Fréttablaðið - 16.04.2016, Síða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Það var bjartur, kaldur apríldagur og klukkan var að slá þrettán.“ Svo hefst skáldsagan Nítján hundruð áttatíu og fjögur eftir George Orwell.
Svo margt er líkt með dystópíu Orwells og viðbrögðum
íslenskra stjórnvalda við Panama-skjölunum, sem
leiddu í ljós að nokkrir ráðamenn okkar luma á leyni-
legum aflandsreikningum, að meira að segja upphafsorð
bókarinnar gætu verið byrjunin á opinberri sögu Fram-
sóknarflokksins á atburðunum. Í stað þess að bregðast
við staðreyndum reyndu stjórnvöld að heilaþvo liðið
og fullyrða að tveir plús tveir væru fimm: Tortóla er ekki
skattaskjól, RÚV er að leggja forsætisráðherra í einelti,
það er flókið að eiga peninga á Íslandi, hvítt er svart og
svart er fjólublátt.
En þótt Sigmundur Davíð hafi að endingu hrökklast
úr embætti forsætisráðherra virðist Framsókn enn leita
í smiðju drottnandi dávalds í anda Stóra bróður til að
stýra almenningsálitinu.
Ásjóna bananalýðveldis
Okkur Íslendingum hefur löngum verið annt um ímynd
okkar út á við. Við viljum vera vönd að virðingu okkar og
það skiptir okkur máli hvað fólki úti í hinum stóra heimi
finnst um okkur. Mörgum sveið því sárt hvernig hlegið
var að okkur í erlendum fjölmiðlum síðustu vikur.
Fyrsta verk nýs utanríkisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur,
var hins vegar að ítreka að tveir plús tveir væru enn þá
fimm. Þótt aðeins nokkrir dagar væru liðnir frá því að
Panama-lekinn varð heimsbyggðinni ljós virtist ráðu-
neyti hennar ekki eiga í minnstu erfiðleikum með að
fullyrða að málið hefði á engan hátt skaðað íslenska
ímynd erlendis.
Tíminn mun leiða í ljós langtímaáhrif þeirrar pólitísku
krísu sem ríkir hér á landi. Þar til liggur fyrir hvort Íslandi
takist að hrista af sér ásjónu bananalýðveldis getum við
hins vegar yljað okkur við þá staðreynd að ímynd lands-
ins hefur verið verri.
Íslendingar eru dónalegir,
óhófsamir, þjófóttir villimenn
Op niður til helvítis
Þótt í eldgamla daga hafi Ísland verið afskekkt og
einangrað land slysaðist hingað annað slagið fólk frá
útlöndum. Það sem blasti við fannst ferðalöngunum
flestum alveg stórfurðulegt. Nokkrir gestanna skrif-
uðu ferðabækur um upplifun sína af Íslandi. Voru
lýsingar á landi og þjóð stundum eins og klipptar
út úr ævintýri. Oftar voru þær þó svo neikvæðar að
Íslendingar urðu sármóðgaðir.
Svona kom Ísland útlendingum fyrir sjónir á 17.,
18. og 19. öld samkvæmt helstu ferðabókum erlendra
gesta:
• Á Íslandi má finna op ofan í jörðina sem nær alla
leið niður til helvítis
• Íslendingar eru dónalegir og villimannlegir
• Þeir eru líka lúsugir
• Allir eru þeir göldróttir og margir dýrka djöfulinn
• Íslendingar eru svikulir og þjófóttir, deilugjarnir,
illviljaðir og hefnigjarnir
• Óhófsamir, lostafullir og saurlífir búa þeir í
moldarkofum ofan í jörðinni
• Já, eða hellum í klettunum
• Frítt konuandlit er sjaldséð á Íslandi
• Konur og karlar klæða sig auk þess alveg eins
• Íslendingar eru drykkfelldir og þegar þeir eru
komnir í glas syngja þeir rammfalskt hver með
sínu nefi
• Og verst af öllu: Íslendingar eru hræðilegir dans-
arar. Það sem þeir kalla dans er þegar karl og kona
standa andspænis hvort öðru og hoppa upp og
niður án þess að hreyfast úr stað
Það er rétt hjá utanríkisráðuneytinu, við gætum
verið þekkt fyrir eitthvað miklu verra en að vera ban-
analýðveldi. Og munum: Tveir plús tveir eru fimm,
stríð er friður, frelsi er ánauð og fáfræði er máttur.
Maður og vél hafa lengi markað átaka-línur í pólitík. Verkalýðsbarátta snýst gjarnan um tilvik þar sem vinnuveitendur hafa sagt upp starfs-fólki vegna þess að vélar hafa leyst mannshöndina af hólmi.
Gott dæmi frá Bretlandi á níunda áratug síðustu aldar
var þegar Rupert Murdoch, eigandi News International,
nú Sky, sem á þeim tíma rak meðal annars dagblöðin
Times og The Sun, flutti prentun blaðanna í skjóli nætur
í nýja verksmiðju í Austur-Lundúnum. Þar með fækkaði
starfsmönnum sem unnu við prentun blaðanna í einni
svipan. Einn maður kom í stað fjögurra.
Aðgerðin var umdeild og breskt samfélag stóð í
ljósum logum. Það jafnaði sig með tímanum – nú heldur
varla nokkur málsmetandi manneskja því fram að í
prentiðn skuli horfið til fyrri vinnubragða.
Leigubílstjórum dagsins í dag stendur ekki einungis
ógn af snjallforritinu Uber, heldur einnig ökumanns-
lausum bifreiðum, sem koma á markað innan tíðar.
Óumdeilt er að Uber hafi umbylt bæði upplifun farþega
og snarminnkað kostnað við leigubílaferðir. Því er erfitt
að sjá rök fyrir því að leigubílarekstur eigi að njóta sér-
stakrar ríkisverndar eða fá vernd fyrir tækninýjungum.
Nýjustu fiskiskip afkasta margfalt miðað við það
sem áður var. Þeim má líkja við fljótandi tækniundur.
Burðargeta fullkomnustu loðnuskipa er fjórföld á við
það sem hún var fyrir aldarfjórðungi. Þegar vel veiðist
eru þau jafnfljót að fylla sig. Mun færri eru í áhöfninni.
Afköstin á hvern fiskimann hafa í sumum tilfellum
tífaldast.
Sama þróun á sér stað á botnfiskveiðum. Afköst
togaranna eru miklu meiri en áður var og skipverjar
færri. Á síðutogara voru 30 kallar um borð en á nýjustu
glæsifleyjunum, sem eru margfalt stærri, er gjarnan
sex til átta manna áhöfn, karlar og konur. Aflinn er
stundum fullunninn úti á sjó. Fyrir vikið fækkar störfum
við vinnslu í landi.
Fiskveiðar eru orðnar hátæknigrein sem æ færri
hendur koma að.
Alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hefur
rannsakað áhrif tækninýjunga á vinnumarkaðinn.
Niðurstaðan var afgerandi. Tækninýjungar verða ekki
til þess að störfum fækki, heldur skapast ný störf sem
vega upp á móti þeim sem úreldast. Stórkostlega hefur
dregið úr hefðbundinni erfiðisvinnu, en í staðinn hafa
skapast störf við þjónustu, umönnun, menntun og listir.
Svokölluðum afþreyingarstörfum fjölgar mest. Þau
tengjast gjarnan skemmtistöðum, veitingahúsum eða
knæpum. Skýrsluhöfundar, sem hafa verið tilnefndir til
fjölda alþjóðlegra verðlauna, skýra þróunina með því
að fólk hafi meiri frítíma en áður og meira laust fé til að
eyða í þjónustu sem ef til vill telst ekki lífsnauðsynleg.
Með öðrum orðum, eftir því sem tækninni fleygir
fram hafa lífsgæði batnað stórkostlega. Störfin eru
manneskjulegri en áður og fólk finnur sér farveg þótt
breytingar til skamms tíma geti verið sárar.
Í grófum dráttum fer daglegt líf batnandi, þótt vissu-
lega geti stundum verið erfitt að skynja það í umræðu
hversdagsins.
Betra líf
Aðgerðin var
umdeild og
breskt sam-
félag stóð í
ljósum logum.
Það jafnaði
sig með tím-
anum.
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda og strigaprentun.
Segulmerki, textaskraut og
sandblástursfilmur.
Banner-up standar og harðspjöld.
GSM hulstur og margt fleira...
Xprent ehf - Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Sími 777-2700 - email: konni@xprent.is
Bílamerkingar
Límmiðar
Sandblásturs
filmur
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
SKOÐUN
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-A
B
5
4
1
9
1
9
-A
A
1
8
1
9
1
9
-A
8
D
C
1
9
1
9
-A
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K