Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 30
Leikkonan Anita Briem datt óvart inn á leiksviðið níu ára gömul og hefur leik-listarbakterían haldið henni í heljargreipum síðan. Þrátt
fyrir að hafa aðeins átta ára lýst því
yfir að hún ætlaði sér ekki að feta í
fótspor foreldra sinna, tónlistarfólks-
ins Ernu Þórarinsdóttur og Gunn-
laugs Briem, og verða listamaður. Í
slíku umhverfi, þar sem óöryggið og
óvissan var alltumlykjandi ætlaði
hún ekki að ala upp sín börn. Hún
er ein þekktasta leikkona okkar
Íslendinga á erlendri grund og unir
sér vel í Los Angeles þar sem hún býr
ásamt eiginmanni sínum, leikstjór-
anum Constantine Paraskevopoulos,
og tveggja ára gamalli dóttur þeirra
hjóna, Míu. Nýverið venti hún kvæði
sínu í kross, er hún sendi frá sér sína
fyrstu bók.
Hollywood aldrei draumurinn
Anita hlær þegar hún er spurð hvort
þetta sé vegur sem hún hafi alltaf
ætlað sér að feta. „Nei. Ég ætlaði
aldrei að verða leikkona, hvað þá
Hollywood-leikkona. Amma mín,
sem var ekki vön að ota sér og sínum
skoðunum að neinum, hringdi heim
einn daginn og sagði að ég yrði að fara
í prufu fyrir Ídu í uppsetningu á Emil í
Kattholti. Auglýsinguna hafði hún séð
í blaði og þetta yrði ég að gera. Þá var
ég níu ára og hafði aldrei leikið áður
utan þess að setja upp misleiðinlega
leikþætti heima fyrir mömmu og
pabba.“
Úr varð að Anita dróst inn á fjalir
Þjóðleikhússins og ílengdist þar
þangað til hún var sextán ára.
„Ég barðist samt mikið á móti
því að verða leikkona. Ég vissi hvað
þetta var ruglaður lífsstíll. Mamma
og pabbi voru bæði listamenn. Það
var ekkert auðvelt, óreglulegur tími
á öllu, launin óregluleg líka og erfitt
fyrir börn að vera í svona óvissu og
öryggi. Mér fannst þetta auðvitað
líka æði. Að fá að fara með í Hemma
Gunn þegar þau voru að spila þar og
vera með í stúdíóinu þar til klukkan
fjögur um nótt var spennandi. En á
sama tíma fann ég óöryggið. Þegar
ég var átta ára lýsti ég því yfir að ég
ætlaði sko ekki að ala mín börn upp
í svona umhverfi,“ segir hún kímin.
„En þegar ég var sextán ára að leika
í Óskastjörnunni með Elvu Ósk og
Gunnari Eyjólfs rann þetta upp fyrir
mér. Ég varð að vera hreinskilin við
mig um hvort ég ætlaði að gera þetta
eða ekki. Og ég valdi þennan lífsstíl,
en ekki af kæruleysi og ákvað strax að
læra erlendis. Ekki til að verða stór-
stjarna í útlöndum, heldur til að læra
tungumálið og sýna sjálfri mér að ég
gæti þetta.“
Uppleiðin hröð
Úr varð að Anita fluttist til London
og settist á skólabekk í Royal Aca-
demy of Dramatic Art. „Mér fannst
Reykjavík rosalega lítil borg. Ég fékk
innilokunarkennd. Allir vissu alltaf
hvað þú varst að gera og maður
endalaust opinn fyrir krítík. Ég
hljóma eflaust paranojuð en ég er
mjög prívat manneskja.“
Anita fann sig vel í London. Hún
taldi næsta víst að þar myndi hún
skjóta rótum. „Ég fór strax að vinna
eftir útskrift, þetta fór mjög vel í
gang hjá mér. Ég hafði unnið virki-
lega mikið í að ná hreimnum og tal-
aði breskuna alveg þannig að ég gat
þóst vera innfædd. Svo gerist það
fyrir slysni að ég er boðuð í prufu
fyrir bandarískan sjónvarpsþátt og
flýg yfir. Út frá henni spratt önnur
prufa og þaðan önnur. Íbúðin mín í
London endaði svo á að standa tóm
í ár,“ segir hún og hlær innilega.
„Kaflaskiptin urðu svo þegar ég
fékk hlutverkið í myndinni The
Journey to the Center of the Earth.
Það var stórt stökk og raunveru-
leikinn varð öðruvísi eftir þá mynd.
Þetta var rosalega stórt batterí í
kringum það dæmi. Maður verður
ringlaður fyrst og mér fannst ég ein.
Ég hefði viljað hafa einhvern
mentor með mér, sérstaklega þar
sem engu af þessu fólki er annt um
þína velferð. Maður áttar sig ein-
mitt ekki á því strax, þar sem þetta
fólk er mjög upptekið af að segja
þér að því sé umhugað um þig. Nú
veit ég hins vegar betur en það var
mjög erfitt að átta sig ekki á því
fyrst.
Svo fer maður í að finna jafn-
vægið á milli þess að treysta og
vera á varðbergi. Það er ekki hægt
að vantreysta öllum endalaust. Mig
langar ekki að lifa svoleiðis lífi. Ég
vinn með þennan jafnvægispunkt
á hverjum einasta degi.“
Falin bumba fram á lokasprettinn
Baráttan um hlutverkin er ansi hörð
í Hollywood og má lítið gefa eftir.
Þegar Anita varð barnshafandi tók
við dálítill feluleikur. „Hún er mitt
fyrsta barn, svo mér tókst að fela
óléttuna þar til ég var komin sex og
hálfan eða sjö mánuði á leið. Ég fór á
alla fundina en passaði mig á að vera
í stórum peysum. Maður er ekkert
að tilkynna þetta neinum fyrr en
þetta er farið að sjást almennilega,“
útskýrir hún og bendir á að ástæðan
sé nokkuð einföld.
„Vinkona mín er leikkona í New
York og var komin fjóra mánuði á
leið þegar hún landaði stóru verk-
efni í bíómynd. Um leið og þeir
komust að því að hún væri barns-
hafandi var hún dregin út úr verk-
efninu. Samt hefði það aldrei skipt
máli, því ekkert var farið að sjást á
henni og hefði aldrei komið að sök.“
Á hvaða forsendum er henni
þá sagt upp, spyr blaðamaður og
svarar Anita sposk á svip: „Já, það
er nú það. Þetta er sennilega löglegt
en ekki siðferðislega rétt. Ég var
meðvituð um þetta. Fólk er ofboðs-
lega dómhart varðandi konur og
aldur þeirra. Partur af mér hugsaði
að aðrir myndu tala um að fyrst ég
væri orðin mamma þá væri ég orðin
gömul – á Hollywood-mælikvarða.
En svo í enda dags þá er þetta allt
spurning um að standa með sjálfri
sér. Þetta fer á sinn veg.“
Ætlaði aldrei að verða leikkona
Anita Briem flutti sextán ára til London þar sem hún sá fyrir sér að skjóta rótum. Strax eftir leiklistarnámið fór
ferillinn hratt af stað og hún endaði í Los Angeles, hringiðu kvikmyndanna. Hún segir lífið sífellt koma sér á óvart.
Guðrún
Ansnes
gudrun@frettabladid.is
AðverA í sjónlínunni
skiptir miklu máli. ef
mAður hverfur í of
lAngAn tímA, hefur
þAðáhrif. Ég er bArA
þAð sem Ég legg í þettA.
Ég vinn og skApA, en ef
Ég stoppA, þá stoppAr
Allt.
Anita fluttist til London þegar hún hóf nám í leiklistarskóla og átti ekki von á öðru en að skjóta þar rótum. Hollywood var sannarlega ekki á stefnuskránni. FréttAbLAðið/Ernir
↣
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r30 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-C
8
F
4
1
9
1
9
-C
7
B
8
1
9
1
9
-C
6
7
C
1
9
1
9
-C
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K