Fréttablaðið - 16.04.2016, Page 6
OPIÐ Í DAG
LAUGARDAG, KL. 11-15
ÁFRAM SAMA LÁGA VERÐIÐ Í SÓLINA
FLUG, GISTING, ÍSL.FARARSTJÓRN OG TASKA
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 585 4000 | uu.is
SUMARFRÍ VERÐ FRÁ 59.900 KR.
Aðalfundur
DC 3 Þristavinafélagsins verður haldinn
þriðjudaginn 3. maí 2016 kl. 17:30 í
Víkingasal Hótel Natura í Reykjavík.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Aðalfundur
Vinnuvistfræðifélagsins
Verður haldinn þriðjudaginn 19. apríl n.k. í
húsakynnum VÍS, Ármúla 3, 108 Reykjavík frá
kl.17:00-18:30
Sagt verður frá öruggara vinnuumhverfi með rafrænni
atvikaskráningu og breytingum á vinnuaðstöðu
starfsmanna VÍS, en þar var lögð rík áhersla líðan
starfsmanna og viðskiptavina.
Í framhaldi af kynningunni verður aðalfundur Vinnís
haldinn. Boðið verður uppá léttar veitingar. Skráning
á Facebook Vinnís
Allir áhugasamir velkomnir
Sjáum ykkur á aðalfundi Vinnís
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
NÝTT OG BETRA APP
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og
lestu blaðið í símanum
eða spjaldtölvunni
hvar og hvenær sem er.
Bandaríkin Forkosningarnar í New
York á þriðjudaginn gætu skipt sköp-
um í kosningabaráttu Demókrata-
flokksins, þar sem nú sígur á seinni
hluta hennar.
Þau Hillary Clinton og Bernie
Sanders þóttu óvenju hranaleg og
óvægin í kappræðum á fimmtudags-
kvöldið. Sanders var gagnrýndur
fyrir að vera of reiður en Clinton
þótti ekki síður harðsnúin í gagnrýni
sinni á Sanders.
Sanders sagðist meðal annars ekki
efast um að Clinton væri hæf til þess
að gegna embætti forseta Banda-
ríkjanna. Hins vegar efaðist hann um
dómgreind hennar og tíndi til ýmsar
umdeildar ákvarðanir hennar.
Sanders krafðist meðal annars
svara frá Clinton um hernað Ísraela á
Gasasvæðinu árið 2014. Hann sagðist
sjálfur styðja Ísraelsríki af heilum hug
en vera engu að síður þeirrar skoð-
unar að Ísraelar hefðu beitt óhóflega
miklu ofbeldi, og spurði beint hvort
Clinton væri sömu skoðunar.
Hún kom sér hjá því að svara
þeirri spurningu beint, en sagðist
ætla að halda ótrauð áfram að vinna
að lausn á deilu Ísraela og Palestínu-
manna yrði hún forseti.
Enn eiga demókratar eftir að
halda forkosningar í tuttugu ríkjum
Bandaríkjanna, en repúblikanar í
sextán.
Mestu munar þar um New York,
þar sem gengið verður til atkvæða
á þriðjudaginn kemur, og Kaliforníu
þar sem kosið verður 7. júní. Þann
dag verða síðustu forkosningar
flokkanna tveggja, og alls ekki víst
að úrslitin ráðist fyrr en þá – eða
jafnvel ekki fyrr en á landsþingum
flokkanna í júlí.
Sanders hefur unnið sjö af síðustu
átta forkosningum, en virðist eiga
þungan róður fram undan sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Fyrirfram virðist Sanders eiga litla
möguleika gegn Clinton í New York
á þriðjudaginn. Clinton mælist þar
með vel yfir 50 prósenta stuðning
en Sanders með um og innan við
fjörutíu prósent.
Af repúblikönum er það að frétta
að Donald Trump mjakast áfram
nær sigrinum, þótt enn vanti tölu-
vert upp á að hann sé búinn að
tryggja sér meirihluta á landsþing-
inu. gudsteinn@frettabladid.is
Baráttan milli Clinton
og Sanders harðnar
Nú fer að síga á seinni hluta forkosningatímabilsins í Bandaríkjunum. Bernie
Sanders hefur verið á mikilli siglingu undanfarið en á þungan róður eftir. Næst
er kosið í New York á þriðjudaginn. Demókratar eiga eftir að kjósa í 20 ríkjum.
Harðasti skjálfti í fimm ár
2.383
er fjöldi þeirra fulltrúa á
landsþingi demókrata sem
þarf til að ná kjöri sem for-
setaefni flokksins. Enn á eftir
að kjósa um 1.959 þeirra.
Clinton þarf að tryggja sér
stuðning 607 þeirra til að ná
meirihluta en Sanders vantar
1.265.
Hús datt Harður jarðskjálfti reið yfir suðvesturhluta Japans í gær, skammt frá borginni Kumamoto á eyjunni
Kyushu. Verulegt tjón varð, meðal annars í bænum Mashiki þar sem þessi mynd er tekin. Skjálftinn mældist 7,1
stig og er sá harðasti frá árinu 2011 þegar skjálfti af stærðinni 9 varð í norðausturhluta landsins. Fréttablaðið/EPa
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-D
7
C
4
1
9
1
9
-D
6
8
8
1
9
1
9
-D
5
4
C
1
9
1
9
-D
4
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K