Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 24
Auðvitað saknar fólk aðeins þess tíma þegar mátti leggja stund á smá einelti. Það er svo rosalega skapandi og
skemmtilegt að búa til uppnefni og
svoleiðis,“ segir Tyrfingur Tyrfings
son leikskáld og glottir grallaralega
enda skín af honum góðmennska og
viðkunnanlegheit. „Við erum bara
spendýr sem þurfa að læra að veiða
sér til matar og ef það er eitthvert
frík í hópnum þá verður að láta það
vita. Það er bara kurteisi því það
verður að vera einhver framgangur.“
Skoðum rótina
Tyrfingur er á meðal eftirtektar
verðari leikskáldum yngri kynslóð
arinnar en hann vakti fyrst athygli
með verkinu Skúrinn á sléttunni
og í framhaldinu Bláskjá sem var
hans fyrsta verk í fullri lengd. Fram
undan er nú frumsýning í Borgar
leikhúsinu, þar sem fyrri verk Tyrf
ings voru einnig frumsýnd, á leik
ritinu Auglýsing ársins í leikstjórn
Bergs Þórs Ingólfssonar. Tyrfingur
segir að óneitanlega sé hann aðeins
á þessum slóðum spendýranna í
nýja verkinu. „Ég var einmitt að
horfa á rennsli í gær og þá hugsaði
ég: Já, þetta eru spendýr. Það er
nokkuð ljóst.“
Tyrfingur segist þó ekki vera
þannig höfundur sem leggur til
atlögu við nýtt verk með það að
markmiði að skrifa um eitthvert
sérstakt málefni. „Nei, eiginlega
mjög langt í frá. Svona eftir á að
hyggja þá velti ég því frekar fyrir
mér hvort ég hafi verið að skrifa um
þetta allan tímann án þess að gera
mér grein fyrir því. En það kemur í
rauninni langsíðast um hvað þetta
er. Þetta er meira þannig að maður
er að reyna að skoða eitthvað og
skilja sem maður skilur ekki. Í Aug
lýsingu ársins er ég t.d. að skoða
manneskjuna og af hverju hún
hagar sér eins og hún gerir. Per
sónurnar í verkinu eru allar mjög
friðlausar. Friðlausar og grimmar
en þetta gamanleikrit er þannig
að þær eru soldið fyndnar en rótin
í þeim öllum er það sem við erum
að reyna að skoða.“
Finnum til okkar
Sem leikskáld er Tyrfingur stöðugt
að rannsaka persónueinkenni og
hann segir að eitt helsta persónuein
kenni Íslendinga sé að finna til sín
af minnsta tilefni. „Ég þekkti mann
sem var að vinna á bensínstöð þegar
vaktstjórinn fór í aðgerð á mjöðm. Þá
var þessi maður gerður að vaktstjóra
rétt á meðan og hann bara skildi við
konuna sína. Framinn og valdið bara
fóru með hann og við erum soldið
svona. Þetta er eins og með nem
endur Vigdísar Finnbogadóttur sem
er svona hofmóðugt fólk sem skrifar
passívagressívar greinar um kær
leikann og er alltaf að messa yfir
manni. Það felst í því ákveðið frið
leysi að reyna stöðugt að búa til frið
í öðrum – halda öðrum í skefjum.
Það er mikið fjallað um markaleysi
annarra, mikið talað um gerendur og
ljóta kallinn.
Það er þessi sami galli í pólitík
og leikhúsi. Í leikhúsi er til fólk sem
hefur í rauninni engan áhuga á leik
húsi heldur áhuga á sér í leikhúsinu.
Það sama gildir um stjórnmálin.
Það er fólk sem hefur engan áhuga á
því að gera samfélagið betra heldur
hefur áhuga á sér í stjórnmálum. Þess
vegna er svo gaman að vera að frum
sýna í svona sviðsetningarástandi í
samfélaginu. Það er bara hver svið
setningin sem rekur aðra. Þá fara
líka að rokseljast miðar í leikhúsið
og mér finnst það soldið flott að fólk
skuli tengja og leita til okkar.“
Manngerð rómantík
Tyrfingur segir að það sé nóg gert af
því að predika yfir fólki í samfélaginu
og því eigi slíkt ekkert erindi í leikhús
ið. „Það er alltaf verið að þvinga upp
á okkur væmni og tilfinningasemi.
Reyna að stýra fólki með væmni og að
koma fyrir í því samviskubiti og það
er eins og heilu miðlarnir snúist um
það. Kannski er það af því að mamma
gerði svo mikið af því við mig að ég
kann mjög illa við þetta. Væmnin
er passívagressív í eðli sínu, hún
er óheiðarleiki á sumarkjól, aldrei
sönn. Hana er ekki heldur að finna í
náttúrunni þannig að hún er búin til.
Manngerð rómantík. Hugmynd sem
við þurfum að fara að vara okkur á.
Þessi yfirborðsmennska er eitt af
því sem við erum að takast á við í
þessu verki sem gerist á auglýsinga
stofu en ég vann einmitt á slíkri stofu.
Í verkinu kemur kúnni inn á þessa
Maður þarf að vera soldið vondur
Tyrfingur Tyrfingsson er ungt leikskáld sem hefur vakið mikla athygli og í kvöld verður frumsýnt eftir hann gaman-
leikritið Auglýsing ársins í Borgarleikhúsinu. Þar hitta áhorfendur fyrir friðlausar og grimmar persónur sem reyndu
talsvert á sálarlíf skáldsins sem elskar sviðsetningar, þolir ekki væmni og segist eiga það til að vera dramatískur.
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld á Nýja sviði Borgarleikhússins þar sem Auglýsing ársins verður frumsýnd í kvöld eftir langa og dramatíska meðgöngu. FréTTABlAðið/erNir
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Væmnin er passíV-
agressíV í eðli sínu,
hún er óheiðarleiki
á sumarkjól, aldrei
sönn. hana er ekki
heldur að finna í
náttúrunni þannig að
hún er búin til.
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r24 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-F
5
6
4
1
9
1
9
-F
4
2
8
1
9
1
9
-F
2
E
C
1
9
1
9
-F
1
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K