Fréttablaðið - 16.04.2016, Síða 22
Við erum loksins að gefa út okkar fyrstu plötu,“ segir Gunnar Ingi Valgeirsson,
stofnmeðlimur í hljómsveitinni
Major Pink.
Hljómsveitin er sennilega
þekktust fyrir lag sitt It’s Gonna be
Alright, sem kom út í október 2014.
Lagið var samið og útsett í sam-
starfi við Barða Jóhannsson, oftast
kenndan við hljómsveitirnar Bang
Gang og Starwalker.
Hin nýja plata sveitarinnar heitir
Take the Abuse. Útgáfutónleikar
verða haldnir í Lucky Records við
Rauðarárstíg í dag klukkan fjögur.
Tíðar nafnabreytingar
Sveitin á sér langa sögu, en hún
var fyrst stofnuð árið 2007. „Við
vorum nokkrir fjórtán ára krakkar
úr Grafarvoginum sem langaði til
að stofna hljómsveit. Við skírðum
hana Major Pink Disaster. Sú sveit
spilaði einu sinni,“ segir Gunnar
Ingi og hlær.
Fimm árum seinna, árið 2012,
hittust tveir fyrrverandi meðlimir
sveitarinnar, Gunnar Ingi og Daníel
Guðnason, og ræddu um að endur-
vekja hljómsveitina.
„Hún hét þá Major Pink and the
Disasters. Við sömdum nokkur
lög áður en við skiptum um nafn
í þriðja sinn og svo fjórða sinn.
Nafnabreytingarnar voru tíðar!“
Í dag heitir sveitin einfaldlega
Major Pink og vinnur enn náið
með Barða Jóhannssyni, auk þess
sem Hrafnhildur Magnea bættist í
hópinn og er nú hljómborðsleikari
sveitarinnar.
„Við hvetjum sem flesta til að láta
sjá sig í Lucky Records í dag í stuði!“
segir Gunnar Ingi að lokum.
Loksins
kemur út
plata!
Útgáfutónleikar Major Pink verða í Lucky
Records við Rauðarárstíg í dag klukkan
fjögur. Nýja platan heitir Take The Abuse og
inniheldur fimm ný lög sveitarinnar.
Major Pink gefur út sína fyrstu plötu í dag. Hér má sjá þá Gunnar Inga Valgeirsson og Daníel Guðnason, meðlimi í sveitinni. FréTTablaðIð/ErnIr
Við Vorum nokkrir
fjórtán ára krakkar
úr GrafarVoGi sem
lanGaði til að stofna
hljómsVeit. Við
skírðum hana major
Pink Disaster. sú sVeit
sPilaði einu sinni.
Landsvirkjun hefur um áratugaskeið
starfrækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi,
uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum og betri
aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu
flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin
lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og
öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum
samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram
vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað
með nánari upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar veitir Þóra María
Guðjónsdóttir í síma 515 9000 og á
netfanginu lettverk@landsvirkjun.is.
Umsóknarfrestur rennur út 8. maí.
Umsóknareyðublöð er að finna á
landsvirkjun.is.
Landsvirkjun auglýsir eftir
samstarfsaðilum að verkefninu
Margar hendur vinna létt verk
sumarið 2016.
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r22 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
helgin
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-E
1
A
4
1
9
1
9
-E
0
6
8
1
9
1
9
-D
F
2
C
1
9
1
9
-D
D
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K