Fréttablaðið - 16.04.2016, Síða 10
StjórnSýSla Öryrkjabandalag
Íslands (ÖBÍ) tekur ekki þátt í vinnu
við gerð nýs frumvarps um endur-
skoðun almannatryggingakerfisins
þrátt fyrir boð ráðherra þar um.
„Það hvarflar ekki að okkur að
taka þátt í frumvarpsvinnu sem við
getum ekki skrifað undir mannrétt-
inda vegna. Við getum ekki boðið
fólki upp á svona kerfi,“ segir Ellen
Calmon, formaður ÖBÍ.
Meirihluti nefndar um endur-
skoðun almannatryggingakerfisins
skilaði skýrslu sinni til Eyglóar
Harðardóttur, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, 1. mars síðastliðinn.
Fulltrúar minnihlutans og ÖBÍ skil-
uðu séráliti.
Ellen segir vinnu hafna við gerð
frumvarps sem byggi á niðurstöð-
um meirihlutans og ÖBÍ hafi verið
boðið að taka þátt. „Við eigum að
sitja þarna með sama fólkinu og
við höfum setið með í nefnd í tvö
og hálft ár.“ Allan þann tíma hafi
ÖBÍ ekki komið neinni af sínum til-
lögum fram þrátt fyrir að hafa lagt
til ítarlega skýrslu þar um. Skýrslan
ber heitið „Virkt samfélag“ og var
kynnt fyrir um ári en þar koma fram
helstu breytingar sem gera þyrfti á
almannatryggingakerfinu samhliða
því að horfið yrði frá örorkumats-
kerfi yfir í kerfi sem byggði á starfs-
getumati.
„Nú á sama fólk og sat í nefnd-
inni að skrifa frumvarpið, nema
nú er stjórnarandstöðunni ekki
boðið að taka þátt,“ segir Ellen. ÖBÍ
er boðið upp á að sitja í hópi sem
lokað hafi eyrunum fyrir tillögum
samtakanna í tvö og hálft ár. Þeim
hjá ÖBÍ misbjóði að ekkert mark
hafi verið tekið á faglega unnum
tillögum heildarsamtaka fatlaðs
fólks og örorkulífeyrisþega, með 41
aðildarfélag og 30 þúsund manns
undir. „Þetta er sýndarsamráð.
Það er ekki hægt að sjá eða finna
á félagsmálaráðherra að hún hafi
nokkurn tímann ætlað að hlusta á
okkar tillögur.“
ÖBÍ gerir fjölda athugasemda við
tillögur meirihlutans. Þar á meðal
eru gagnrýndar auknar skerðingar
á þann hóp fólks sem hafi minnsta
starfsgetu. „Við getum ekki sætt
okkur við að festa eigi fátækasta
fólkið í fátæktargildru og ekki veita
því neina möguleika á að afla sér
aukatekna.“
Þá verði, samkvæmt tillögum
meirihluta nefndarinnar, ekkert
þak sett á þær tekjur sem fólk með
50 prósenta starfsgetumat megi
vinna sér inn. „Þú getur verið með
800 þúsund krónur á mánuði og
færð samt borguð 50 prósent frá
Tryggingastofnun. Þetta er algjör-
lega galin hugmynd,“ segir Ellen. Í
fyrsta lagi eigi almannatryggingar
ekki að þurfa að greiða til fólks með
rífandi tekjur og í öðru lagi sé vand-
séð hvernig haga eigi eftirliti með
þessum málum. „Það er algjörlega
órætt.“ olikr@frettabladid.is
Kæra sig ekki um meira sýndarsamráð
ÖBÍ er misboðið vegna þess hve lítið mark hefur verið tekið á innleggi bandalagsins við endurskoðun almannatryggingakerfisins.
Nýtt kerfi festi fátækasta hópinn í fátæktargildru. Afþakka þátttöku í gerð frumvarps sem byggir á niðurstöðu meirihluta nefndarinnar.
Óttast fjölgun bótaþega
Núna er kerfið þannig að þeir sem ekki geta unnið fulla vinnu sökum skertrar starfsgetu geta sótt um örorkulífeyri hjá
Tryggingastofnun. FréTTablaðið/PjeTur
Þetta er sýndar
samráð. Það er ekki
hægt að sjá eða finna á
félagsmálaráðherra að hún
hafi nokkurn tímann ætlað
að hlusta á
okkar tillögur.
Ellen Calmon,
formaður Öryrkja
bandalags Íslands
Kallað er eftir fleiri þrepum en
tveimur í starfsgetumati í um
sögnum bæði Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar
við skýrslu nefndar um endurskoð
un almannatryggingakerfisins. Án
viðbótarþreps sé viðbúið að fjölgi
í þeim hópi sem óski eftir fjárhags
aðstoð frá sínu sveitarfélagi, enda
liggi fyrir að framboð og aðgengi að
hlutastörfum sé misjafnt. Kallað er
eftir að áhrif nýs starfsgetumats á
fjárhag og stjórnsýslu sveitarfélaga
verði greind með formlegum hætti.
„Óeðlilegt er að annað stjórnsýslu
stigið skerði einstaklingsbundin
réttindi til þess eins að auka útgjöld
hins stjórnsýslustigsins,“ segir í um
sögnum bæði sveitarfélaganna og
borgarinnar.
Landsbankinn.is
Arðgreiðslur Landsbankans í milljörðum króna.
Landsbankinn
greiðir arð til
samfélagsins
og greiðir á fjórum árum
samtals 82 milljarða í arð,
þar af rúmlega 98% til ríkissjóðs.
2013 2014 2015 2016
10 20 24 28,5
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-E
6
9
4
1
9
1
9
-E
5
5
8
1
9
1
9
-E
4
1
C
1
9
1
9
-E
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K