Málfregnir - 01.12.1998, Blaðsíða 21
ekki aðra umferð til. Þegar þetta er ritað er
hausthefti blaðsins nýkomið út, og nú heitir
blaðið Harmonikan - blað harmonikuunn-
andans. Ætla má að harmonika verði ríkj-
andi ritháttur í heitum félaganna um allt
land og heildarsamtakanna. Reynslan verð-
ur síðan að leiða í ljós hvort menn sætta sig
við þessa niðurstöðu þegar til lengdar lætur.
Ég býst ekki við að atkvæðagreiðsla, eins
og sú sem nú var sagt frá, sé nothæf aðferð
til að úrskurða um rithátt tökuorða. En mér
fannst ómaksins vert að gera þessa tilraun af
því að svo sérstaklega stendur á að ekki
verður með fræðilegum rökum gert upp á
milli þeirra sex tilbrigða sem í boði eru. Ef
miðað er við fyllstu aðlögunarkröfur, eins
og þær hafa t.d. verið settar fram í íslensk-
um gjaldmiðlaheitum (1997), bls. 11, er
ekkert tilbrigðanna ótvírætt betra en annað.
Ritháttur orðabúka
Það yrði of langt mál að rekja dæmi um til-
brigðin sex í íslenskum ritum, og auðvitað
óvinnandi vegur að safna þeim saman, en til
gamans heft ég hugað að þeim í kunnum
orðabókum og kynnt mér dæmi Orðabókar
Háskólans. Verður gerð nokkur grein fyrir
því hér á eftir og þá um leið drepið á atriði
úr sögu hljóðfærisins og upphaflega notkun
hins erlenda orðs.
Fyrst koma hér dæmi um rithátt orðsins
harmonika í nokkrum íslenskum orðabók-
um, raðað í tímaröð eftir útgáfuári bókar.
1896: harmoníka (Jónas Jónasson o.fl.
Ný dönsk orðabók með íslenzkum þýð-
ingum)
1920-1924: harmóníka [harmoníka]
(Sigfús Blöndal. íslensk-dönsk orðabók)
1932: harmónika (undir accordion og
concertina) (G.T. Zoéga. Ensk-íslenzk orða-
bók. 3. útg. endurprentuð)
1935: harmonika (Jón Ofeigsson. Þýzk-
íslenzk orðabók)
1947: harmónika (Halldór Halldórsson.
Stafsetningarorðabók með skýringum)
1957: harmoníka (Freysteinn Gunnars-
son. Dönsk-íslenzk orðabók. Endurskoðuð
og breytt útgáfa. Agúst Sigurðsson, Frey-
steinn Gunnarsson og Ole Widding sáu um
útgáfuna)
1959: harmóníka (í sams. harmón-
íkuhurð) (Sigurður Guðmundsson. Tœkni-
orðasafn. Halldór Halldórsson bjó til prent-
unar)
1962: harmonika, harmóníka (Valeríj
Bérkov og Arni Böðvarsson. Islenzk-rúss-
nesk orðabók)
1963: harmoníka, harmóníka (einnig
undir dragspil) (Arni Böðvarsson (ritstj.).
Islenzk orðabók handa skólum og almenn-
ingi)
1972: harmóníka (Gunnar Leijström,
Jón Magnússon og Sven B.F. Jansson. ís-
lenzk-sœnsk orðabók. 3. útg.)
1976: harmoníka, harmóníka (Ole
Widding, Haraldur Magnússon og Preben
Meulengracht Sprensen. íslenzk-dönsk
orðabók)
1982: harmoníka (undir dragspel),
harmonika (í harmonikuleikari, undir
dragspelare) (Aðalsteinn Davíðsson og
Gösta Holm. Sœnsk-íslensk orðabók)
1983: harmoníka, harmóníka;
harmonika (undir dragspil) (Ámi Böðvars-
son (ritstj.). íslensk orðabók handa skólum
og almenningi. 2. útg. aukin og bætt)
1984: harmóníka (undir accordion og
concertina) (Sören Sörenson. Ensk-íslensk
orðabók með alfrœðilegu ívafi. Jóhann S.
Hannesson bjó til prentunar ásamt fleimm)
1985: harmonika (Svavar Sigmundsson
(ritstj.). Islensk samheitaorðabók)
Ekki verður séð á þessu að nein þróun eigi
sér stað á tímabilinu 1896-1985 þannig að
eitt tilbrigði sæki á fremur en annað. Nokkr-
ar orðabækur hafa fleiri en eitt dæmi, sum í
samsetningum, og er ritháttur þeirra stund-
um mismunandi í sömu bókinni. í orðabók
Blöndals er aðeins eitt flettiorð, harmóníka,
og það er auðkennt með spurningarmerki
sem táknar óvandað mál, en samkvæmt því
21