Fréttablaðið - 16.04.2016, Page 36
Um þessar mundir eru 30 ár síðan
ung hljómsveit frá Húsavík vann
Músíktilraunir og hóf þar með lang-
an og farsælan feril. Hljómsveitin
heitir auðvitað Greifarnir og mán-
uðirnir sem fylgdu í kjölfarið áttu
eftir verða ótrúlega viðburðarík-
ir þegar sveitinni skaut ógnarhratt
upp á stjörnuhiminn.
Sveinbjörn Grétarsson, eða
Bjössi eins og hann er alltaf kall-
aður, er gítarleikari Greifanna og
einn laga- og textahöfunda sveitar-
innar. Hann segist varla trúa því að
liðin séu 30 ár síðan þeir unnu Mús-
íktilraunir enda líður honum eins
og hann sé tæplega þrítugur sjálfur.
„Það var náttúrulega rosaleg upp-
lifun fyrir strákpjakka frá Húsavík
að vinna Músík tilraunir.Við tókum
þátt árinu áður undir nafninu Speci-
al Treatment og lentum í 2. sæti. Við
mættum því ári síðar undir nýju
nafni, með íslenska texta og Felix
Bergsson sem söngvara. Þannig
unnum við keppnina sem var stór-
kostleg tilfinning.“
Allt fór á fleygiferð í lífi ungu
mannanna og næstu mánuðir urðu
viðburðaríkir. Í júní var sveitin
valin sem ein fjöggurra íslenskra
hljómsveita til að hita upp á Lista-
poppi, tveggja daga tónleikum í
Laugardalshöll, og í ágúst spiluðu
Greifarnir á stórtónleikum sem
haldnir voru við Arnarhól í Reykja-
vík. Báðir tónleikarnir áttu stóran
þátt í að gera Greifana að einni vin-
sælustu hljómsveit landsins næstu
ára.
EFTIRMINNILEGIR TÓNLEIKAR
Bjössi rifjar upp þessa örlagaríku
mánuði. „Að vinna Músíktilraunir
1986 var mikill happafengur fyrir
okkur. Reykjavíkurborg átti 200
ára afmæli sama ár og voru af því
tilefni skipulagðir stórtónleikarnir
Listapopp. Þar komu fram Simply
Red, Madness, Fine Young Canni-
bals, Loyd Cole and the Commo-
tions og svo íslensku sveitirnar
Grafík, Greifarnir, Rickshaw og
Bjarni Tryggva.“
Gríðarlegur metnaður var lagð-
ur í útlit og fatnað sveitarinn-
ar að sögn Bjössa og var Gerður í
Flónni fengin til að sérsauma bún-
inga eftir nýjustu tísku frá Lond-
on. „Svo vorum við með margverð-
launaða hárgreiðsludömu sem sá
um klippingu og förðun enda var
þetta á „eighties“ tímabilinu.“
Risatónleikarnir á Arnarhóli
voru í beinni útsendingu á RÚV en
um 20.000 manns voru viðstadd-
ir þá sem var einstakt á þeim tíma.
Þeir fengu mikið áhorf og voru að
sögn Bjössa ábyggilega teknir upp á
VHS-vídeóspólu á öðru hvoru heim-
ili. „Við stóðum okkur vel á þessum
tónleikum og þar með var frægðin
kominn í einum hvelli og við tæp-
lega undirbúnir fyrir ósköpin sem
þessu fylgdu. Reyndar var frægðin
komin á undan tónleikunum. Þegar
við mættum á svæðið voru einhver
bönd búin að spila. Þá sögðu Gulli
Helga og Þorgeir Ástvaldsson sem
voru kynnar við okkur: „Gott að þið
eruð komnir, það er allur skarinn
búinn að vera að kalla á Greifana.“
Við héldum að þeir væru að grínast
og fórum allir í hnút en svo heyrð-
um við á milli laga að þetta var rétt.
Eftir tónleikana þurftum við að-
stoð lögreglu til að komast í burtu
af svæðinu.“
GÓÐAR MINNINGAR
Ýmsar útihátíðir og sveitaböll
standa upp úr í minningunni. „Við
voru t.d. eina bandið sem spilaði
á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum árið 1988 utan þess
að Sléttuúlfarnir spiluðu í klukku-
stund.“ Eitt ball í Hreðavatns-
skála var líka sérlega eftirminni-
legt. „Þá þurfti að loka þjóðvegi
eitt sem liggur við húsið í rúma
klukkustund vegna mannmergð-
ar. Við spiluðum í tjaldinu við hlið-
ina á skálanum og stemmingin sem
myndaðist þar var einstök.“
Á tímabili var í miklu uppáhaldi
hjá bandinu að spila í Tjarnarborg
á Ólafsfirði. „Ástæðan var aðal-
lega hversu skemmtilegur staðar-
haldarinn var á þeim tíma en þar
réð Rögnvaldur Ingólfsson lögum
og lofum. Ævinlega urðu deilur í
lok dansleiks við Rögnvald en hann
vildi alltaf að við fengjum meira
borgað en samið hafði verið um.
Það kom ekki til greina af okkar
hálfu. Samningar náðust þó alltaf
á endanum.“
SAKNAR SVEITABALLA
Margt hefur breyst í bransanum
síðustu þrjá áratugi, sumt til betri
vegar, annað ekki. „Ég er alinn upp
á blómatímabili sveitaballa þar sem
allir eldri en 16 ára skemmtu sér
saman á sveitaböllum. Ég sakna
þessa tíma, bæði sem gestur og líka
sem hljómsveitarmeðlimur uppi á
sviði. Þetta er liðin tíð og sveita-
ballamenningin er nánast horfin.“
Aftur á móti er í dag hægt að
halda veglegri tónleika en áður og
fólk er duglegra að mæta og um
leið tilbúið að borga hærra miða-
verð. „Í dag upplifi ég gríðarlega
grósku í tónlistarbransanum og næ
ekki að fylgjast með nándar nærri
öllu sem er í gangi. Ég kvíði engu
þegar kemur að framtíð íslenskrar
tónlistar.“
ANNIR FRAM UNDAN
Undanfarin ár hafa Greifarnir
spilað opinberlaga 10-20 sinnum
á ári. Nú er hins vegar ætlunin að
spila meira að sögn Bjössa og fara
í órafmagnaða tónleikaferð um
landið í tilefni 30 ára afmælisins.
„Þar munum við leggja áherslu á
mikla nánd við áhorfendur, taka
lög sem heyrast ekki oft á böllum
auk þess að rifja upp sögur af ferl-
inum. Þetta er enn á undirbúnings-
stigi og ekki komnar neinar fastar
dagsetningar. Svo höfum við verið
að hittast til að skoða og semja nýtt
efni sem við höfum ekki gert lengi.
Hvort eða hvenær við gefum þetta
efni út kemur svo bara í ljós.“
ALLT Á FLEYGIFERÐ
Greifarnir unnu Músíktilraunir fyrir 30 árum og hafa síðan skemmt
landsmönnum. Fram undan er órafmögnuð tónleikaferð um landið.
Greifarnir tilbúnir fyrir Listapoppstónleikana 1986. Ein bakraddasöngkona Fine
Young Cannibals átti ekki til orð yfir hvað fötin voru flott. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Við stóðum okkur vel á þessum tónleikum og þar með var frægðin kominn í einum
hvelli og við tæplega undirbúnir fyrir ósköpin sem þessu fylgdi,“ segir Bjössi um
stórtónleikana á Arnarhóli 1986. MYND/VILHELM
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
*skv. gjaldskrá levi.com og gengistöflu Íslandsbanka 15.04.16
514 Straight
frá kr. 12.990
Beinar niður
Sitja á mjöðmum
Létt teygja
Verð í Danmörk frá kr. 14.137*
Verð í Bretlandi frá kr. 12.367*
1 6 . A P R Í L 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R2 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
A
-1
3
0
4
1
9
1
A
-1
1
C
8
1
9
1
A
-1
0
8
C
1
9
1
A
-0
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K