Málfregnir - 01.12.1998, Page 3

Málfregnir - 01.12.1998, Page 3
ARI PÁLL KRISTINSSON Tjáningartæki og fyrirmynd Um mál í útvarpi og sjónvarpi Eftirfarandi erindiflutti Ari Páll Kristinsson á málrœktarþingi íslenskrar málnefndar og Utvarpsréttarnefndar sem haldið var 14. nóvember 1998 í tengslum við dag íslenskrar tungu. Góðir þinggestir. Mál í talmiðlum Utvarp og sjónvarp er oftast nefnt einu nafni ljósvakamiðlar, sbr. t.d. sænska orðið eter- medierna. I því sem hér fer á eftir mun ég nota orðið talmiðlar. Ut af fyrir sig legg ég orðin tvö að jöfnu en mér finnst orðið tal- miðlar á margan hátt liprara í notkun en Ijósvakamiðlar og í orðinu talmiðlar er lögð áhersla á talið; átt er við fjölmiðla sem (m.a.) senda út talað mál. Það gætu verið til ljósvakamiðlar þar sem alls ekkert talað mál er sent út. Hér er yfirhugtakinu fjölmiðlum því skipt í talmiðla og ritmiðla. Mál í talmiðlum er afmarkað félagslegt fyrirbæri og annað en venjulegt talmál og svo auðvitað annað en ritmál. Munur tal- máls og ritmáls verður einkar sýnilegur þeg- ar talað mál hefur verið skrifað upp frá orði til orðs og gerð grein fyrir öllu hiki, endur- tekningum o.s.frv. Lítum til fróðleiks á tvö dæmi um samtöl, annars vegar úr dægur- málaþætti og hins vegar úr viðtali í frétta- tíma. A og B eru þeir sem ræðast við. = táknar örstutt hlé í tali. Stakt e táknar hik- (sér)hljóð, mismunandi að hljóðgildi. Dæmi úr samtali í dægurmálaþætti A: e minnti hann helst á á svona = e klass = B: sumardag = A: sumardag = við skulum vona að þeim = sækist ferðin = vel og örugglega til til höfuðborgarinnar = nú e = við nefndum hér afmælisbam = Benjamin nokkum Franklin sem fann upp ruggustólinn = þökk sé honum fyrir það = og = það má nefna = fleiri menn sem koma við sögu á tuttugustu öldinni eins og = eins og misindismanninn = gangsterinn = Alphonse Capone = öðm nafni A1 Capone = fæddur átján hundrað níutíu og níu = ég veit ekki hverjir minnast þess = í dag en = B: kannski ekki fæðingarárs allavega = A: hann var nefndur scarface eða = já vegna þeirra öra í andliti andlitinu á honum sem voru svona samræmt = í samræmi við = framferði hans e = á götunni eða í götunni = hér og þar = vestur í Bandaríkjunum = örgrani = getum við líklega nefnt hann = B: örgrani = A: er það ekki ágætt = eru þeir ekki nefndir rauðgrani sem era rauðir í framan = Dæmi úr viðtali í fréttatíma A: er skipið algjörlega vélarvana = B: hann er algjörlega = vélarvana þarna = A: hvernig er veðrið þarna úti = B: mér er sagt að þama sé núna = e = s = austnorðaustan = sjö sjö vindstig = e A: er varðskipið þama nálægt = B: varðskipið var komið þama strax í gærkvöld og er búinn að vera þarna í nánd- inni = síðan að þetta gerðist = A: hvemig = hvað verður gert = verður farið inn til Noregs eða = e = hvaða hvaða kosti eigið þið Þessi dæmi era úr útvarpi eins og sjá má en ekki úr venjulegum talmálsaðstæðum utan talmiðla. Dæmin sýna þó glöggt muninn á tiltölulega óformlegu töluðu máli og hins vegar venjulegu ritmáli. Hér koma í ljós 3

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.