Fréttablaðið - 16.04.2016, Side 34
Dilma Rousseff forseti ásamt forvera hennar í embættinu, Inacio Lula da Silva. Þau nutu ómældra vinsælda í Brasilíu þangað til
rannsókn hófst á víðtæku spillingarneti í tengslum við ríkisrekna olíufyrirtækið Petrobras. FRéttaBLaðIð/EPa
Mótmæli gegn Dilmu Rousseff og stjórn hennar hafa verið tíð í Brasilíu undanfarið.
Stuðningsmenn hennar hafa reyndar efnt til fjölmennra útifunda líka. FRéttaBLaðIð/EPa
Lofar öllu fögru hafni
þingið málshöfðun
Rannsókn á ríkisrekna olíufyrirtækinu Petrobras hefur leitt í ljós víðtæka spillingu í viðskiptalífi og stjórnmálum
Brasilíu. Dilma Rousseff forseti á yfir höfði sér málshöfðun til embættismissis en ætlar að berjast af krafti.
Neðri deild þjóðþings Brasilíu greiðir á morgun atkvæði um það hvort höfða eigi mál á hendur Dilmu
Rousseff forseta til embættismissis.
Tillaga þess efnis var samþykkt í
þingnefnd á mánudaginn.
Rousseff er sökuð um að hafa
logið til um skuldastöðu ríkisins í
aðdraganda síðustu kosninga. Hún
er sögð hafa fegrað ríkisbókhaldið
til að geta ótrauð haldið áfram að
dæla fé úr ríkissjóði til vinsælla
verkefna, sem hafi svo tryggt henni
endurkjör.
Hún segist nú ætla að leggja alla
áherslu á nauðsynlegar umbætur
í stjórnmálum og ríkisfjármálum,
og lofar meira að segja að mynduð
verði þjóðstjórn allra flokka til að
takast á við það verkefni.
Vinsældir forsetans eru í lág-
marki, en á hinn bóginn njóta and-
stæðingar hennar á þingi ekki mikils
stuðnings heldur meðal almennings.
Petrobras-hneykslið
Óánægja almennings í garð stjórn-
málamanna almennt á rætur að
rekja til rannsóknar á ríkisrekna
olíufyrirtækinu Petrobras. Rann-
sóknin hefur leitt í ljós víðtæka spill-
ingu sem nær bæði til flestra helstu
verktakafyrirtækja landsins og
teygir einnig ýmsa anga inn í heim
stjórnmálanna.
Petrobras-braskið stóð yfir í ára-
tug, frá 2004 til 2014, og snerist um
að byggingafyrirtæki höfðu með sér
leynilegt samráð um verktakasamn-
inga við ríkisfyrirtækið Petrobras.
Fyrirtækin græddu verulega á því
að skipta þannig með sér kökunni,
en peninginn notuðu þau meðal
annars til að greiða yfirmönnum hjá
Petrobras mútur. Tugir stjórnmála-
manna fengu einnig vænar mútur
fyrir að láta sem þeir sæju ekkert.
Rannsókn hófst á þessu öllu árið
2014 og hefur nú orðið til þess að
tugir manna hafa verið ákærðir.
Auðkýfingar og áhrifamenn úr
flestum stjórnmálaflokkum hafa
verið dæmdir í fangelsi.
Í síðasta mánuði var til dæmis
Marcelo Odebrecht, tæplega fimm-
tugur fyrrverandi forstjóri stærsta
byggingafyrirtækis Suður-Ameríku,
dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir stór-
felldar mútugreiðslur.
Nú síðast var Gim Argello, fyrr-
verandi öldungadeildarþingmaður,
handtekinn fyrir að þiggja mútur
í tengslum við Petrobras-braskið.
Hann sjálfur var varaformaður þing-
nefndarinnar sem sá um rannsókn
á Petrobras-hneykslinu en er sak-
aður um að hafa komið forstjórum
að minnsta kosti tveggja fyrirtækja
undan yfirheyrslum.
Hriktir í stoðum
Þetta er stærsta hneykslismálið í
sögu Brasilíu, að minnsta kosti í
seinni tíð, og nú hriktir í stoðum
stjórnmálanna þar í landi.
Almenningur er reiður og reiðin
beinist ekki síst að Roussef og Verka-
mannaflokknum hennar, sem hefur
verið við völd í þrettán ár samfleytt.
Andstæðingar stjórnarinnar segja
hana bæði gjörspillta og ekkert ráða
við efnahagsvandann, sem nú hrjáir
landsmenn.
Rousseff var sjálf formaður í stjórn
Petrobras á árunum 2003 til 2010, en
segist samt aldrei hafa vitað af því
sem var í gangi. Rannsóknin hefur
ekki leitt í ljós nein bein tengsl
hennar við verktakasvindlið, en hún
á engu að síður undir högg að sækja
vegna tengsla félaga sinna við það.
Reyndi að koma Lula í skjól
Meðal annars hefur Luiz Ignacio
Lula da Silva, forveri Rousseff í
embættinu og lærimeistari hennar
í Verkamannaflokknum, sætt alvar-
legum ásökunum um aðild að þessu
spillingarneti í kringum Petrobras-
olíufyrirtækið.
Rousseff reyndi fyrir nokkrum
vikum að bjarga Lula með því að
gera hann að lykilráðherra í ríkis-
stjórn sinni. Embættið er kallað
skrifstofustjóri ríkisstjórnarinnar,
en er að nokkru sambærilegt við
embætti forsætisráðherra.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
✿ Kæra til embættismissis
Rauða bylgjan í Suður-Ameríku
Fyrir um það bil áratug tóku mið-
og suður-amerískir kjósendur
í hverju landinu á fætur öðru
að halla sér að vinstri flokkum í
auknum mæli. Áratugina á undan
hafði álfan að stórum hluta
verið undirlögð af herforingja-
stjórnum og einræðisherrum á
hægri kantinum.
1999 Hugo Chavez fyrst kosinn
forseti í Venesúela. Nicolas
Maduro tók við af honum 2013.
2003 Nestor Kirchner kosinn
forseti Argentínu. Eiginkona
hans Cristina Fernandez de Kir-
chner tók við árið 2007 og ríkti í
tvö kjörtímabil til 2015.
2003 Luiz Inacio Lula da Silva
kosinn forseti í Brasilíu og ríkti í
tvö kjörtímabil. Dilma Rousseff
tók við árið 2011.
2005 Tabare Vazquez kosinn
forseti í Úrúgvæ. Hann lét af
embætti 2010 en sneri aftur
2015. Flokksbróðir hans, Jose
Mujica, ríkti 2010 til 2015.
2006 Evo Morales kosinn í Bóli-
víu og ríkir þar enn.
2006 Michelle Bachelet kosin
forseti í Síle. Hún tapaði kjöri
2010 en sneri aftur 2014.
2006 Allan Garcia kosinn í Perú.
Ollanta Humala tók við keflinu
árið 2011.
2006 Manuel Zelaya kosinn forseti
í Hondúras og ríkti þar til 2009.
2007 Daniel Ortega endurkosinn
forseti í Níkaragva og ríkir enn,
en hann var forseti Sandinista-
stjórnarinnar 1979-1990.
2007 Rafael Correra kosinn for-
seti í Ekvador og ríkir þar enn.
2008 Fernando Lugo kosinn for-
seti í Paragvæ og ríkti til 2012.
2008 Alvaro Colom kosinn forseti
í Gvatemala og ríkti þar til 2012.
2009 Mauricio Funes kosinn
forseti í El Salvador en Salvador
Sanchez Ceren tók við af honum
2014.
Hefði Lula fengið að sitja í þessu
embætti væri erfiðara að höfða mál
gegn honum.
Hrap úr vinsældahæðum
Lula var vinsæll verkalýðsleiðtogi
sem var kosinn forseti Brasilíu árið
2002 og gegndi embættinu í tvö
kjörtímabil við miklar vinsældir.
Þegar hann hætti var hann sagður
vinsælasti forseti veraldar. Efna-
hagslífið blómstraði og Rousseff
naut góðs af því þegar hún tók við
af honum í byrjun árs 2011.
Rétt eins og Rousseff neitar Lula
allri aðild að spillingarnetinu og
segist aldrei hafa þegið mútur.
Rousseff og stuðningsmenn
hennar segja málshöfðunina á
hendur henni runna undan rifjum
andstæðinga þeirra og jafnast á við
valdarán. Rousseff hefur meira að
segja sakað Michel Temer varafor-
seta, sem verður forseti ef Rousseff
verður vikið frá, um aðild að sam-
særi gegn sér.
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r34 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-F
F
4
4
1
9
1
9
-F
E
0
8
1
9
1
9
-F
C
C
C
1
9
1
9
-F
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K