
aflaga fer og auglýsa þýðingar á vinnu-
stað;
6. að athuga hvort ekki er rétt að gefa út
og taka til kennslu nýja lestrarbók í
líkingu við lestrarbók Sigurðar
Nordal;
7. að athuga hvort gerð myndbanda
kynni að auðvelda kennslu í íslensku;
8. að kanna hvort ástæða er til að taka
upp sérstaka framburðarkennslu fyrir
verðandi íslenskukennara og gera þá
námsgrein prófskylda.
Nefndin lauk störfum í desember 1986
með því að formaður hennar sendi ráð-
herra greinargerð um nefndarstörfin,
dags. 8. desember 1986. Greinargerðin
var prentuð, 5 tölusettar blaðsíður auk
kápu. Titill hennar er: Málnefnd skipuð
af menntamálaráðherra 29. apríl 1986.
Greinargerð. Meginefni hennar fer hér á
eftir:
„Gerð var nokkur athugun á hvar
málblöndunar gætir mest og er ljóst að
þar koma nokkrir staðir til athugunar,
eða vinnusvæði. Fyrst skal telja Flug-
leiðir og flugsamgöngur yfirleitt, þar sem
ekki hefur verið unnið að því á skipu-
legan hátt að þýða á íslensku ýmis þau
vinnuheiti sem viðgangast í alþjóðaflugi.
Stefán Jónsson, rithöfundur, gerði sér-
staka athugun á þessum atriðum og kom
þar fram að lítið hefur verið unnið að
málvöndun hjá Flugleiðum þrátt fyrir
yfirlýsingu þar um 1. desember 1985.
Þá var leitað eftir samvinnu við Eim-
skipafélag íslands h.f. og fékk mála-
leitan nefndarinnar góðar undirtektir.
Nú þegar nefndin hættir störfum hafa
engin svör borist þótt ljóst sé að þar er
unnið að tillögum. Vildi nefndin ekki
bíða með að ljúka störfum þrátt fyrir
þetta atriði. Vonir standa til að tillögur
Eimskipafélagsins verði þannig að nota
ntegi þær víðar í þjóðfélaginu. Stefán
Jónsson ræddi einnig við kaupmenn og
togaramenn um málnotkun og mál-
hreinsun og virtist það samdóma álit
manna að málkennd væri áberandi verri
hjá ungu fólki en þeim sem eldri eru. Þá
er ljóst í hverjum erfiðleikum tungan er
innan poppiðnaðarins. Nefndin hefur
ekki séð sér fært að gera neinar sérstakar
tillögur í þessu efni, en væntir framlags
Eimskipafélagsins, og mun formaður
nefndarinnar annast þau samskipti.
Nefndinni var falið að gera tillögur um
kennslu í mæltu máli í skólum. Niður-
stöður hennar voru að fella skyldi niður
einkunnagjöf fyrir hraðlestur en taka í
staðinn upp einkunnagjöf fyrir lestur
almennt, þar sem tillit er tekið til fram-
burðar, lesturs og hraða. Haldin verði
námskeið fyrir lestrarkennara þar sem
þeim verður leiðbeint í upplestri og
hvernig kenna má lestur þannig, að sem
17