Málfregnir - 01.05.1987, Síða 20

Málfregnir - 01.05.1987, Síða 20
telur íslensk málnefnd vert að stuðla að því að samdar verði hentugar orðabækur til nota í grunnskólum. íslensk málnefnd tekur sérstaklega frani að hún er sammála þeirri tillögu málvöndunar- og framburðarnefndar að „kennsla og þjálfun í framburði hefjist strax við upphaf skólagöngu og vari meðan á námi í grunnskóla stendur.“ Telur íslensk málnefnd löngu orðið brýnt að framburðarmálin séu tekin fast- ari tökum í skólakerfi landsins. íslensk málnefnd getur fallist á þá afstöðu mál- vöndunar- og framburðarnefndar að ekki sé rétt að taka upp samræmdan ríkisframburð, en hins vegar vill íslensk málnefnd leggja meiri áherslu en mál- vöndunarnefndin gerir á það að reynt verði að kenna og ýta undir eldri framburð, sem allmikill hluti þjóðar- innar notar enn og eftirsjá væri að, ef niður félli. Er þar einkum átt við harð- mæli, hv-framburð og raddaðan fram- burð. íslensk málnefnd telur æskilegt að nemendur hljóti góða þjálfun í að beita slíkum framburði, jafnvel þótt almenn notkun hans verði ekki gerð að skyldu, enda ætti slík þjálfun að geta stuðlaö að auknum skýrleik í framsögn. Auk þess má t.d. benda á að hv-fram- burður er stundum nauðsynlegur í flutn- ingi ljóða. Af tillögum málnefndar vill íslensk málnefnd sérstaklega taka undir til- löguna um árleg námskeið í íslensku og framburði móðurmálsins fyrir frétta- menn og aðra þá, sem sinna þular- störfum eða dagskrárgerð hljóðvarps og sjónvarps. Jafnframt telur íslensk mál- nefnd athyglisverða þá tillögu að gerð verði þriggja ára áætlun um gerð sjón- varpsefnis um íslenska menningu, mál, bókmenntir og sögu. Útgáfa nýrra íslenskra lestrarbóka ásamt snældum með upplestri færustu manna væri einnig góðra gjalda verð“. 20

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.