Málfregnir - 01.12.1998, Síða 23

Málfregnir - 01.12.1998, Síða 23
verið haldið í þessari útgáfu. Sjá öftustu síður bókarinnar, bls. 257-258. Um upphaf orðs og hljóðfæris Eins og fram kom í þætti Gísla Jónssonar kemur orðið harmóníka fyrst fyrir í íslenskum ritum 1838 og 1839 (skv. tilvísun Orðabókar Háskólans) og þá stafsett svo. En þá er reyndar ekki verið að tala um það hljóðfæri sem nú er kallað harmonika, heldur sérstakt hljóðfæri sem Benjamín Franklín (1706-1790) fann upp 1762 og hef- ir verið kallað glerharmonika eða glasa- harmonika. Til er í latínu lýsingarorðið harmonicus, í kvenkyni harmonica. Það er grískrar ættar og merkir „samræmur, samstilltur“, leitt af nafnorðinu harmonia „samræmi, samhljóm- ur“. Benjamín Franklín varð fyrstur til að nota þetta latneska lýsingarorð sem nafnorð og heiti á hinu nýja hljóðfæri sínu (e. glass harmonica). Árið 1837 kom út í Danmörku rit um Benjamín Franklín eftir danskan prest, Markmann að nafni, þar sem stuðst var við sjálfsævisögu Franklíns. Þetta rit hefir orðið til að vekja athygli Islendinga á honum og umræður um hann. I Sunnanpóstinum 1838 er grein um Franklín þar sem minnst er á hljóðfæri hans og ári síðar kom út hin danska ævisaga í íslenskri þýðingu Jóns Sigurðssonar, síðar forseta. Þar kemur hljóðfærið aftur við sögu: „koma raddir þess úr mörgum glerklukkum, sem tempraðar eru til hljóðsbreytingar eftir sönglistar reglum," segir þar (bls. 74). í orðabók Konráðs Gíslasonar (Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum), sem út kom 1851, er tekið upp þetta nýja orð Harmonika (sem danskt flettiorð) og fylgir þessi skýring: „eins konar söngtól með gler- bjöllum eða glertungum“. Það fer ekki milli mála að þama er haft í huga glerahljóðfæri Benjamíns Franklíns eða eitthvað þess konar. Belghljóðfærið, sem nú er kallað harm- onika, kemur ekki til sögunnar fyrr en 1820- 1830 og er uppfinningin ýmist eignuð þýskum manni (Buschmann) eða austur- rískum. Munnharpan er frá svipuðum tíma og höfundur hennar talinn vera Þjóðverjinn Friedrich Buschmann (1805-1864). Þýska heitið á þessum hljóðfærum er Harmonika (Handharmonika, Mundharmonika) og hefir borist þaðan til Norðurlanda. Enn má geta þess að 1829 fann breski eðlisfræð- ingurinn Sir Charles Wheatstone (1802- 1875) upp það hljóðfæri sem á ensku nefnist concertina og er eins og lítil harmonika með sexstrendum hliðum (sjá Skírni 1876, bls. 62). Eftir orðabókum að dæma hafa Islendingar ekki gert greinarmun á þessum belghljóðfærum, heldur kallað allt saman harmoniku, og reyndar voru snemma til enn fleiri tilbrigði belghljóðfæra þótt hér verði ekki rakið. Um smíði eða framleiðslu þeirra er mér ekki kunnugt en þau fara varla að berast hingað sem verslunarvara fyrr en eftir 1850 (sbr. Konráðsbók). Konráð Gíslasyni hefir þó varla verið ókunnugt um belg- hljóðfæri ef það er rétt sem Þórbergur Þórð- arson sagði í palladómi sínum um Ársæl að Jónas Hallgrímsson (d. 1845) hafi haft það sér til dægrastyttingar í Höfn að spila á draggargan! Þuríður Kúld skrifar Jóni Árnasyni þjóð- sagnasafnara bréf, dags. í Flatey á Breiða- firði 29. nóv. 1859, og segir þar m.a. (Úr fórum Jóns Arnasonar I, 170): „Það sem eg núna ætla að leita yðar með er það, að útverka fyrir mig hjá Lambertsen, að hann sendi mér harmóníku, sem hann hafði lofað mér í sumar að senda mér með pósti, en hefir prettazt um, og hafði mað- urinn minn lofað honum borguninni þegar hún kæmi.“ (Ritháttur er samræmdur af út- gefanda, Finni Sigmundssyni.) Guðmundur Lambertsen (d. 1885) var úrsmiður og kaupmaður í Reykjavík á þessum tíma. Spumingin er hvers konar hljóðfæri hér er um að ræða. Glasaharmon- ika er það áreiðanlega ekki og fljótt á litið virðist ekki mjög sennilegt að Þuríður vilji láta senda sér belgharmoniku í pósti úr 23

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.